Erlent
Vilja leyfa lítil vændishús í Bretlandi Breska ríkisstjórnin hyggst leyfa rekstur lítilla vændishúsa í þeirri viðleitni að tryggja betur öryggi þeirra áttatíu þúsund vændiskvenna sem starfa í landinu. Samkvæmt fyrirætlan stjórnarinnar mun tvær til þrjár vændiskonur geta fengið leyfi til að starfrækja vændishús. Samhliða þessu verður ráðist harðar gegn vændi á götum úti þar sem viðskiptavinir vændiskvenna eiga yfir höfði sér sektir. Erlent 19.1.2006 07:59
Fangelsisvist fyrir að selja boli? Forráðamenn dansks fataframleiðslufyrirtækis gætu átt yfir höfði sér tíu ára fangelsi fyrir að setja á markað boli með merkjum tveggja skæruliðahreyfinga, en tæpur fjórðungur söluandvirðis bolanna rennur til hreyfinganna. Erlent 19.1.2006 07:37
Reyndu að féfletta skyndibitastað Hjón sem lögðu á ráðin um að féfletta skyndibitastað í Bandaríkjunum, með afskornum fingri í skál af chili, hafa verið dæmd í 9 og 12 ára fangelsi fyrir athæfið. Það var fyrir tæpu ári sem Anna Ayala sagðist hafa bitið í fingurinn þegar hún fékk sér af chilinu á skyndibitastaðnum Wendy´s. Erlent 19.1.2006 07:31
Miklar vetrarhörkur í Rússlandi Að minnsta kosti tuttugu og fjórir hafa látist úr kulda í miklum vetrarhörkum sem geisa nú í Rússlandi. Um þrjátíu stiga frost er í höfuðborginni Moskvu og frostið fer allt niður í fimmtíu stig í Síberíu. Erlent 19.1.2006 07:54
Blásýra lak út í Saxelfi Vélabilun í efnaverksmiðju í borginni Kolin í Tékklandi olli því að töluvert af blásýru lak í ána Saxelfi. Mörg tonn af fiski hafa drepist í ánni en ekki liggur fyrir á þessari stundu hvað tjónið er mikið fyrir fiskimenn á svæðinu. Erlent 19.1.2006 07:48
Georgía herðir á aðgerðum gegn fuglaflensu Yfirvöld í Georgíu hafa hert á aðgerðum sínum til að koma í veg fyrir útbreiðslu fuglaflensu þar í landi. Ákveðið hefur verið að setja á stofn miðstöð þaðan sem reynt verður að hefta útbreiðslu hins hættulega H5N1 afbrigðis sjúkdómsins í öllum héruðum landsins Erlent 19.1.2006 07:26
Enn eitt dauðsfallið af völdum fuglaflensu Óttast er að ellefu ára gömul stelpa hafi látist af völdum fuglaflensu í Austur-Tyrklandi í gær. Talið er að stúlkan hafi sýkst af hinu hættulega H5N1 afbrigði veirunnar. Sýni voru send til höfuðborgarinnar Ankara til að fá þetta staðfest. Stúlkan var yngst 10 systkina og eina stelpan. Erlent 19.1.2006 07:20
Vilja að deilan fari fyrir Öryggisráðið Bretar, Frakkar og Þjóðverjar hafa formlega farið fram á að deilan um kjarnorkuáætlun Írana verði lögð fyrir Öryggisráð Sameinuðu þjóðanna. Alls óvíst er að það verði samþykkt hjá Alþjóða kjarnorkumálastofnuninni. Erlent 18.1.2006 18:09
Lagt á ráðin um að ræna syni Blairs Bresk lögregla hefur komið upp um ráðabrugg um að ræna Leo, yngsta syni Tonys Blair, forsætisráðherra Bretlands. Breska götublaðið Sun greindi frá þessu í morgun. Erlent 18.1.2006 13:15
Fílabeinsströndin rambar á barmi borgarastyrjaldar Fílabeinsströndin rambar á barmi borgarastyrjaldar. Þetta segja uppreisnarmenn í landinu en töluvert hefur verið um mótmæli og árásir á friðargæsluliða Sameinuðu þjóðanna þar í landi síðustu dag. Erlent 18.1.2006 13:06
