Öryggisráð Sþ samþykkir ályktun 9. júní 2004 00:01
Öryggisráð Sameinuðu þjóðanna samþykkti ályktun um framtíð Íraks samhljóða í gær. Þetta þykir marka þáttaskil en ríkin sem skipa öryggisráðið hafa deilt hart um Íraksmálið. Vonir standa til að þetta þýði að bjartari tímar séu í vændum þar í landi. Deilur hafa staðið um ályktunina svo vikum skiptir en Bandaríkjamenn hafa lagt mikla áherslu á að fá hana samþykkta. Þeir voru einnig reiðubúnir að taka ýmsar kröfur hinna ríkjanna til greina og miðla málum þar til lausn fannst sem allir gátu sætt sig við. Ályktunin veitir nýrri ríkisstjórn Íraks stuðning og sker úr um fullveldi landsins frá og með næstu mánaðamótum. Kveðið er á um kosningar í janúar næstkomandi, að stjórnarskrá verði samin í kjölfarið og svo kosið á ný í janúar árið 2006. Einnig er hlutverk Sameinuðu þjóðanna í uppbyggingarstarfinu skilgreint. Jafnframt er tilgreint að hundrað og sextíu þúsund erlendir hermenn, sem eru við störf í Írak, hafi til þess fullt umboð og leyfi til að grípa til hverra þeirra aðgerða sem nauðsynlegar eru taldar til að halda friðinn. Deilt hafi verið um hlutverk herliðsins, hver hefði vald yfir því og hvort að fullveldi Íraks væru fremur í orði en á borði ef stjórnvöld hefðu ekkert um herliðið að segja. Samkvæmt ályktuninni verður nú komið á fót sérstökum samstarfsstofnunum til að tryggja að Írakar hafi sjálfir eitthvað um málið að segja en forsætisráðherra Íraks, Iyad Allawi, hafði áður greint frá því að stjórnvöld vildu að herliðið yrði áfram í landinu. Að öðrum kosti óttaðist nýja stjórnin allt eins borgarastyrjöld. Þessi niðurstaða þykir bæði góð fyrir Sameinuðu þjóðirnar og Bandaríkjamenn sem vildu fyrir alla muni að ályktunartillaga yrði samþykkt fyrir upphaf fundar leiðtoga stærstu iðnríkja heims sem nú stendur yfir í Savannah í Georgíu-ríki. Nú er búist við því að í dag leggi hann hart að fundarmönnum að gefa eftir skuldir írakska ríkisins sem nema um 120 milljörðum dollara eða tæplega 8600 milljörðum króna.
Erlent Innlent Mest lesið Íris Helga neitar sök Innlent Segir Icelandair ætla að færa störf frá Íslandi Innlent „Skorri Mánasson“ sagður þjást af „source amnesia“ Innlent Tálbeitan sakfelld en aðrir dómar í Gufunesmáli mildaðir Innlent Öðruvísi kappræður í beinni útsendingu með gestum í sal Innlent Árasin einkenndist af talsverðri heift Innlent Mæla með stigvaxandi aðgerðum fámenns teymis sigmanna Innlent Skaut á bíla af handahófi með riffli Erlent Ákæran á hendur Írisi Helgu: Sakaði menn um barnaníð, laug upp á börn og lét maka saur Innlent Segir Kristrúnu dreifa ósannindum um Sjálfstæðisflokkinn Innlent Fleiri fréttir Sakfellingu Murdaughs snúið við og stefnir í ný réttarhöld Úkraínskir drónaflugmenn „rústuðu“ Svíum Hafa lofað Pútín að ná Donbas í sumar Streeting sagður munu skora Starmer á hólm í vikunni Trump fer til Kína: „Við erum tvö stórveldi“ Skaut á bíla af handahófi með riffli PCOS verður PMOS: Fjölblöðrueggjastokkaheilkenni ei meir Frakki lífshættulega veikur af hantaveirunni Skuggaskip sem sökk bar mögulega kjarnakljúfa handa Kim Hafa gert leynilegar árásir í Íran Allir farþegar farnir frá borði og skipinu siglt til Hollands Barnaníðingur frá Ungverjalandi handtekinn á Tenerife Enn eykst þrýstingur á Starmer Fulltrúar Bandaríkjanna og Danmerkur ræða þrjár nýjar herstöðvar á Grænlandi Skaut tvo til bana og særði sex með Kalishnikov-riffli Vopnahléið í öndunarvél eftir „rusl“ svar klerkastjórnarinnar Fjaðrafok vegna ásakana um kynlífsþrælkun á Wall Street ChatGPT sagt hafa ráðlagt byssumanni að myrða börn Hafna því að hantaveiran hafi borist frá hjara veraldar Viðræður virðast stranda á kjarnorkumálunum „Gjörsamlega óásættanlegt“ Frakki sýndi veirueinkenni og allir fimm skikkaðir í einangrun Fallhlífastökkvarar aðstoða með hantasmit á afskekktri eyju „Lífið heldur bara áfram sinn vanagang“ Fyrrverandi ráðherra vill þvinga fram leiðtogakjör Fyrstu farþegar hantaveiruskipsins farnir frá borði á Tenerife Skildu skriðdrekana eftir á víglínunni Loftárásir skekja vopnahlé í Líbanon Yfirmaður WHO hughreystir Tenerife-búa Maður varð fyrir flugvél á flugbraut og lést Sjá meira