Evrópa getur ekki dvalið í veröld sem var og þarf að vopna sig Forsætisráðherra Danmerkur segir Evrópa verði að hervæðast í ljósi þess að Bandaríkjamenn vilji segja skilið við álfuna. Hann ætlar að funda með utanríkisráðherra Bandaríkjanna um Grænland á stórri öryggisráðstefnu í München. Erlent 13.2.2026 09:10
Lokar hringnum eftir tíu ár erlendis Matthea Lára Pedersen er úr mikilli listafjölskyldu og hefur starfað víða um Evrópu sem atvinnudansari síðan hún var nítján ára. Garðurinn með Íslenska dansflokknum er hennar fyrsta sýning á Íslandi. Samhliða dansferlinum hefur hún verið í sambandi með fótboltamanninum Kolbeini Finnssyni en milli þeirra ríkir mikill skilningur vegna flakks beggja. Matthea heldur framtíðinni opinni svo lengi sem hægt er að púsla dansinum saman við lífið. Lífið 13.2.2026 07:00
Macron segir Evrópumönnum að hrista af sér slenið Emmanuel Macron, forseti Frakklands, segir tíma til kominn að Evrópa fari að standa í lappirnar á alþjóðasviðinu. Að ráðamenn þar beiti sér í takt við vald heimsálfunnar. Erlent 10.2.2026 16:10
Evrópuleiðtogar bregðast við: „Við látum ekki fjárkúga okkur“ Forsætisráðherra Bretlands segist munu ræða við Bandaríkjastjórn um fyrirhugaða Grænlandstolla. Leiðtogar Evrópu stilla nú saman strengi eftir að Donald Trump Bandaríkjaforseti boðaði tolla gegn átta NATO-ríkjum vegna þess að þau sendu mannskap til Grænlands í hernaðaræfingu. Erlent 17. janúar 2026 20:45
Draumur að skipuleggja kvennaverkfall í Þýskalandi Konur í Þýskalandi, Austurríki og Sviss skipuleggja nú kvennaverkfall að fyrirmynd þess íslenska. Margrét Rún Guðmundsdóttir, kosningastýra Kvennalistans þáverandi og kvikmyndagerðarkona, er heiðurforseti skipulagsteymisins í Þýsklandi. Adrienne Goehler, ein skipuleggjenda, segir markmið skipuleggjenda að alheimsverkfall fari fram þann 9. mars. Hún segir þegar skipulagshópa víða um heim og auglýsir eftir einum á Íslandi. Innlent 12. janúar 2026 06:30
Þjóðverjar horfi í ríkari mæli að Norður-Atlantshafi Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra segir að samband Íslands og Þýskalands sé einstakt. Góð samskipti beggja landa við Bandaríkin hafi verið þeim dýrmæt í gegnum tíðina og mikilvægt sé fyrir ríkin að þau bönd verði treyst áfram, en um leið þurfi að sammælast um mikilvægi þess að alþjóðalög séu virt. Innlent 11. janúar 2026 20:00
Utanríkisráðherra Þýskalands fundar með Þorgerði Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra tekur á móti Johann Wadephul, utanríkisráðherra Þýskalands, á Keflavíkurflugvelli á morgun. Hann stoppar stutt á flugvellinum á leið vestur um haf, þar sem hann á fund með Marco Rubio utanríkisráðherra Bandaríkjanna. Innlent 10. janúar 2026 15:55
Aðgerðasinnar tóku rafmagnið af Berlín Hópur vinstrisinnaðra aðgerðarsinna sem kallar sig Vulkan Gruppe, eða eldfjallahópinn, hefur tekið ábyrgðina á víðtæku rafmagnsleysi sem varð í höfuðborg Þýskalands, Berlín, um helgina. Erlent 5. janúar 2026 09:07
Pylsuhundur tók að sér fimm gríslinga Í bænum Wannfried í miðju Þýskalandi hefur hundurinn Nala gengið fimm grísum í móðurstað. Grísirnir fundust móðurlausir í skógi nálægt bænum. Erlent 3. janúar 2026 16:24
Óléttan uppgötvaðist þremur dögum fyrir byrjun skólans Sólveig Arnarsdóttir hóf leiklistarferilinn á Ísland sem barnastjarna, lærði þýsku sem barþjónn til að komast inn í leiklistarskólann Ernst Buch í Berlín og sló síðan í gegn í þýsku sjónvarpi. Sólveig hefur leikið mörg stærstu hlutverk leikhúsbókmenntana hérlendis og erlendis, upplifað sigra og einnig áföll. Menning 24. desember 2025 07:00
Saka AfD um að ganga erinda Kremlverja Flóð ítarlegra spurninga um vopnaflutninga til Úkraínu og varnir Þýskalands frá þingmönnum öfgahægriflokksins Valkosts fyrir Þýskaland er sagt geta ógnað þjóðaröryggi landsins. Andstæðingar flokksins saka hann um að ganga erinda rússneskra stjórnvalda. Erlent 23. desember 2025 15:14
