Mosfellsbær

Mosfellsbær

Mannfjöldi: 13.715 (2025). Flatarmál: 186 ferkílómetrar.


Fréttir í tímaröð

Fréttamynd

Náttúran verði sett í fyrsta sæti en ekki ræktandinn

Stjórn Víghóls, íbúasamtaka Mosfellsdals, segist verulega brugðið yfir því að hundruðir minka hafi sloppið út í Dalsbúi. Mosfellsdalur sé gróðursæl náttúruparadís, þar sem sé að finna fjölskrúðugt fuglalíf sem nú steðjar ógn að.

Innlent
Fréttamynd

Krefjast tæps milljarðs af fé­lagi Berg­þórs

Farið hefur verið fram á nauðungarsölu á lóð í Mosfellsbæ í eigu félagsins Render Centium. Bergþór Ólason, þingmaður Miðflokksins, er helmingseigandi félagsins á móti föður sínum. Krafan er upp á tæpan milljarð króna.

Innlent
Fréttamynd

„Ég fer og kíki og þá er þarna þetta stærðarinnar lamba­læri“

Enn hefur ekki fundist skýring á því hvernig stærðarinnar, og kryddað, lambalæri og svo seinna steikarsneiðar og flatkökur enduðu í móa við Hafravatn, langt frá næstu mannabyggð. Kona sem var á hlaupaæfingu í aðdraganda Reykjavíkurmaraþonsins og uppgötvaði matinn þegar hundarnir hennar tveir þefuðu hann uppi segist ekki halda að lærið hafi verið eitrað en skilur hvorki upp né niður í því hvernig það endaði á þessum slóðum.

Innlent
Fréttamynd

Enginn hand­tekinn en á­fram á­ætlað að sömu aðilar hafi verið að verki

Tvö áþekk innbrot voru framin í byrjun sumars, fyrst í svínabú Stjörnugríss í Brimnesi á Kjalarnesi aðfaranótt mánudagsins 11. maí en síðar í Reykjabú í Mosfellsbæ, þar sem ræktaðir eru kalkúnar og kjúklingar, aðfaranótt mánudagsins 1. júní. Rannsókn beggja mála er ólokið og hefur enginn verið handtekinn en lögreglan hefur leitað að vitnum síðan í upphafi júní.

Innlent
Fréttamynd

Kastaðist af hjólinu þegar ekið var á hann

Lögreglunni barst tilkynning um árekstur á áttunda tímanum í morgun, fimmtudaginn 25. júní, þar sem ekið hafði verið á reiðhjólamann með þeim afleiðingum að hann kastaðist af hjólinu. Þá hafnaði hann á gangstéttarkanti og var fluttur á slysadeild en ekki liggur fyrir hve alvarlega áverka hann hlaut.

Innlent
Fréttamynd

„Þeir gáfu mér þessi dýr­mætu augna­blik til að sveigja úr leið“

Á níunda tímanum í kvöld, mánudaginn 22. júní, skall hurð nærri hælum á göngustíg við Ásgarð í Mosfellsbæ en minnstu munaði að þrír ungir fjallahjólarar keyrðu niður barnungan dreng. Móðir drengsins segist enn vera í hálfgerðu áfalli en að „skyndileg ónotatilfinning“ hafi orðið til þess að hún greip son sinn upp og hljóp með hann af stígnum augnabliki áður en drengir á fjallahjólum birtust ofar á stígnum. Þá segir hún alls ekki vera við þá að sakast enda sárvanti betri merkingar og skilti við stíginn.

Innlent
Fréttamynd

Einn kærður fyrir stór­fellda líkams­á­rás

Einn hefur verið kærður fyrir stórfellda líkamsárás í Kópavogi í gærkvöld eða nótt. Greint er frá í dagbók lögreglu en ekki kemur nánar fram um atvik eða þann sem er ákærður en einn er samkvæmt dagbók vistaður í fangageymslu eftir nóttina.

