Skaftárhreppur

Skaftárhreppur

Mannfjöldi: 627 (2025). Flatarmál: 6.943 ferkílómetrar. Stærstu byggðakjarnar: Kirkjubæjarklaustur, Hörgárlandshreppur, Skaftártunguhreppur, Leiðvallahreppur, Álftavershreppur.


Fréttamynd

Bleikjuvinnslunni breytt í brugg­hús

Í byggingu sem áður hýsti vinnslustöð Klausturbleikju er núna verið að innrétta brugghús. Oddviti Skaftárhrepps segist treysta því að bjórinn verði jafngóður og bleikjan var.

Innlent

Fréttir í tímaröð

Fréttamynd

„Það er brjálað að gera með stóru B-i“

Svo mikill gestagangur er á Kirkjubæjarklaustri að gripið hefur verið til lokunar á klukkustundarfresti í sundlaug bæjarins. Níu hundruð manns sóttu laugina í gær. Rekstraraðilar tveggja tjaldstæða á Suðurlandi segjast varla muna eftir öðrum eins gestagangi, sem þeir rekja beint til veðurblíðu á Suðurlandi og rigningar á Suðvesturlandi. 

Innlent
Fréttamynd

Heiða Guð­ný á Ljótarstöðum fékk ó­vænt kið

Heiða Guðný Ásgeirsdóttir á Ljótarstöðum í Skaftártungu er sérstaklega kát þessa dagana því hún eignaðist geitina Kiðu Sól nýlega en nokkrum dögum eftir það bar Kiða Sól fallegu kiði, sem fékk strax nafnið Krummi geitungur.

Innlent
Fréttamynd

Rúta hafnaði utan vegar og valt

Lítil rúta með sjö farþega fór út af vegi og valt austan við Kirkjubæjarklaustur í morgun. Farþegar voru fluttir á heilsugæslustöð á Kirkjubæjarklaustri með minniháttaráverka. Mikil hálka er á Suðurlandi og er hringvegurinn lokaður milli Klausturs og Freysness.

Innlent
Fréttamynd

Skaftárhlaup enn yfir­standandi

Skaftárhlaup er enn yfirstandandi og stöðugt. Í tilkynningu frá Veðurstofunni segir að úrkoma og leysing á svæðinu hafi bætt að hluta í rennsli sem mælist rúmlega 160 rúmmetrar á sekúndu (m3/s) við Sveinstind. Það samsvari meðalrennsli að sumri.

Innlent
Fréttamynd

Vatnshæðin að­eins lækkað í Skaft­á

Hlaupið heldur áfram á svipuðum hraða í Skaftá. Náttúruvársérfræðingur segir vatnshæð um 180 sentímetra og að Veðurstofan eigi ekki von á því, eins og staðan er núna, að tjónið verði verulegt af hlaupinu. 

Innlent
Fréttamynd

Hlaup hafið í Skaft­á

Hlaup er hafið í Skaftá. Björgvin Karl Harðarson bóndi á Hunkubökkum í Skaftárhreppi tók eftir miklum breytingum á ánni milli daga. Sérfræðingar Veðurstofunnar segja hlaupið minniháttar og von sé á tilkynningu.

Innlent
Fréttamynd

Ungt fólk í bílnum og annað al­var­lega slasað

Rannsókn alvarlegs umferðarslyss sem varð á hringveginum austan við Kirkjubæjarklaustur í gær stendur enn yfir og fólkið sem var í bílnum sem valt út af veginum er enn á sjúkrahúsi eftir því sem lögreglan á Suðurlandi kemst næst, og er annað þeirra talsvert mikið slasað.

Innlent
Fréttamynd

Mikil og góð stemning á upp­skeru­há­tíð Skaftárhrepps

Íbúar í Skaftárhreppi og gestir þeirra ætla að njóta helgarinnar með uppskeru og þakkarhátíð þar sem boðið er upp á fjölbreytta dagskrá fyrir alla aldurshópa. Í dag er til dæmis opið hús á nokkrum stöðum og barnaskemmtun í íþróttahúsinu á Kirkjubæjarklaustri.

Lífið
Fréttamynd

Góð­hjartaður dýrahirðir og tæknigúrú

Á ferðum sínum um landið þegar RAX vann fyrir Morgunblaðið, hittu hann og blaðamaðurinn Guðni Einarsson margar merkilegar og áhugaverðar týpur. Þeirra á meðal var hinn tækisinnaði Jóhann Þorsteinsson á Sandaseli. Hann hafði frá unga aldri sýnt mikinn áhuga á tækjum og tækni.

Lífið
Fréttamynd

Fjalla­baks­leið syðri lokuð vegna vatnavaxta

Lokað hefur verið fyrir umferð um Fjallabaksleið syðri norðan Mýrdalsjökuls. Ástæðan eru miklir vatnavextir og breytingar á árfarvegi. Um er að ræða vegakaflann frá Hólmsá að Mælifelli. Allur akstur er bannaður.

Innlent
Fréttamynd

Skógasafn vill Gunnfaxa en beðið svara eig­enda

Stjórn Skógasafns hefur lýst sig tilbúna að taka við Flugfélagsþristinum Gunnfaxa í sýningarhæfu ástandi til varðveislu á Samgöngusafninu á Skógum. Áhugafélagið „Vinir Gunnfaxa“ bíður núna svara frá eigendum flugvélarinnar, landeigendum Sólheimasands, um hvort þeir séu tilbúnir að láta hana af hendi til safnsins.

Innlent