Menntaverðlaun Suðurlands fóru á Hellu Íslenskukennsla Grunnskólans á Hellu er handhafi Menntaverðlauna Suðurlands, sem forseti Íslands afhenti. Þá fengu tvær konur myndarlegan peningastyrk úr Vísinda- og rannsóknasjóði Suðurlands við sama tækifæri, sem forsetinn afhenti líka. Innlent 11.2.2026 21:31
„Síminn stoppar ekki“ Yfir þrjátíu manns sem dvöldu á vistheimilinu Bakkakoti hafa leitað til lögmanns, sem segir símann ekki stoppa. Þá hafi fleiri leitað til hans sem dvalið hafi á öðrum vistheimilum en Bakkakoti í barnæsku. Innlent 7.2.2026 14:11
Fósturforeldrar og barnavernd upplifað algjört afskiptaleysi Forsætisráðherra kynnti í dag fjórþættar aðgerðir sem ríkisstjórnin hyggst grípa til vegna barna sem beitt voru ofbeldi um árabil í Bakkakoti. Formaður félags fósturforeldra segir bæði fósturforeldra og starfsfólk barnaverndar hafa upplifað algjört afskiptaleysi stjórnvalda í málinu. Innlent 6.2.2026 20:31
Mikil eftirvænting á Hellu fyrir opnun Bæjarins bestu Bæjarins bestu opnuðu nýjan pylsusölustað við Faxaflatir á Hellu í dag. Veitingastaðurinn er sá þrettándi sem Bæjarins bestu opna og verður opinn frá 10 til 22 alla daga. Matseðillinn verður hefðbundinn: ein með öllu. Viðskipti innlent 29. nóvember 2025 16:03
Kvígurnar kvaddar eftir meinta kúvendingu Landsvirkjunar Kúabóndi sem sestur er í helgan stein kveðst sár og svekktur að horfa upp á Landsvirkjun selja alla hjörðina hans eftir að hann seldi henni land sitt undir virkjun. Eftir 46 ára búskap stefnir í að bú hans að Akbraut í Holtum í Rangárþingi ytra verði að eyðibýli. Landsvirkjun segir að farið hafi verið af stað í góðri trú en komið hafi í ljós að rekstur búsins stæði ekki undir sér. Innlent 22. nóvember 2025 07:00
Selur hjörð en ekki jörð Allir nautgripir þess sem áður var kúabú að Akbraut í Rangárþingi ytra á Suðurlandi hafa verið auglýstir til sölu. Það sem athygli vekur er að fasteignasalan Eignatorg annast söluna en fasteignasali segir um að ræða fyrsta skiptið sem hann selji heila hjörð frekar en jörð. Viðskipti innlent 18. nóvember 2025 11:21
Keldnakirkja á Keldum er 150 ára Haldið verður upp á 150 ára afmæli Keldnakirkju á Keldum í Rangárþingi ytra í dag en kirkjan er gömul sveitakirkja, sem hefur alltaf verið mjög vel við haldið. Oddasókn á kirkjuna en stefnt er að því að Þjóðminjasafn Íslands taki kirkjuna yfir á nýju ári. Innlent 16. nóvember 2025 12:11
Fresta hrekkjavöku til að tryggja öryggi lítilla skrímsla Mörg hverfi á höfuðborgarsvæðinu hafa ákveðið að fresta hrekkjavökuhátíð sem átti að fara fram í kvöld til morguns. Hátíðinni er frestað vegna veðurs en lægð er undan suðausturströnd sem á að valda hvassri norðaustanátt víða um land, en stormi á Suðausturlandi og á Vestfjörðum og Norðvesturlandi síðdegis og fram á kvöld. Lífið 31. október 2025 11:17
Úrskurðarnefnd klofin en framkvæmdaleyfi stendur Tveir af fimm nefndarmönnum í úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindamála skiluðu séráliti í máli þriggja náttúruverndarsamtaka, sem krefjast að framkvæmdaleyfi vegna Hvammsvirkjunar verði fellt úr gildi. Kröfu samtakanna var hafnað af meirihluta nefndarinnar. Innlent 30. október 2025 08:01
„Alvöru“ jólasveinn gisti á Hótel Rangá Starfsfólki á Hótel Rangá var nokkuð brugðið í þegar fullskapaður jólasveinn mætti á hótelið í sínum skrúða til að dvelja þar í nokkrar nætur. Um er að ræða jólasvein frá Bandaríkjunum, sem er með milljónir fylgjenda á samfélagsmiðlum. Fagnaðar fundur urðu þegar Kjötkrókur hitti þann ameríska. Lífið 28. október 2025 20:15
Komu innlyksa mæðginum til bjargar í Landmannalaugum Björgunarsveitin Dagrenning á Hvolsvelli og Flugbjörgunarsveitin á Hellu voru boðaðar út vegna mæðgina á húsbíl sem urðu innlyksa í Landmannalaugum sökum færðar í gær. Innlent 27. október 2025 07:14