Innlent
Fréttamynd

Ekkert sem bendi til fækkunar fugla við Varm­á

Athuganir óháðra sérfræðinga í Varmá eru að engar vísbendingar hafi komið fram um fiskdauða eða annað umfangsmikið tjón á lífríki árinnar. Þá er jafnframt ekkert sem bendir til fækkunar fugla. Veitur stöðvuðu við lok síðasta mánaðar borframkvæmdir í Skammadal. Árfarvegurinn í Varmá var orðinn gruggugur og íbúar höfðu miklar áhyggjur af dýralífi. Óháðir sérfræðingar hafa tekið út áhrifin síðustu vikur. Ræða á aðgerðir Veitna og leitina á íbúafundi á morgun.

Innlent
Fréttamynd

Bíll við bíl að Þing­völlum og um­ferð hreyfist hægt

Töluverð umferð er á Þingvallasvæðinu að sögn Péturs Sveinssonar, varðstjóra í umferðardeild lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu.  Samkvæmt ábendingum til fréttastofu sem og fréttamanni á vettvangi er nú bíll við bíl að Þingvöllum. Umferð hreyfist nú hægt.

Innlent
Fréttamynd

Bar­áttan um 17. júní

Íbúar á höfuðborgarsvæðinu hafa úr ýmsu að velja á þjóðhátíðardaginn. Reykjavík, Kópavogur, Garðabær, Hafnarfjörður og Mosfellsbær hafa öll birt dagskrár fyrir 17. júní og verður dagurinn víða merktur með hefðbundnum hátíðaratriðum, tónlist og dagskrá fyrir börn og fjölskyldur.

Innlent
Fréttamynd

Til­kynnt um tónlistarhávaða um allan bæ

Margt var um manninn og mikið um dýrðir í veislum gærkvöldsins en um það bil tvö þúsund og sjö hundruð háskólanemar voru brautskráðir frá Háskóla Íslands. Lögreglan fékk ítrekaðar tilkynningar um tónlistarhávaða í Reykjavík en meðal annarra mála voru innbrot í hverfi 101 og líkamsárás þar sem þrír voru handteknir. Á Austurlandi voru ökumenn hins vegar til fyrirmyndar að sögn lögreglu.

Innlent
Fréttamynd

Nýr bæjar­stjóri fær rúmar 2,5 milljónir á mánuði

Hilmar Gunnars­son hefur tekið við sem bæjar­stjóri Mos­fells­bæjar. Sjálf­stæðis­flokkurinn og Viðreisn mynduðu nýjan meiri­hluta í sveitarfélaginu eftir síðustu sveitar­stjórnar­kosningar en Hilmar er odd­viti Sjálf­stæðis­manna.

Innlent
Fréttamynd

Dýrum stefnt í hættu

Starfsmaður alifuglabús segir dýrum hafa verið stefnt í hættu þegar brotist var inn í búið í vikunni. Aflífa þurfti dýr sem hleypt var út.

Innlent
Fréttamynd

For­dæma inn­brot í Reykjabú

Samtök fyrirtækja í landbúnaði fordæma harðlega innbrot hjá Reykjabúi aðfaranótt mánudags. Í tilkynningu segja samtökin mikilvægt að háttsemi af þessu tagi sé skýrt fordæmd og stjórnvöld undirstriki að ólögmæt innkoma í landbúnaðarfyrirtæki verði ekki liðin. Matvælastofnun hyggt kæra brot á lögum um velferð dýra til lögreglu.

Innlent
Fréttamynd

„Þetta er mikið á­fall fyrir okkur fjöl­skylduna“

Bóndi á Reykjabúi í Mosfellsbæ segir einn mann hafa verið að verki í innbroti á býlið aðfaranótt mánudags, maðurinn hafi borið fugla út sem síðar hafi þurft að aflífa. Hann hafi skilið eftir bréf þar sem hann hafi afsakað gjörðir sínar. Bóndinn segir um mikið áfall að ræða.

Innlent
Fréttamynd

Brotist inn í Reykjabú og annað „mani­festó“ skilið eftir

Brotist var inn í Reykjabú í Mosfellsbæ þar sem ræktaðir eru kalkúnar og kjúklingar og skemmdarverk unnin á býlinu aðfaranótt mánudags. Skilið var eftir „manifesto,“ svokallaða stefnuyfirlýsingu, samskonar og skilin var eftir í innbroti í svínabú Stjörnugríss í upphafi maímánaðar.

Innlent