Valur - Fram 2-3 | Framarar upp í annað sætið

Valur Páll Eiríksson skrifar
Fram - Víkingur Fram - Víkingur besta deild karla í knattspyrnu.
Fram - Víkingur Fram - Víkingur besta deild karla í knattspyrnu. vísir/Anton

Fram lyfti sér upp í 2. sæti Bestu deildar karla með 2-3 sigri á Val á Hlíðarenda. Öll þrjú mörk Framara komu á sex mínútna kafla í fyrri hálfleik.

Framarar komu fullir sjálfstrausts til leiks í dag með óbreytt lið frá 6-1 sigri á Þór frá Akureyri í síðasta leik. Valsmenn leituðu enn fyrsta sigursins eftir að Chris Brazell tók við af Hermanni Hreiðarssyni og höfðu tapað fyrstu tveimur undir hans stjórn.

Valsmenn voru sprækari til að byrja með og komust yfir þökk sé frábæru marki Lúkasar Loga Heimissonar eftir tíu mínútur. Hann negldi boltann af um 25 metrum í bláhornið til að veita Val forystuna.

Barátta var í leiknum og liðin skiptust á að sækja. Fram tókst hins vegar að jafna um miðjan fyrri hálfleik þegar Ægir Jarl Jónasson gerði frábærlega er hann lyfti boltanum yfir varnarmann Vals á miðjum vellinum og sendi frábæra sendingu inn fyrir á Frey Sigurðsson sem skoraði.

Haraldur Einar Ásgrímsson skoraði annað mark Fram eftir hornspyrnu þar sem heimamenn sváfu á verðinum. Ægir Jarl kassaði hornspyrnu Fred fyrir fætur Haraldar sem skoraði af metra færi.

Skömmu síðar mistókst Bjarna Mark Antonssyni hrapallega að hreinsa boltann frá, hann féll fyrir fætur Fred sem slapp inn fyrir og skoraði þriðja markið. Sex mínútum eftir að Freyr hafði jafnað var staðan orðin 3-1.

Valsmenn sáu ekki til sólar eftir það í fyrri hálfleik og Framarar hefðu hæglega getað bætt við. Munurinn hins vegar aðeins tvö mörk þegar hálfleiksflautið gall.

Valsmenn fengu draumabyrjun á síðari hálfleik þegar Lúkas Logi skoraði öðru sinni þegar aðeins átta mínútur voru liðnar til að minnka muninn í 3-2. Sjö mínútum eftir markið kom Patrick Pedersen inn af bekknum og spilaði sinn fyrsta leik fyrir Val síðan í bikarúrslitum í fyrra.

Þorri Stefán Þorbjörnsson skoraði strax eftir skiptinguna löglegt mark fyrir Fram eftir hornspyrnu sem var ranglega dæmt af þar sem Ægir Jarl Jónasson var metinn hafa handleikið boltann í aðdragandanum. Staðan var því enn 3-2 þegar Bjarni Mark Antonsson var rekinn af velli fyrir að rífa í treyju Freys Sigurðssonar á gulu spjaldi.

Tíu Valsmenn létu ekki deigan síga og voru hættulegir á lokakafla leiksins en varð ekki erindi sem erfiði. Framarar slökuðu á klónni og gerðu úr þessu töluvert spennandi leik sem þeir hefðu átt að klára fyrir hlé.

3-2 sigur Fram niðurstaðan og þeir bláklæddu komnir upp í annað sæti deildarinnar mep 33 stig, sjö á eftir toppliði Víkings, og einu á undan KR.

Valur er í fimmta sæti með 19 stig eftir þrjá tapleiki í röð og hafa leikið tveimur leikjum fleiri en liðin fyrir neðan þá sem eru skammt undan.

Atvik leiksins

Fyrsta mark Framara, sem Freyr Sigurðsson skoraði, breytti leiknum. Fram skoraði í kjölfarið tvö í viðbót á fimm mínútna kafla og kláruðu leikinn. Hefðu átt að bæta frekar við.

Stjörnur og skúrkar

Ægir Jarl öflugur með tvær stoðsendingar og Fred frábær að venju. Lúkas Logi frábær hinu megin með tvö mörk. Albin Skoglund einnig flottur hjá Val.

Varnarmenn Vals ekkert frábærir, Birkir Heimis, Samúel Kári, Veldman og svo þarf Bjarni Mark að taka á sig skúrkinn vegna rauða spjaldsins.

Dómarinn

Ívar Orri dæmdi allan leikinn vel fyrir utan eitt atvik. Það var stórt. Fram hefði átt að komast í 4-2 þegar Þorri Stefán skoraði eftir hornspyrnu á 63 mínútu. Dæmdi hendi sem var aldrei hendi.

Stemning og umgjörð

Það er lágskýjað á Hlíðarenda þessa dagana. Framarar voru líklega fleiri í stúkunni en heimamenn og stór hluti áhorfenda túristar. Margir út úr bænum og erlendis í sumarfríum en það virðist ekki margt trekkja stuðningsmenn Vals að þessi dægrin.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira