Ástin á götunni
1 2 3 4 5 6 7 … 334 ›
Uppgjörið: Valur - Stjarnan 3-2 | Fundinn: Jónatan Ingi Á dögunum var lýst eftir 26 ára gömlum manni. Dökkhærðum, smágerðum, örvfættum og illviðráðanlegum hægri kantmanni að nafni Jónatan Ingi Jónsson. Leitin hefur staðið yfir um hríð. Allar götur síðan 22. ágúst, þegar hann skoraði síðast mark fyrir Val í Bestu deildinni. Hann fannst á Hlíðarenda í kvöld og skilaði liði sínu einkar mikilvægum 3-2 sigri á Stjörnunni sem skýtur Val í Evrópu að ári. Íslenski boltinn 4.10.2025 19:18
Markasúpa í Grafarholtinu Fram og Tindastóll gerðu 3-3 jafntefli í 20. umferð Bestu deildar kvenna í fótbolta. Fyrir leik var vitað að gestirnir frá Sauðárkróki væru fallnir og að nýliðar Fram myndu halda sæti sínu. Íslenski boltinn 4.10.2025 18:08
Sjáðu lygilegar lokamínútur á Meistaravöllum Það gekk á ýmsu undir lok botnslags KR og Aftureldingar í Bestu deild karla síðdegis. Þrjú mörk voru skoruð á 90. mínútu eða síðar og rautt spjald fór á loft. Leiknum lauk 2-2 og fóru bæði lið ósátt frá borði. Íslenski boltinn 4.10.2025 16:58
Uppgjörið: KR - Afturelding 2-2 | Ótrúleg dramatík á Meistaravöllum KR og Afturelding gerðu 2-2 jafntefli í þriðju umferð neðri hluta Bestu deildar karla í dag. Þrjú mörk litu dagsins ljós á lokamínútum leiksins og Elmar Kári Cogic jafnaði metin fyrir gestina á fimmtu mínútu uppbótartímans. Bæði lið eru því enn í fallsætum Bestu deildar karla þegar tvær umferðir eru eftir. Íslenski boltinn 4.10.2025 13:15
Uppgjörið: ÍBV - ÍA 0-2 | Fjarlægjast fallsvæðið með enn einum sigrinum ÍA lagði ÍBV í Vestmannaeyjum í dag 0-2 og eru að fjarlægjast fallsvæðið. Gísli Laxdal Unnsteinsson og Viktor Jónsson skoruðu mörkin í dag og Skagamenn sigldu með stigin í heimahöfn og eru komnir fimm stigum frá fallsvæðinu. Íslenski boltinn 4.10.2025 13:15
Fékk yfir sig vatnsgusu: „Fagna þessu á Gus Gus á morgun“ „Þetta er brilljant. Þetta mun líklega ekki komast inn fyrr en á morgun. En þetta er frábært,“ segir Nik Chamberlain, þjálfari Íslandsmeistara Breiðabliks, sem tryggði sér titilinn með sigri á Víkingi í kvöld. Íslenski boltinn 3.10.2025 21:07
Uppgjörið: Breiðablik 3-2 Víkingur | Breiðablik Íslandsmeistari 2025 Breiðablik er Íslandsmeistari kvenna í fótbolta eftir 3-2 sigur á Víkingi í Bestu deild kvenna á Kópavogsvelli í kvöld. Það þurfti þrjár tilraunir til en loks er það ljóst að Breiðablik ver titil sinn síðan í fyrra. Íslenski boltinn 3.10.2025 17:01
Frammistaðan í deildinni skiptir engu máli í dag Breiðablik hefur leik í deildarkeppni Sambandsdeildar Evrópu á morgun er liðið sækir Lausanne í Sviss heim. Leikmenn Blika leggja slæmt gengi hér heima til hliðar og mæta ákveðnir til leiks. Fótbolti 2.10.2025 09:02
„Síðan koma raddir um að þetta sé ekkert svo alvarlegt“ Ólafur Kristjánsson, sérfræðingur Stúkunnar, fór yfir stöðu mála í Vesturbænum og þá stöðu sem KR finnur sig í þegar þrjár umferðir eru eftir af Bestu deild karla í fótbolta. Íslenski boltinn 30.9.2025 23:01
„Það er allt mögulegt“ Þróttur kom í veg fyrir að Breiðablik myndi tryggja sér Íslandsmeistaratitilinn í kvöld á AVIS-vellinum. Leiknum lauk með 3-2 sigri Þróttar sem styrkir stöðu sína í baráttunni um Evrópusæti. Íslenski boltinn 30.9.2025 20:49
Uppgjör: Víkingur - Valur 3-0 | Sannfærandi heimasigur í rigningunni Víkingur vann 3-0 sigur gegn Val á heimavelli. Linda Líf Boama kom Víkingum yfir í fyrri hálfleik en Ashley Jordan Clark kom inn á í seinni hálfleik og kláraði leikinn með tveimur mörkum. Uppgjör og viðtöl væntanleg. Íslenski boltinn 30.9.2025 18:31
Heimir yfirgefur FH að tímabilinu loknu Heimir Guðjónsson mun hætta sem þjálfari FH þegar tímabilinu í Bestu deild karla í fótbolta lýkur. Frá þessu greinir félagið á samfélagsmiðlum sínum nú í kvöld, þriðjudag. Samningur Heimis rennur út að tímabilinu loknu og hefur verið ákveðið að framlengja hann ekki. Íslenski boltinn 30.9.2025 19:35
Uppgjörið: Þróttur - Breiðablik 3-2 | Aftur mistókst Blikum að tryggja titilinn Þróttur sigraði Breiðablik 3-2 í æsispennandi markaleik á AVIS-vellinum í kvöld. Breiðablik gat með sigri unnið Íslandsmeistaratitilinn en það gekk ekki eftir. Íslenski boltinn 30.9.2025 17:16
Fengu nóg af skeytingarleysi og mismunun Allir leikmenn kvennaliðs ÍR í fótbolta eru hættir hjá liðinu. Þær hafi fengið nóg af sinnuleysi og virðingarleysi stjórnenda þess í sinn garð og kornið sem fyllti mælinn var þegar metnaðarfullir þjálfarar liðsins voru reknir. Íslenski boltinn 30.9.2025 09:31
Uppgjörið: Stjarnan - Víkingur 2-3 | Valdimar Þór fór langleiðina með að tryggja titilinn Víkingur er með níu fingur á Íslandsmeistaratitlinum eftir dramatískan 3-2 útisigur í Garðabænum. Víkingar eru með sjö stiga forystu á toppi deildarinnar þegar þrjár umferðir eru eftir. Uppgjörið og viðtöl væntanleg. Íslenski boltinn 29.9.2025 18:31
„Verðum bara að halda áfram þangað til að þetta er búið“ Víkingar stigu stór skref í átt að Íslandsmeistaratitlinum í kvöld þegar þeir höfðu betur gegn Stjörnunni 2-3 í Bestu deild karla. Íslenski boltinn 29.9.2025 21:48
Sölvi Geir eftir dramatískan sigur í Garðabæ: „Það er alltaf trú“ Sölvi Geir Ottesen, þjálfari Víkings sem situr á toppi Bestu deildar karla í fótbolta, talaði í fyrirsögnum eftir að Valdimar Þór Ingimundarson tryggði 3-2 sigur í Garðabæ. Sigur sem fór langleiðina með að tryggja það að Íslandsmeistaratitilinn fari í Víkina þegar mótinu lýkur. Íslenski boltinn 29.9.2025 21:32
Davíð Smári hættur fyrir vestan Davíð Smári Lamude er hættur sem þjálfari bikarmeistara Vestra í Bestu deild karla í fótbolta. Íslenski boltinn 29.9.2025 19:01
Þjálfari Fram: „Hvað er árið aftur?“ Óskar Smári Haraldsson, þjálfari Fram í Bestu deild kvenna í fótbolta, er allt annað en sáttur með þann aðila sem sér um samfélagsmiðla Bestu deildar kvenna. Íslenski boltinn 29.9.2025 18:31
Frá Fram á Hlíðarenda Gareth Owen hættir í þjálfarateymi Fram og færir sig yfir til Vals. Hann verður yfirmaður knattspyrnumála á Hlíðarenda. Íslenski boltinn 29.9.2025 12:01
„Erfitt að kveðja allt fólkið í Krikanum“ Arna Eiríksdóttir yfirgaf herbúðir FH og skrifaði undir hjá Vålerenga fyrir tveimur vikum síðan. Hún hefur farið geyst af stað með nýju liði en kemur til með að sakna fólksins í Kaplakrika. Fótbolti 26.9.2025 08:01