Gazprom dregur úr gassölu til Evrópu Rússneska gasfyrirtækið Gazprom hefur minnkað gasflæði til Ungverjalands og Bosníu-Hersegóvínu svo fyrirtækið geti annað innlendri eftirspurn en afar kalt er í Rússlandi þessa dagana. Erlent 18.1.2006 12:51
Milosevic óskar eftir læknisaðstoð frá Moskvu Stjórnvöld í Moskvu skoða nú hvort þau geti orðið við beiðni frá Slobodan Milosevic, fyrrverandi forseta Júgóslavíu, þess efnis að hann fái að leita til rússneskra lækna vegna hjartveiki sinnar. Erlent 18.1.2006 12:47
Kauphöllinni í Tokyo lokað fyrr en vanalega Kauphöllinni í Tokyo var lokað í morgun tuttugu mínútum fyrr en venja er. Þetta er í fyrsta sinn sem það er gert en óttast var að tölvukerfið í kauphöllinni kynni að hrynja vegna mikilla viðskipta. Erlent 18.1.2006 09:38
Japönum fækkar Japönum fækkaði í fyrra, í frysta sinn síðan árið 1945.Fæðingatíðni í landinu fer ört lækkandi og er talið að hún fari allt niður í eitt og eitt fjórða barn á konu á þessu ári, en til samanburðar eignast hver íslensk kona að meðaltali rúmlega tvö börn á ævi sinni. Erlent 18.1.2006 09:30
Hóta að drepa bandarískan blaðamann Uppreisnarmenn í Írak hafa hótað að taka bandarískan blaðamann sem þeir hafa í haldi af lífi ef ekki verður orðið við kröfum þeirra um að öllum konum í írökskum fangelsum verði sleppt innan þriggja sólarhringa. Arabíska sjónvarpsstöðin Al-Jazeera greindi frá þessu í gær og birti myndband af konunni en gaf ekki upp hvernig það hefði borist stöðinni. Erlent 18.1.2006 08:04
Japönum fækkar í fyrsta sinn í rúm 60 ár Japönum fækkaði í fyrra, í fyrsta sinn síðan árið 1945. Fæðingatíðni í landinu fer ört lækkandi og er talið að hún fari allt niður í 1,25 börn á konu á þessu ári, en til samanburðar eignast hver íslensk kona að meðaltali rúmlega tvö börn á ævi sinni. Erlent 18.1.2006 07:44
Uppreisnarmenn handteknir í Írak Danskar og írakskar hersveitir handtóku þrjátíu og sex uppreisnarmenn í víðtæku áhlaupi á vígi uppreisnarmanna norðan við borgina Basra í Írak á mánudaginn. Erlent 18.1.2006 09:14
Hjálparstarf í Kasmír lamað Dynjandi úrkoma og aurskriður hafa lamað hjálparstarf í fjöllum Kasmír síðan um helgina. Eftirlifendur jarðskálftans sem hafast við hátt uppi í fjöllum eru algerlega afskiptir. Erlent 18.1.2006 09:10
Fuglaflensufaraldur getur dregið milljónir til dauða Sameinuðu þjóðirnar og Alþjóðabankinn hafa varað þjóðir heims við því að hugsanlegur fuglaflensufaraldur geti dregið milljónir til dauða og telja að þörf sé á 90 milljörðum dollara á næstu þremur árum til að takast á við flensuna í fátækari ríkjum heims. Erlent 18.1.2006 09:05
Mannfall og mannrán í Írak Íraskir byssumenn myrtu í morgun tíu lífverði og rændu verkfræðingi frá Malawi í höfuðborginni Baghdad. Erlent 18.1.2006 09:03
Friðargæsluliðar drepnir í Haítí Tveir jórdanskir friðargæsluliðar voru skotnir til bana og sá þriðji særðist í Port-au-Prince, höfuðborg Haítí í gær. Ráðist var á þá á varðstöð í borginni en þar hefur verið róstursamt að undanförnu. Erlent 18.1.2006 07:21
