Meistaradeildardraumur West Ham lifir enn | Öll úrslit dagsins Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 30. apríl 2016 16:00 Mark Noble skoraði tvívegis gegn West Brom. Vísir/Getty
West Ham á enn möguleika á að komast í Meistaradeild Evrópu á næsta tímabili eftir 0-3 sigur á West Brom á The Hawthorns í ensku úrvalsdeildinni í dag. Heimamenn byrjuðu leikinn betur en tókst ekki að skora. Það gerði Cheikhou Kouyate hins vegar á 34. mínútu þegar hann kom West Ham í 0-1. Fyrirliðinn Mark Noble bætti öðru marki við í uppbótartíma fyrri hálfleiks og hann var svo aftur á ferðinni á 79. mínútu þegar hann skoraði annað mark sitt og þriðja mark West Ham. Hamrarnir eru nú með 59 stig í 5. sæti deildarinnar, fimm stigum frá Arsenal sem er í 4. sætinu. West Brom hefur hins vegar tapað fjórum af síðustu fimm leikjum sínum og er í 13. sæti. Everton vann sinn fyrsta deildarleik síðan 1. mars þegar Bournemouth kom í heimsókn á Goodison Park. Tom Cleverley og Leighton Baines skoruðu mörk Everton í 2-1 sigri. Marc Pugh gerði mark Bournemouth sem hefur tapað þremur leikjum í röð. Eftir þrjá tapleiki í röð með markatölunni 1-12 virtist Stoke City vera komið aftur á sigurbraut gegn Sunderland í dag. Marco Arnautovic kom Stoke í 1-0 á 50. mínútu með sínu ellefta deildarmarki og þannig var staðan fram í uppbótartíma þegar Sunderland fékk vítaspyrnu. Jermain Defoe steig fram og jafnaði metin fyrir Sunderland. Þetta var fjórtánda deildarmark Defoe í vetur en hann hefur reynst liðinu afar dýrmætur. Stoke er í 9. sæti deildarinnar en Sunderland í því átjánda. Lærisveinar Sams Allardyce eru einu stigi frá öruggu sæti eftir sigur Newcastle á Crystal Palace í dag en eiga leik til góða. Aston Villa var í kjörstöðu til að vinna sinn fyrsta leik síðan 6. febrúar gegn Watford á útivelli. Villa-menn voru 1-2 yfir þangað til á lokamínútunni þegar Troy Deeney, fyrirliði Watford, jafnaði metin. Deeney var ekki hættur því hann tryggði sínum mönnum sigurinn þegar hann skoraði öðru sinni þegar þrjár mínútur voru komnar fram yfir venjulegan leiktíma. Þetta var ellefta tap Villa í röð.West Brom 0-3 West Ham 0-1 Cheikhou Kouyate (34.), 0-2 Mark Noble (45+2), 0-3 Noble (79.).Everton 2-1 Bournemouth 1-0 Tom Cleverley (7.), 1-1 Marc Pugh (9.), 2-1 Leighton Baines (64.).Stoke City 1-1 Sunderland 1-0 Marko Arnautovic (50.), 1-1 Jermain Defoe, víti (90+3).Watford 3-2 Aston Villa 0-1 Ciaran Clark (28.), 1-1 Almen Abdi (45+2.), 1-2 Jordan Ayew (48.), 2-2 Troy Deeney (90.), 3-2 Deeney (90+3). Rautt spjald: Aly Cissokho, Aston Villa (73.).Newcastle 1-0 Crystal Palace 1-0 Andros Townsend (59.).
Enski boltinn Mest lesið Bað dómarann um hjálp út af megnri marijúanalykt Sport Myndband ekki fyrir viðkvæma: „Horfi niður og sé höndina mína í einhverri steik“ Íslenski boltinn Enn kynt upp í rígnum: Ekroth keyrði utan í Aron Íslenski boltinn Fallin vonarstjarna Liverpool dæmd en sleppur við fangelsi Enski boltinn City marði Coventry Enski boltinn Stólpagrín gert að leikmanni Ipswich Enski boltinn Sjáðu mörk Isaks í fyrsta leik Barcola Enski boltinn Norðmaðurinn fjórði en reif kjaft: „Hvaða lúsera er ég að keppa við?“ Sport Ótrúleg björgun Völsungs og Grindavík fallin Íslenski boltinn Hágrét í bílnum með mömmu Fótbolti Fleiri fréttir Arbeloa í brasi City marði Coventry Steindautt er Tottenham náði í fyrsta stigið Ramsey bjargaði stigi Fallin vonarstjarna Liverpool dæmd en sleppur við fangelsi Stólpagrín gert að leikmanni Ipswich Yfirgefur Liverpool fyrir Sádi-Arabíu Segist aldrei hafa efast um Gakpo Sjáðu mörk Isaks í fyrsta leik Barcola Isak heitur í sigri Liverpool og strax búinn að jafna síðustu leiktíð Carrick himinlifandi eftir kaup sumarsins Mætir gömlu félögunum í Manchester United í endurkomunni til Englands Fékk bombu í andlitið en meiddist á hné Tróð inn lagatitlum og enginn tók eftir því Sér enn eftir að hafa hafnað tækifærinu „Gangandi martröð“ Stórir póstar utan Meistaradeildarhóps Liverpool Skaðar orðspor dómara: Lék sér að því að flauta ekki upp á grín Tielemans tók vítið með Bruno Martinelli seldur til Sádi-Arabíu Bestu kaupin í sögu enska boltans Barcola í hóp á morgun Liðin í enska boltanum eyddu meira en stærstu deildir Evrópu til saman Liverpool fékk nýjan markvörð Stóðst læknisskoðun og stakk svo af Liverpool hringdi svo hann sagði nei við Chelsea Lækkaði launin til að upplifa drauminn Fengu þrjá á lokadegi Tókst ekki að ræna Belganum Dagskráin í dag: Einn leikur á sviðið út af fyrir sig Sjá meira