Byrjunarverð hjá NiceAir tæplega sextíu þúsund krónur Endurreist NiceAir hefur flugtak í febrúar til þess að kanna áhugann á flugferðum milli Akureyrar og Kaupmannahafnar. Félagið verður rekið með öðrum hætti en fyrirrennari sinn. Höfuðstöðvar þess verða í Þýskalandi. Byrjunarverð á miða fram og til baka verður 400 evrur, eða tæplega 60 þúsund krónur. Viðskipti innlent 17. desember 2025 17:25
Úkraína fái tryggingar sem jafngilda 5. greininni Leiðtogar Bretlands, Frakklands og Þýskalands auk átta annarra Evrópuríkja hafa heitið hernaðarlegum stuðningi við Úkraínu í samvinnu við Bandaríkin, sem er ætlað að koma í stað 5. greinar stofnsáttmála Atlantshafsbandalagsins. Erlent 16. desember 2025 06:47
Krefjast þess enn að Úkraínumenn hörfi frá Donbas Bandaríkjamenn hafa farið fram á það við Úkraínumenn að þeir gefi eftir það landsvæði sem þeir stjórna enn á Donbas-svæðinu svokallaða og segja að slíkt sé skilyrði fyrir friðarviðræðum við Rússa. Þá þykir orðið ólíklegt að hægt verði að nota frystar eigur Rússa í Belgíu til að fjármagna lán handa Úkraínumönnum og er það meðal annars vegna þrýstings frá Washington DC. Erlent 15. desember 2025 14:32
Úkraínumenn reiðubúnir til að falla frá aðild að Nató Vólódimír Selenskí Úkraínuforseti segir Úkraínumenn reiðubúna til að falla frá fyrirætlunum sínum um að ganga í Atlantshafsbandalagið, gegn pottþéttum öryggistryggingum. Erlent 15. desember 2025 06:27
Grunaðir um að skipuleggja hryðjuverk á jólamarkaði Lögreglan í Bæjaralandi í Þýskalandi hefur handtekið fimm menn sem grunaðir eru um að leggja á ráðin um að fremja hryðjuverk á jólamarkaði. Erlent 14. desember 2025 09:59
Ætlar að endurreisa Niceair Þýskur athafnamaður hyggst endurreisa ferðaskrifstofuna Niceair og hefur af því tilefni boðað til blaðamannafundar í flugstöðinni á Akureyri í næstu viku. Fyrrverandi framkvæmdastjóri Niceair hefur mikla trú á verkefninu enda Norðlendingar komnir á bragðið með að fljúga til Evrópu án viðkomu á Keflavíkurflugvelli. Viðskipti innlent 10. desember 2025 11:10
Afdráttarlaus stuðningur við Úkraínu og aukinn þrýstingur á Rússa Evrópuleiðtogar lýstu yfir afdráttarlausum stuðningi við Úkraínu og Vólódimír Selenskí forseta á fundi í Downing-stræti í gær en Selenskí sætir nú miklum þrýstingi frá Bandaríkjunum um að láta Rússum eftir stóran hluta landsins. Erlent 9. desember 2025 06:53
Segir að taka þurfi mikilvægar ákvarðanir Vólódímír Selenskí, forseti Úkraínu, er mættur til Englands, þar sem hann fundar með Keir Starme forsætisráðherra Bretlands, Emmanuel Macron, forseta Frakklands og Friedrich Merz kanslara Þýskalands. Selenskí segir að taka þurfi mikilvægar ákvarðanir. Erlent 8. desember 2025 14:18
Biðla til Belga en tvær tillögur á borðinu Ursula von der Leyen, forseti framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins, er sögð hafa lagt fram tvær tillögur um hvernig Evrópuríkin gætu aðstoðað Úkraínumenn við að fjármagna baráttu sína gegn Rússum næstu tvö árin. Erlent 5. desember 2025 09:11
Vöruðu við því að Bandaríkin gætu svikið Úkraínu og Evrópu Ráðamenn í Evrópu bera lítið traust til erindreka Donalds Trump, forseta Bandaríkjanna, í tengslum við viðræður Bandaríkjamanna við Rússa um mögulegan frið í Evrópu. Emmanuel Macron, forseti Frakklands, varaði aðra þjóðarleiðtoga og embættismenn í Evrópu við því á dögunum að ráðamenn í Bandaríkjunum gætu á endanum svikið Úkraínu og Evrópu. Erlent 4. desember 2025 19:03
Sparka Hitler-eftirhermu úr Valkosti fyrir Þýskaland Næstráðandi jaðarhægriflokksins Valkost fyrir Þýskaland (AfD) segir að félagi sem hélt ræðu í anda Adolfs Hitler á fundi ungliðahreyfingar hans um helgina verði rekinn úr flokknum. Hann segir ræðuna hafa verið lélega háðsádeilu. Erlent 2. desember 2025 12:06
Forstjórar Volvo og Polestar vara við frestun Forsvarsmenn sænsku bifreiðaframleiðendanna Volvo og Polestar hvetja yfirvöld í Brussel til að standa við bann gegn framleiðslu bensín- og dísil bíla, sem á að taka gildi 2035. Erlent 2. desember 2025 08:40
„Besta byrjun á desember sem hægt var að hugsa sér“ Handboltamaðurinn Gísli Þorgeir Kristjánsson fór á skeljarnar og bað kærustu sinnar, Rannveigar Bjarnadóttur, í Berlín um helgina og fékk hrópandi já. Lífið 1. desember 2025 14:41