Navanethem Pillay hlaut friðarverðlaun Nóbels Norska Nóbelsnefndin ákvað að Navanethem „Navi” Pillay skildi hljóta friðarverðlaun Nóbels. Hún er menntaður lögmaður og er í dag dómari við Alþjóðadómstólinn í máli Mjanmar. Erlent 9.10.2026 09:02
Hátt í þrjátíu drepnir í tveimur skotárásum 27 voru drepnir og 26 særðir í tveimur skotárásum í Suður-Afríku síðasta sólarhringinn. Erlent 27.9.2026 09:32
Nýr sendiherra er Búi og kannast ekki við „þjóðarmorð á hvítum“ Roelf Meyer, nýr sendiherra Suður-Afríku í Bandaríkjunum, segir ekkert „þjóðarmorð á hvítum“ eiga sér stað í heimalandi sínu og að Donald Trump forseti hafi verið blekktur. Hann er sjálfur Búi með afríkönsku að móðurmáli og var lykilmaður í samningaviðræðunum um að binda enda á aðskilnaðarstefnuna. Erlent 26.9.2026 20:25
Þrír taldir hafa látist vegna hantaveirusmits Þrír ferðalangar á skemmtiferðaskipi eru taldir hafa látist vegna smits af hantaveiru á skipinu. Einn liggur þungt haldinn á sjúkrahúsi en umrætt skemmtiferðaskip mun leggja leið sína til Íslands seinna í mánuðinum. Erlent 3. maí 2026 20:22
Íslendingar skipi sér í hóp með öfgaríkjum Íslendingar skipa sér í hóp með öfgaríkjum með þátttöku í málsókn Suður-Afríku gegn Ísrael að mati formanns Miðflokksins. Ákvörðunin muni óhjákvæmilega hafa afleiðingar í samskiptum við bandamenn Íslendinga. Utanríkisráðherra segir Ísland vera að standa með alþjóðalögum. Innlent 12. mars 2026 19:00
Rétt að leita svara hjá Alþjóðadómstólnum og óttast ekki afleiðingar Íslensk stjórnvöld taka þátt í málsókn Suður-Afríku gegn Ísrael fyrir Alþjóðadómstólnum vegna stríðsreksturs Ísraels á Gasa. Formaður utanríkismálanefndar segir mikilvægt að lögfræðilegar spurningar verði leiddar til lykta og óttast ekki afleiðingar vegna málsóknarinnar. Innlent 12. mars 2026 12:01
Atvinnukylfingur féll niður um lyftustokk Ítalski atvinnukylfingurinn Andrea Pavan lenti í furðulegu slysi fyrir Opna suðurafríska golfmótið þegar hann slasaðist eftir fall niður um lyftustokk. Golf 27. febrúar 2026 08:31
Fékk yfir hundrað skilaboð á dag „Ég er mjög óhrædd týpa og lifi svolítið eftir því að allt verði alltaf í lagi. Ég kippi mér ekki upp við margt,“ segir hlauparinn og markaðsstýran Rakel María Hjaltadóttir sem var að koma úr rosalegri ævintýraferð þar sem hún heimsótti fjölda landa í Afríku með ástinni sinni Guðmundi Lúther. Hún ræddi við blaðamann um hæðir og lægðir ógleymanlegrar ferðarinnar. Lífið 22. febrúar 2026 07:02
Kjartan er kominn heim til Íslands Kjartan Guðmundsson er kominn heim til Íslands rúmum átta vikum eftir að hann lenti í alvarlegu umferðarslysi í Suður-Afríku. Móðir hans og dóttir létust í slysinu. Hann flaug í sjúkraflugvél ásamt bróður sínum og ferðalagið tók hátt í sólarhring. Innlent 14. febrúar 2026 13:54
Á leið til Íslands átta vikum eftir slysið Kjartan Guðmundsson er nú á leið til Íslands í sjúkraflugi rúmum átta vikum eftir að hann lenti í alvarlegu umferðarslysi í Suður-Afríku. Móðir hans og dóttir létust í slysinu. Innlent 13. febrúar 2026 12:54
Taka á móti fyrstu drengjunum í meðferð í lok febrúar Áætluð verklok á meðferðarheimilinu Lækjarbakka í Gunnarsholti á Rangárvöllum eru um næstu mánaðamót, janúar/febrúar, og er gert ráð fyrir að húsið verði afhent Barna- og fjölskyldustofu á þeim tíma. Stefnt er að því að taka á móti fyrsta skjólstæðingi í lok febrúar 2026. Pláss er fyrir sex drengi og kynsegin á meðferðarheimilinu. Innlent 27. janúar 2026 06:32
Fresta tökum á Love Island All Stars Tökum á nýjustu þáttaröðinni af raunveruleikaþættinum Love Island All Stars hefur verið frestað vegna gróðurelda í Suður-Afríku. Glæsihýsið sem keppendurnir eiga að dvelja í hefur verið rýmt. Lífið 11. janúar 2026 11:57
Enn þungt haldinn í Suður-Afríku en einhver batamerki Kjartan Guðmundsson er enn þungt haldinn á spítala í Suður-Afríku. Vinir hans segja hann sýna einhver merki um bata en hann sé enn tengdur bæði öndunarvél og í nýrnaskilun. Þeir hafa safnað rúmum þrettán milljónum fyrir Kjartan og segja söfnun enn opna. Safna þurfi meira svo hægt sé að veita Kjartani stuðning meðan á sjúkrahúsdvöl stendur en einnig í endurhæfingu og þegar hann kemst heim til Íslands. Innlent 6. janúar 2026 08:55
