Hefur kvartað yfir stuðningsleysi í flokknum Oddur Ævar Gunnarsson og Bjarki Sigurðsson skrifa 15. október 2026 15:47 Jón Gnarr ræddi úrsögn sína við Vísi. Vísir/Anton Brink Jón Gnarr segir pólitískan ágreining innan þingflokks Viðreisnar hafa orðið til þess að hann hafi sagt sig úr þingflokknum og nefnir sérstaklega mál sem tengjast börnum. Hann segist hafa íhugað að segja sig úr þingflokknum síðan í sumar, ákvörðunin tengist ekki neinum embættum. Hann sé enn í Viðreisn og eigi ekki samleið með öðrum flokkum en útilokar ekki að stofna eigin flokk síðar meir.
Þetta segir Jón í samtali við Vísi. Líkt og komið hefur fram greindi hann frá því við upphaf þingfundar í dag að hann hefði sagt sig úr þingflokki Viðreisnar. Jón segir að hann telji sig ekki eiga samleið með þingflokki Viðreisnar og hafi séð sig knúinn til að gera eitthvað í því. „Það eru nokkrar leiðir, annað hvort segja af sér þingmennsku, fá inn varamann, sitja bara og þegja einhvers staðar úti í horni og láta tímann líða. Ég er bara ekki þannig maður, ég er ekki quitter. Ég klára það sem ég byrja á og mér finnst ég tala fyrir mikilvægum málum, ég hef mikilvæga rödd og mér finndist það sóun ef það glataðist. Og eða þá að ganga í einhvern annan flokk, ég hef ekkert í það að gera skilurðu, ég hef bara kunnað mjög vel við mig í Viðreisn, þannig þetta er í rauninni afarkostur, þetta er það eina sem ég get gert að vera þingmaður utan þingflokks, sjálfstæður þingmaður og þá get ég haldið áfram að vinna að þeim málum sem ég brenn fyrir.“ Hann segist hafa hugsað málið síðan í sumar. Ákvörðunin sé sú erfiðasta sem hann hafi tekið, hann finni fyrir létti en líka sorg. Honum finnist persónulega vænt um flokkinn og leiðinlegt ef hann sé að valda einhverjum stærri skaða. „Svo er þarna ákveðin líka áfallasaga, það hafa komið upp mörg mjög erfið persónuleg vandamál og áföll og fólk tekst misjafnlega á við áföll, það bara gerir það, það eru engin rétt viðbrögð, ég hef sagt það að ég er ekki að fara í gremju eða persónulegum ágreining við neina manneskju. Ef það er einhverjum sem líður virkilega illa yfir þessu þá er það ég.“ Áttu í ágreiningi við einhverja innan þingflokks Viðreisnar? „Það hefur verið pólitískur ágreiningur við forystu þingflokksins um pólitískar áherslur. Ég hefði viljað sjá meiri áherslu á frelsi og einstaklingsfrelsi og síðan kannski líka málefni barna í alvarlegum vanda sem er bara mál sem ég hef brunnið fyrir og reynt að beita mér fyrir. Það hefur vissulega margt áunnist í þeim málaflokki en ég hef stundum kvartað yfir því að ég hafi ekki alveg verið að fá backup í þeim málum. Þetta er svolítið sittlítið af hvoru.“ Þú heldur þessum póstum sem þú varst með áður sem þingmaður Viðreisnar, þetta ríkisstjórnarsamstarf, er það eitthvað sem fór illa í þig? „Nei það finnst mér ekki. Ég hef átt gott samstarf við flokkana í meirihluta og líka átt ánægjuleg samskipti við þingmenn í öðrum flokkum. Ég hef reynt að beita mér í ákveðnum málum en líka passað upp á að það verði ekki eitthvað pólitískt skuespil, eða reynt að passa það. En auðvitað er málefnanlegur ágreiningur á milli þessara flokka og þá þarf stundum að miðla málum og ég er ekkert alltaf sammála því.“ Þú nefnir að þetta hafi byrjað í sumar, bersýnilega var þjóðaratkvæðagreiðsla um Evrópusambandið, situr hún eftir í þér, að við séum ekki á leið inn í Evrópusambandið? „Ég hafði persónulega ekki, hvað á maður að segja, eldheitar skoðanir á því máli. Mér fannst að það hefði mátt standa betur að þessu, þetta hefði mátt vera með skipulagðari hætti og síðan eftir að niðurstaðan lá fyrir þá fannst mér líka bara mjög mikilvægt fyrir flokkinn að skilgreina sig og stíga fram með skýrum hætti. En þetta var náttúrulega fyrir margt fólk sem er að starfa í þessum flokki mjög mikið áfall, mikill pólitískur ósigur. Ég er ekki að reiðast fólki sem er í áfalli yfir einhverju af því það er ekki að performera af því það er í áfalli, ég er ekki þannig maður en ég get heldur ekki setið í einhverju sem mér finnst ekki vera samkvæmt minni sannfæringu, ég bara get það ekki.