Enn hækkar olían 27. september 2004 00:01
Aldrei í sögu olíumarkaðarins í New York hefur verð á olíu verið jafn hátt, og sérfræðingar segja vonlítið að það lækki á næstunni. Verðið á olíufatinu komst í 49 dollara og 74 sent á olíumarkaði í New York og hefur aldrei verið hærra frá því að viðskipti hófust á þeim markaði árið 1983. Á evrópskum mörkuðum var hráolíuverðið lítið eitt lægra, eða 46 dollarar og 25 sent, en sérfræðingar virðast nú almennt vera á því að allar líkur séu á því að verðið haldist hátt um ókomna tíð. Þegar hámarki var síðast náð í ágúst töldu margir sérfræðingar að um tímabundna taugaveiklun væri að ræða og að olíubirgðir í heiminum myndu lagast innan tíðar. Taugaveiklun virðist enn á ný vera meginástæða þessa háa verðs, en sérfræðingar sem Reuters ræddi við segja engar umframbirgðir upp á að hlaupa auk þess sem framleiðslugeta helstu olíuríkja sé ekki meiri en svo að rétt duga fyrir núverandi neyslu. Neyslan hefur hins vegar stóraukist í ár, meira en í um aldarfjórðung. Og þegar óeirðir í Nígeríu og valdabarátta á helstu olíuframleiðslusvæðum, óöryggi í Írak og Sádi-Arabíu, hugsanlegt gjaldþrot rússneska olíurisans Yukos og samdráttur í framleiðslu þar, viðkvæmt ástand í Venesúela og skemmdir á olíuborpöllum á Mexíkóflóa í kjölfar fellibylja bætast við, segja sérfræðingar olíuverð í kringum fimmtíu dollara á fatið ekki óeðlilegt. Og þegar vetur gengur í garð á norðurhveli jarðar eru litlar líkur á að verðið lækki, þar sem olía er víða notuð til að kynda hús og fleiri aka til vinnu. Bloomberg- fréttastofan hefur eftir viðmælendum sínum, að taugatitringurinn á olíumarkaði sé nú slíkur, að hvað sem er geti valdið hækkun, og að spennan nú sé mun meiri en í olíukreppunni árið 1973.
Erlent Fréttir Mest lesið Hákon Þór hvarf sporlaust í Búdapest Innlent Sefur í kjallaranum þar sem Heuermann myrti og sundurlimaði fórnarlömb sín Erlent Fullyrðingar um ETS-kerfi og strandsiglingar standast ekki Innlent Lánið í höfn og Harry veitir Trump óumbeðin ráð Erlent Farþegar sjá ekki fólkið sem gegnumlýsir farangurinn Innlent Valdimar Örnólfsson er látinn Innlent Deiluefni jafnað við jörðu í Kópavogi Innlent Reiði yfir pítsupartíi: Auglýst á fundi án samráðs Innlent Fyrirtæki MrBeast sakað um að afsaka kynferðislega áreitni Erlent Vekur spurningar um hugsanlega meðferð við heilabilun Innlent Fleiri fréttir Handtaka hermann sem veðjaði á að Maduro yrði tekinn Sefur í kjallaranum þar sem Heuermann myrti og sundurlimaði fórnarlömb sín Lánið í höfn og Harry veitir Trump óumbeðin ráð Segir vopnahlé framlengt um þrjár vikur Fyrirtæki MrBeast sakað um að afsaka kynferðislega áreitni Skjóta á alla báta sem leggja tundurdufl Með lista yfir góða og slæma bandamenn Fimm í lífshættu eftir lestarslysið Fjórir í lífshættu eftir lestarslys í Danmörku Vélmennið Ace sigrar atvinnumenn í borðtennis Tóku tvö skip og réðust á það þriðja Óvænt jafntefli í kjördæmastríðinu Sækja mannréttindasamtök til saka vegna njósna um öfgamenn Vilja senda afganska bandamenn og fjölskyldur til Kongó Hætta að styrkja Feneyjartvíæringinn vegna þátttöku Rússa Vilja tæpar tvö hundruð billjónir til varnarmála Allir Bretar fæddir eftir 2008 í lífstíðarbann frá tóbaki Framlengir vopnahléið og herkvína Þriðji þingmaðurinn segir af sér á viku Viðræður enn á ís vegna „óásættanlegrar“ hegðunar Ein af hinstu óskum Frans páfa enn óuppfyllt „Jæja, herra Heuermann. Mér skilst að þú hyggist játa fyrir mér þessi morð?“ Starmer vissi ekkert en þrýstingurinn mikill að gefa Mandelson grænt ljós Skaut ferðamann til bana við mexíkóskan pýramída Friðurinn úti á morgun en ekkert ákveðið um viðræður Óttast enn stærri skjálfta í Japan á næstu dögum Vilja festa símabannið í lög Vill þrjátíu milljarða vegna fyllerísfréttar D4vid ákærður fyrir að myrða táningsstúlku Utankjörfundur fer vel af stað og fylgið að setjast Sjá meira