Söfnun fyrir Kjartan gengur vel Búið er að safna um tíu milljónum króna fyrir Kjartan Guðmundsson sem enn er haldið sofandi í öndunarvél í Suður-Afríku þar sem hann lenti í bílslysi fyrr í mánuðinum. Dóttir hans og móðir létust í slysinu. Vinir Agnars hófu söfnun fyrir Kjartan en þá var þegar hafin söfnun fyrir móður stúlkunnar sem lést og fyrir meðferð bróður hennar sem er í meðferð í Suður-Afríku. Innlent 30. desember 2025 15:18
Föðurnum enn haldið sofandi í öndunarvél Föður sem lenti í bílslysi í Suður-Afríku er enn haldið sofandi í öndunarvél og langur batavegur er fram undan. Vinur hans segir slysið hafa orðið á stórhættulegum vegarkafla og aðstandendur hans standa fyrir söfnun til þess að geta stutt hann á sjúkrabeðinum. Innlent 29. desember 2025 19:22
Hrindir af stað söfnun fyrir föður drengsins Söfnun hefur verið hrundið af stað fyrir Kjartan Guðmundsson, manninn sem liggur þungt haldinn á spítala í Suður Afríku í kjölfar umferðarslyss. Maðurinn er faðir drengs í meðferð í Suður Afríku en systir drengsins og föðuramma létust í slysinu. Innlent 27. desember 2025 12:50
Ríkissjóður greiðir fyrir flutning hinna látnu til Íslands Ríkisstjórnin hefur samþykkt að ríkið standi straum af kostnaði við að flytja táningsstúlku og ömmu hennar sem létust í bílslysi ytra heim til Íslands. Móðir drengs í fíknimeðferð í Suður-Afríku segir gjörbreytingu hafa orðið á syni hennar í meðferðinni ytra undanfarnar vikur. Sjálfur líti hann svo á að það hafi bjargað lífi hans að fara í meðferðina. Móðirin vill að ríkið greiði fyrir meðferðir drengjanna. Innlent 23. desember 2025 09:27
„Ég hef aldrei upplifað annan eins harm“ Viðbrögð við söfnun fyrir fjölskyldu íslensku stúlkunnar, sem lést í bílslysi í Suður-Afríku á miðvikudag, hafa verið góð. Skipuleggjandi söfnunarinnar segir harminn ólýsanlegan og hvetur fólk til að leggja hönd á plóg til að létta undir með móðurinni. Innlent 22. desember 2025 11:21
Hrindir af stað söfnun fyrir móður stúlkunnar sem lést í Suður-Afríku Söfnun hefur verið hrundið af stað fyrir fjölskyldu íslensku stúlkunnar sem lést í bílslysi í Suður-Afríku á miðvikudag. Vinkona móður stúlkunnar, sem og bróður hennar hvern hún var að heimsækja, stendur fyrir söfnuninni. Innlent 21. desember 2025 23:29
Níu skotnir til bana á krá Níu voru skotnir til bana og tíu særðir þegar hópur manna á tveimur bílum hóf skothríð á gesti krár í bæ nærri Johannesburg í Suður-Afríku í gærkvöldi. Mennirnir eru sagðir hafa skotið fjölda skota að gestum krárinnar og svo á fólk af handahófi þegar þeir keyrðu á brott. Erlent 21. desember 2025 10:10
Systir og amma drengs í meðferð létust í Suður-Afríku Íslendingarnir sem létust í umferðarslysi í Suður-Afríku í vikunni voru þar til að heimsækja íslenskan dreng í fíknimeðferð. Systir drengsins og föðuramma létust í slysinu, en faðir hans liggur þungt haldinn á sjúkrahúsi. Innlent 20. desember 2025 17:18
Tvær íslenskar konur létust í umferðarslysinu í Suður-Afríku Táningsstúlka og eldri kona frá Íslandi létust í alvarlegu umferðarslysi í Suður-Afríku á miðvikudag. Karlmaður slasaðist lífshættulega í slysinu og liggur á sjúkrahúsi ytra. Innlent 19. desember 2025 18:30
Bústaðakirkja opnuð vegna slyssins í Suður-Afríku Bústaðakirkja hefur ákveðið að opna kirkjuna vegna alvarlegs bílslyss sem Íslendingar lentu í í Suður-Afríku á miðvikudag. Sigríður Kristín Helgadóttir, prestur í Bústaðakirkju, segir það gert í samráði við fjölskylduna. Kirkjan verður opin frá og með klukkan 14 í dag. Innlent 19. desember 2025 12:18
Íslendingar í alvarlegu umferðarslysi í Suður-Afríku Íslensk fjölskylda lenti í alvarlegu umferðarslysi í Suður-Afríku á miðvikudaginn. Fjölskyldan er búsett á Íslandi en á ferðalagi ytra. Málið er á borði borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins. Innlent 19. desember 2025 10:08