“ Jón gengur í pontu og í bakgrunni er Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir formaður Viðreisnar hugsi.Vísir/Anton Brink Þú nefnir áfall áðan, eru fleiri áföll en niðurstaðan úr ESB kosningunum? „Já já það eru bara búin að vera erfið áföll. Ég er ekki fyrsti þingmaðurinn sem segir sig úr þingflokki og það hafa komið upp mjög flókin og erfið persónuleg mál, veikindi og það hefur alltaf sitt að segja þó það sé oft horft framhjá því hvað áföll og veikindi geta haft djúpstæð áhrif.“ Ekki á höttunum eftir embættum Þú ert áfram í Viðreisn þó þú segir þig úr þingflokknum? „Já ég er áfram í Viðreisn, ég er liberal demókrati og Viðreisn er frjálslyndur lýðræðisflokkur og mér finnst ég eiga heima þar. Ég á mesta pólitíska samleið með Viðreisn og ég á ekki pólitíska samleið með núverandi stjórnmálaflokkum á Íslandi.“ Ekki heldur þingflokki Viðreisnar þó þú sjáir þig með flokknum sjálfum? „Nei. Mér finnst það ógeðslega sorglegt en þannig er það bara.“ Eru þetta persónulegar deilur að þú hafir ekki fengið embætti sem þú vildir sinna? „Nei. Það kemur mörgum á óvart en ég er ekki að sækjast eftir neinu. Fólk er eitthvað, en ef þú hefðir orðið ráðherra? Nei, ég hef engan sérstakan áhuga, ég veit alveg hvað það þýðir að lokast inni í einhverju byggingu eða ráðuneyti, ég var borgarstjóri og ég er ekkert að sækjast eftir neinum frama eða metorðum, ég er hlaðinn metorðum og viðurkenningum fyrir allskonar hluti og ég er með gott track reckord, eiginlega allt sem ég hef gert hefur heppnast vel og betur en það. Ég vil einlæglega fá að vera hluti af hópi sem ég trúi að sé að gera gagn.“ Hefði ekki verið talað um annað allt kjörtímabilið Þá nefnir Jón Gnarr þjóðaratkvæðagreiðsluna aftur um ESB í sumar. Hann segist hafa hugsað að ef tillagan hefði verið samþykkt þá hefði ekki verið talað um neitt annað það sem eftir lifir kjörtímabilsins. „Þá er jafnvel ennþá minni salur fyrir minni rödd. Hvað með einhverja krakka, skilurðu? Nú eru tvö ár liðin frá brunanum á Stuðlum þar sem sautján ára drengur dó og það er verið að rannsaka það núna sem manndráp á gáleysi. Mér finnst þetta svívirða að við séum ekki að taka þessi mál miklu fastari tökum. Það er þá sem ég fírast allur upp.“ Þorgerður Katrín horfir á eftir þingflokksmanni sínum sem ætlar þó að vera áfram í flokknum.Vísir/Anton Brink Þú hefur reglulega lagt fram frumvarp um að ríkið byrji með meðferðarheimili fyrir ungmenni í Skagafirði, því hefur ítrekað verið hafnað af ráðuneytinu, ráðherrar hafa sagst ekki viljað ráðast í það, er það það sem lætur þetta enda svona? „Ekki það per se. En kannski er það ákveðin birtingarmynd. En ég vil líka segja að það hefur mjög margt gott áunnist í þessum málaflokki og líka fyrir mína tilstuðlan. Nú eru í samráðsgátt drög að nýjum barnaverndarlögum og fingrafar mitt er alveg þar. Það hafa orðið úrbætur en ég hefði viljað sjá meira. Betur má ef duga skal.“ Telur sig hafa meiri tíma í eigin mál Þú hefur verið þingmaður í flokki í meirihluta, hvað sérðu fram á að áorka sem þingmaður utan flokka? „Nú er ég bara svolítið eins og Chancey Gardner í Being there. Ég bara fóta mig í nýjum raunveruleika en það er mitt mat að nú hafi ég jafnvel ennþá meiri tíma til þess að einbeita mér að þessum málum þar sem ég er í rauninni ekki að taka þátt í innra starfi þingflokksins.