Komið upp um áform um að ræna syni Blairs Bresk lögregla hefur komið upp um ráðabrugg manna um ræna Leo, yngsta syni Tonys Blairs, forsætisráðherra Bretlands. Frá þessu greinir götublaðið Sun. Erlent 18.1.2006 07:24
Fuglaflensa hugsanlega komin upp í Írak Grunur leikur á að mannskæði stofn fuglaflensunnar sé kominn upp í norðurhluta Íraks. Embættismaður úr röðum Kúrda sagði í morgun að verið væri að rannsaka hvort rekja mætti nýlegt dauðsdall í Norður-Írak til fuglaflensunnar. Erlent 18.1.2006 07:28
Bandarísk blaðakona í haldi andspyrnumanna Arabíska sjónvarpsstöðin Al-Jazeera sýndi í gærkvöldi myndband sem sýnir bandaríska blaðakonu sem er í haldi andspyrnumanna í Írak. Ekkert hafði heyrst til Jill Carroll síðan henni var rænt 7. janúar síðastliðinn í Bagdað. Myndbandið er um 20 sekúndur. Með því fylgdu þau skilaboð að bandarísk stjórnvöld hefðu 3 sólahringa til að láta lausar þær írösku konur sem væru í fangelsi í Írak ellegar yrði blaðakonan myrt. Erlent 18.1.2006 06:52
Eyða kókaplöntum í Kólombíu Þúsundir hermanna voru sendir í þjóðgarð í Mið-Kólumbíu í gær til að eyða kóka plöntum sem þar eru að finna og notaðar eru til kókaínframleiðslu. Svæðið þar sem plönturnar er að finna er 4.600 hektarar og ráða FARC skæruliðar þar lögum og lofum. Erlent 18.1.2006 06:55
Dómstóll í Tælandi dæmir tvo menn Dómstóll í Tælandi hefur sakfellt tvo þarlenda fiskimenn fyrir að hafa nauðgað og myrt breskum ferðamanni. Mennirnir, sem eru báðir á þrítugsaldri, réðust á rétt rúmlega tvítuga konu á ferðamannaströnd á eyjunni Koh Samui. Mennirnir eiga yfir höfði sér dauðadóm og hefur Tahksin Shinawatra, forsætisráðherra Tælands, hvatt til þess að þeir hljóti þyngstu refsingu fyrir ódæðið. Glæpurinn hafi skaðað ímynd landsins og kunni að hafa afar slæm áhrif á ferðamannaiðnaðinn á Tælandi. Erlent 18.1.2006 06:47
Leyfa líknardráp Hæstiréttur í Bandaríkjunum staðfesti í gær lög sem leyfa læknum í Oregon ríki að aðstoða dauðvona sjúklingum að deyja. Þar með hafnaði rétturinn tilraunum Bush Bandaríkjaforseta til að refsa læknunum og banna þeim að fremja líknardráp. Sex dómarar af níu staðfestu lögin en meðal þeirra þriggja sem voru í minnihluta var John Roberts, nýskipaður forseti réttarins. Niðurstaðan er sögð áfall fyrir Bandaríkjaforseta Erlent 18.1.2006 06:50
Dynjandi úrkoma og aurskriður í fjöllum Kasmírs Dynjandi úrkoma og aurskriður hafa lamað hjálparstarf í fjöllum Kasmír-héraðs síðan um helgina. Eftirlifendur jarðskálftans sem hafast við hátt uppi í fjöllum eru algerlega afskiptir. Erlent 17.1.2006 21:55
Bandaríkjastjórn fær 72 klukkustundir til að láta írakskar konur lausar úr fangelsum Mannræningjar, sem rændu bandarískum friðargæsluliða fyrr í mánuðinum, hafa gefið Bandaríkjastjórn 72 klukkustundir til þess að láta allar Írakskar konur lausar úr fangelsum. Erlent 17.1.2006 21:30
Dönsk kona úrskurðuð í gæsluvarðhald Síðdegis í dag var dönsk kona úrskurðuð í tveggja vikna gæsluvarðhald grunuð um að hafa valdið dauða 8 ára sonar síns. Erlent 17.1.2006 19:37