Ánægja með sýknuna 15. október 2004 00:01
Sýknudómur yfir Morgan Tsvangirai leiðtoga stjórnarandstöðunnar í Zimbabwe hefur endurnýjað trú manna á lýðræðið þar í landi. Robert Mugabe hefur farið með völd í landinu síðasta aldarfjórðung og voru réttarhöldin yfir helsta andstæðingi hans talin enn eitt dæmið um einræðistilburði hans. Fyrirfram höfðu margir búist við að Tsvangirai yrði sekur fundinn, en hann er helsta ógn Roberts Mugabes forseta í embætti. Árið 2002 munaði afar litlu að Tsvangarai næði kosningu en framkvæmd kosninganna var harðlega gagnrýnd. Bæði Bandaríkjastjórn og Evrópusambandið sökuðu Mugabe um að stela kosningunum og hafa beitt stjórn landsins refsiaðgerðum vegna þess. Efnahagsástandið í Zimbabwe er afar slæmt, þar er meira en helmingur fullorðinna íbúa án atvinnu, viðvarandi skortur er á matvælum og verðbólga á ársgrundvelli mælist yfir þrjú hundruð prósent. Kosningar verða haldnar þar á næsta ári en hreyfing Tsvangirais hefur hótað því að hunsa þær verði leikreglur ekki tryggðar. Tsvangirai verður að teljast hugrakkur maður, því hann þessi fyrrverandi námaverkamaður hefur ekki látið bugast þrátt fyrir að hafa verið ítrekað beittur ofbeldi, kallaður föðurlandsvikari og þrisvar ákærður fyrir landráð. Mugabe kallar hann vitleysing vegna þess hve litla formlega menntun hann hefur en stuðningsmenn hans segja persónutöfra hans og sannfæringu einstæða. Réttarhöldin snerust að miklu leyti um umdeilda myndbandsupptöku sem kom í leitirnar skömmu eftir kosningar og talin var sýna Tsvangirai leggja á ráðin með kanadískum ráðgjöfum um að myrða Mugabe. Hefði hann verið fundinn sekur mátti búast við dauðadómi og voru öryggissveitir í viðbragðsstöðu fyrir dómsuppkvaðninguna.
Erlent Fréttir Mest lesið Siggi stormur sár en dregur ekki í land Innlent Myndir: Heimilisfólk komst út heilt á húfi Innlent Tap vegna ótímabærra veðurspáa hlaupi á milljónum Innlent Hröpuðu til bana í skoðunarflugi yfir Nazca-línurnar Erlent Handtóku níu og nutu liðsinnis sérsveitar vegna staks eggvopns Innlent Þyrlur slökkviliðs skullu saman í miðju lofti Erlent Sumarhús við Þingvallavatn eyðilagðist í eldsvoða Innlent Fundu byssur í bílum og handtóku fimm Innlent Greinir á við kjósendur sína Innlent Maður á sjötugsaldri kýldi konu til blóðs í miðbænum Innlent Fleiri fréttir Þyrlur slökkviliðs skullu saman í miðju lofti Trump boðar hlé á árásum og fullyrðir að samkomulag sé í sjónmáli Hröpuðu til bana í skoðunarflugi yfir Nazca-línurnar Þrír látnir í sprengingu á veitingastað í Moskvu Ráðherrar Evrópu halda neyðarfund á þriðjudag Harðar deilur innan klerkastjórnarinnar Níu felldir í Kænugarði Kallað eftir skyndifundi innanríkisráðherra ESB Myndir: Tugir þúsunda syntu til Ceuta Skilaboð send úr símanum í blekkingarskyni Hamasliðar samþykkja að afvopnast Tæplega 50 þúsund manns synt til Ceuta á einum sólahring Trump segir Hamas samþykkja að afvopnast og Ísrael að hverfa frá Gasa „Hún drap börnin“ „Það sem hann gerði, ég get aldrei endurgoldið það“ Nítján ára Norðmaður dæmdur fyrir að taka að sér leigumorð á Englandi Bandaríkjamaður sagður smygla vopnum og málaliðum til Súdan Rússnesk stýriflaug líklega lent í Póllandi Segjast hafa gert harða hríð að byltingarverðinum Minnst þrjátíu látnir í Japan Fjögur börn látin eftir loftárásir Rússa á borgir Úkraínu Neitaði að svara spurningum þingmanna Leita enn í rústunum í Japan „Við ætlum að fokking lúskra á þeim“ Stofnandi Telegram ákærður og eftirlýstur í Rússlandi Tuttugu drengir á Gothia Cup týndir Ebólan komin í metstærð á mettíma Nýr forseti hét því að beita hernum gegn glæpum Þrettán látnir hið minnsta í Japan Írönum hótað hefndum eftir árás á herstöð Bandaríkjanna Sjá meira