Sjáðu brotið sem Blikar eru brjálaðir yfir Slæm meiðsli Elínar Helenu Karlsdóttur settu svartan blett á leik Breiðabliks og Stjörnunnar í Bestu deild kvenna í fótbolta í kvöld. Elín var sárþjáð og fór af velli með sjúkrabíl. Íslenski boltinn 25.9.2025 22:04
Úr svartnætti í sólarljós Þróttur sigraði Víking 3-2 í þvílíkri dramatík í Laugardalnum í kvöld. Þróttur sem var einum manni færri og einu marki undir, tókst að skora tvö mörk í uppbótartíma leiksins. Þjálfari Þróttara var eðlilega sáttur eftir leik. Íslenski boltinn 25.9.2025 21:01
Spilaði fyrsta leikinn í tvö ár: „Er í gervigrasskóm og hef ekki snert gras síðan 2023“ „Tilfinningin er bara ótrúlega góð. Ég var búin að mikla þetta mikið fyrir mér í morgun, enda langur tími síðan síðast en bara gott að vera komin inn í þetta og bara ágætis leikur til að byrja á,“ sagði Arna Sif Ásgrímsdóttir, varnarmaður Vals, sem spilaði sinn fyrsta leik í Bestu deildinni síðan 2023 í dag í 1-1 jafntefli FH og Vals. Íslenski boltinn 25.9.2025 18:47
Högg fyrir KR-inga í fallbaráttunni Galdur Guðmundsson, leikmaður KR, er frá út leiktíðina vegna lærameiðsla. KR er í harðri fallbaráttu og verður án krafta unga mannsins sem var keyptur frá Danmörku í sumar. Íslenski boltinn 25.9.2025 17:45
Úr efstu deild í fótbolta á HM í utanvegahlaupum: „Ætla að njóta sársaukans“ Halldór Hermann Jónsson lék yfir hundrað leiki í efstu deild í fótbolta á sínum tíma og varð bikarmeistari með Fram. Í dag er hann í hópi fremstu utanvegahlaupara Íslands og keppir á HM á morgun. Sport 25.9.2025 12:01
Hvergi nærri hætt: „Markmiðið var alltaf að sýna gömlu góðu Berglindi“ Berglind Björg Þorvaldsdóttir kveðst hvergi nærri hætt en hún er langmarkahæsti leikmaður Bestu deildar kvenna og varð um helgina markahæst í sögu Breiðabliks. Hún bankar hressilega á dyrnar hjá landsliðinu með framgöngu sinni í sumar. Íslenski boltinn 25.9.2025 08:02
Rúnar Már og Amin missa af stórleiknum upp á Skaga Rúnar Már Sigurjónsson og Amic Cosic missa af fallbaráttuslag ÍA og KR í neðri hluta Bestu deildar karla í fótbolta. Alls voru sjö leikmenn úr Bestu deildinni úrskurðaðir í bann þegar Aga- og úrskurðarnefnd Knattspyrnusambands Íslands kom saman í ag. Íslenski boltinn 23.9.2025 19:17
Viðurkennir að vítið sem Víkingur fékk hafi ekki átt að standa Þóroddur Hjaltalín, fyrrverandi dómari og starfsmaður á innanlandssviði Knattspyrnusambands Íslands, hefur staðfest að vítaspyrnan sem Víkingur fékk í 2-1 sigri sínum á Fram í Bestu deild karla hefði ekki átt að standa. Íslenski boltinn 22.9.2025 23:31
Höskuldur um vítaspyrnudóminn umdeilda: „Grimmt að dæma hendi á þetta“ „Þetta var mjög súrt sko. Fannst við koma á Hlíðarenda og taka frumkvæðið. Hefði viljað fá meira úr fyrri hálfleiknum sérstaklega,“ sagði Höskuldur Gunnlaugsson, fyrirliði og markaskorari Breiðabliks, við Gunnlaug Jónsson eftir að hans menn gerðu 1-1 jafntefli á Hlíðarenda í sannkölluðum stórleik í Bestu deild karla í fótbolta. Íslenski boltinn 22.9.2025 21:36