Áhugasamir smalahundar á námskeiði Fjárbændur segja ekkert jafnast á við það að eiga góðan smalahund. Þeir sækja nú námskeið þar sem þeir fá kennslu í að leiðbeina ferfætlingunum hvernig þeim ber að vinna vinnuna sína. Innlent 25. október 2025 23:10
„Túnin eru bara hvít“ Oddviti Rangárþings ytra vill að brugðist verði við gríðarlegri fjölgun álfta í sveitarfélaginu. Hann segir álftirnar gera bændum lífið leitt, þær valdi tjóni á ræktarlandi sem nemi milljónum króna. Innlent 25. október 2025 16:02
„Ákvað að skilja hana eftir þar og athuga hversu langt ég kæmist“ „Ég er mættur í eiginlega algjöra óvissuferð, sem hófst í morgun þegar ég sótti móður mína í Hveragerði og skutlaði henni í Selsund sem er bóndabær undir Heklu. Ég ákvað að skilja hana eftir þar og athuga hversu langt ég kæmist á bílnum að Krakatind.“ Lífið 3. október 2025 14:32
Fyrrum meðferðarheimili sett á sölu Geldingalækur á Rangárvöllum, þar sem starfsemi meðferðarheimilisins Lækjarbakka fór áður fram, hefur verið sett á sölu. Starfseminni var hætt í húsnæðinu eftir að mygla fannst þar. Innlent 30. september 2025 16:13
Allt að gerast í Rangárþingi hvað varðar lífsgæði íbúa Það verður mikið um að vera í íþróttahúsinu á Hellu á morgun, sunnudaginn 21. september því þá fer fram svonefndur „Lífsgæðadagur í Rangárþingi“ þar sem íbúar í Rangárvallasýslu fá kynningu á öllu því fjölbreytta tómstunda- og íþróttastarfi, sem verður í boði í vetur. Lífið 20. september 2025 14:03
Rændi bíl í Veiðivötnum og ók undir áhrifum af vettvangi Karlmaður hefur verið dæmdur til sex mánaða skilorðsbundinnar fangelsisvistar fyrir að hafa rænt bíl af manni í veiðivötnum og ekið undir áhrifum áfengis og kannabisefna af vettvangi. Innlent 16. september 2025 13:40
Fá að halda framkvæmdum áfram í bili Úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindamála hefur hafnað kröfu þriggja náttúruverndarsamtaka um að undibúningsframkvæmdir við Hvammsvirkjun yrðu stöðvaðar á meðan á kæruferli vegna framkvæmdaleyfis stendur yfir. Innlent 16. september 2025 10:24
3,7 stiga skjálfti í Árnesi Snarpur skjálfti átti sér stað við Ketilsstaðaholt í Holtum í Rangárvallasýslu klukkan 08:39 í morgun. Hann var 3,7 stig að stærð. Innlent 11. september 2025 08:47
Skjálfti upp á 3,3 í Vatnafjöllum Jarðskjálfti af stærðinni 3,3 mældist í Vatnafjöllum suðaustur af Heklu rétt fyrir klukkan tvö í dag. Þetta er stærsti skjálfti sem hefur mælst þar frá því í janúar. Innlent 8. september 2025 14:49
Fundu villuráfandi ferðamenn nærri skálanum í Landmannalaugum Björgunarsveitir af Suðurlandi leituðu að tveimur ferðamönnum sem villtust á göngu á milli Landmannalauga og Hrafntinnuskers í gærkvöldi. Mennirnir fundust heilir á húfi ekki fjarri skálanum í Landmannalaugum að ganga ellefu í gærkvöldi. Þyrla Landhelgisgæslunnar var einnig kölluð út. Innlent 8. september 2025 10:18
Korn ræktað á um fjögur þúsund hekturum Mikill hugur er í kornbændum þessa dagana enda reiknað með mikill kornuppskeru í haust en ræktunin fer fram á um fjögur þúsund hekturum. Þá er verið að gera ýmsar tilraunir með ræktun á mismunandi korni og hveiti í Gunnarsholti á Rangárvöllum. Innlent 6. september 2025 20:05
Það logaði glatt í Bergþórshvoli á Njáluhátíð í Rangárþingi Það var mikið sjónarspil á Gaddstaðaflötum á Hellu í gærkvöldi þegar kveikt var í Bergþórshvoli, eftirlíkingu af húsi Njáls Þorgeirssonar, bónda, höfðingja og lögspekings úr Brennu – Njálssögu. Þúsundir gesta fylgdust með brennunni úr brekkunni, en með henni lauk fjögurra daga Njáluhátíð í Rangárþingi. Innlent 24. ágúst 2025 20:05
Kinnhestur frá Ingvari E. Sigurðssyni í tilefni af nýjum bjór Kinnhestur er nafn á nýjum bjór, sem frumsýndur var í dag en það sem vekur athygli er að bjórinn er sérstaklega framleiddur fyrir fjögurra daga Njáluhátíð í Rangárþingi. Fréttamaður okkar fékk vænan kinnhest frá einum þekktasta leikara landsins í tilefni dagsins. Sjón er sögu ríkari. Innlent 19. ágúst 2025 20:04