“ Hann segir fólk hafa varað hann við því að þetta væri mikil pólitísk áhætta. Þetta væri andlegur dauði að vera þingmaður utan þingflokks. „En ég óttast það ekki. Ég hef oft verið á verri stað og þurft að bjarga mér sjálfur. Mér finnst það á margan hátt bara spennandi.“ Það eru dæmi um þingmenn sem hafa setið utan flokka um tíma en svo gengið til liðs við annan flokk en þeir voru í upprunalega. Útilokarðu að það gerist? „Já, ég sé engan núverandi flokk sem ég myndi ganga í. Þetta snýst líka svo mikið um að þekkja fólk og byggja upp vináttu og byggja upp traust og skilning á því sem fólk er að pæla. Það tekur bara langan tíma þannig ég er ekki að fara að ganga í einhvern flokk þar sem ég þekki ekki helminginn af fólki og síðan á ég ekki pólitíska samleið með neinum flokki sem er til á Íslandi, öðrum en Viðreisn.“ Jón Gnarr í sæti sínu á meðan þingforseti tilkynnir breytinguna. Hann steig í framhaldi í pontu Alþingis og áréttaði afsögn úr þingflokknum.Vísir/Anton Brink Þú talar um að það sé ekki til flokkur sem þú værir til í að vinna með, sérðu fyrir þér að stofna eigin flokk? „Ég hef stofnað flokk og tekið þátt í stofnun tveggja annarra stjórnmálaflokka. Þannig það kæmi alveg hugsanlega til greina. Ég hef ekki tekið ákvörðun um það, ég hef bara hugsað um kosti og galla og hvernig mál þróast. En ég útiloka heldur ekki að ganga aftur til liðs við Viðreisn, ég útiloka það ekki heldur.“ Ég ræddi stuttlega við Guðmund Inga áðan, hann benti á að það taki tvo til þess að stofna þingflokk. Gætuð þið stofnað þingflokk saman? „Guðmundur Ingi er toppmaður en við eigum held ég ekki samleið í pólitík.“ Fréttin hefur verið uppfærð.
Viðreisn Alþingi Mest lesið Jón Gnarr segir sig úr þingflokki Viðreisnar Innlent „Þessi ákvörðun mun kosta mörg mannslíf“ Erlent Lentu í öldugangi við Reynisfjöru Innlent Anna Valdimarsdóttir er látin Innlent Vilja nýjan vindmæli: „Þökin fara á loft, falla niður og splundrast“ Innlent Niðurstaðan hafi áhrif á framtíð Eflingar innan ASÍ Innlent Lögreglan lýsir eftir Halldóri Inga Innlent Bækur Rooney teknar úr sölu í Bretlandi Erlent „Þetta situr náttúrulega í manni“ Innlent Krefjast milljarða vegna Barnaskóla Kársness Innlent Fleiri fréttir Hefur kvartað yfir stuðningsleysi í flokknum Krefjast milljarða vegna Barnaskóla Kársness Lögreglan lýsir eftir Halldóri Inga Hafa sett upp keðjur og bönd við Reynisfjöru Jón Gnarr segir sig úr þingflokki Viðreisnar „Þetta situr náttúrulega í manni“ Nauðsynlegt að ríkið fjármagni fleiri stöðugildi Niðurstaðan hafi áhrif á framtíð Eflingar innan ASÍ Siglfirðingar standa saman eftir áfall gærdagsins og spenna á ASÍ þingi Íslenskir kælar teknir af netinu eftir árás í Frakklandi Mótmælir harðlega vítissódatilraunum í Hvalfirði Biðlar til fólks að fara varlega í vetrarfærðinni Auglýsa eftir forstjóra Miðstöðvar um öryggisráðstafanir Anna Valdimarsdóttir er látin Vilja nýjan vindmæli: „Þökin fara á loft, falla niður og splundrast“ Borkjarnar vegna Eyjaganga gefa tilefni til bjartsýni Sköpuðust aðstæður fyrir „snælduvitlaust veður“ á Siglufirði Viðvaranir enn í gildi og vegir víða á óvissustigi Óvissustig vegna snjóflóðahættu í Súðavíkurhlíð Verðkröfur stjórnvalda hafi fælt lyfjaframleiðendur frá Valhöll skrefi nær því að verða níutíu herbergja hótel Lentu í öldugangi við Reynisfjöru Skildu þýfið eftir á vettvangi í stolnum bíl Vandinn heimatilbúinn og vill sleppistæði Með gaddakúlu og sprautunálakylfu „Það væri mjög miður“ Litli spítalinn án samnings og ráðherra sér ekkert svigrúm Kallar 25 ára þak á verðtryggð lán sýndarmennsku Ráðist inn í skóla og veist að nemendum eða starfsfólki Óþolandi leyndarhyggja ríki um niðurstöður PISA-prófa Sjá meira