„Einræðisherrann“ aðstoðaði við handtöku eftirlýsta ólympíufarans Kanadískur maður sem gekk undir nafninu „Einræðisherrann“ aðstoðaði yfirvöld í Bandaríkjunum við að handsama Ryan Wedding fyrr á árinu. Einræðisherrann svokallaði heitir Andrew Clark en hann er sagður hafa verið hægri hönd Weddings í að flytja gífurlegt magn kókaíns frá Suður-Ameríku til Bandaríkjanna og Kanada um árabil. Erlent 16.2.2026 14:31
Ætla einnig að draga úr vopnakaupum frá Bandaríkjunum Ríkisstjórn Kanada stefnir að því að draga verulega úr því hve mikið ríkið reiðir á bandaríska vopnaframleiðendur. Til stendur að verja fúlgum fjár, sem hafa í gegnum árin endað í höndum bandarískra vopnaframleiðenda, í að byggja upp hergagnaiðnað í Kanada. Erlent 16.2.2026 11:48
Vinkonuferð til Íslands tók óvænta stefnu Avery Francis fór í stelpuferð til Íslands, eftir ár sem hún lýsir sem því versta í sínu lífi. Skipbrot í starfi, kulnun og áföll í einkalífi höfðu tekið sinn toll og hún hafði verið einhleyp í sex ár. Hún var ekki að leita að sambandi. Síðasta kvöldið í ferðinni kynntist hún íslenskum manni í miðbæ Reykjavíkur og þar kviknaði eitthvað óvænt. Þau hittust aftur ári síðar, og það fyrir einskæra tilviljun. Nú eru þau hjón og Avery býr hér og skipuleggur kvennaferðir til Íslands, sem hún kallar besta stað í heimi. Lífið 16.2.2026 09:01
Hótar að setja hundrað prósenta toll á Kanada Donald Trump Bandaríkjaforseti hefur hótað að setja hundrað prósenta toll á vörur frá Kanada ef forsætisráðherra Kanada undirritar viðskiptasamning við Kína. Erlent 24. janúar 2026 16:07
Ólympíufarinn eftirlýsti gómaður eftir áratug á flótta Kanadamaðurinn Ryan Wedding, sem keppt hefur á Vetrarólympíuleikunum fyrir hönd Kanada, hefur verið handtekinn en hann var einn af þeim tíu mönnum sem starfsmenn Alríkislögreglu Bandaríkjanna (FBI) vilja mest koma höndum yfir. Wedding hefur verið ákærður fyrir morð, smygl og peningaþvætti og hefur verið á flótta frá 2015. Erlent 23. janúar 2026 15:30
Trump fer í fýlu og dregur boð sitt til Carney til baka Donald Trump Bandaríkjaforseti virðist hafa dregið til baka boð sitt til Kanada um sæti í svokallaðri „Friðarstjórn“, ef marka má færslu forsetans á Truth Social í nótt. Erlent 23. janúar 2026 06:48
Eldræða Carney: „Ef þú ert ekki við borðið þá ertu á matseðlinum“ Mark Carney, forsætisráðherra Kanada, lýsti breyttri heimsskipan og biðlaði til ríkja, annarra en stórvelda, að taka þátt í að veita stórveldapólitík mótvægi og taka þátt í mótun nýs heimsskipulags. Hann varar við því að heimurinn sé staddur í miðjum umbrotum þar sem stórveldi hafi vopnavætt viðskipti og tolla og misnoti efnahagslega innviði sem kúgunartæki. Minni og meðalstór ríki þurfi að sýna mótvægi við stórveldapólitík og boða breytta heimsskipan sem byggi á öðrum gildum. Erlent 21. janúar 2026 10:22
Trump fer mikinn á Truth Social og virðist ætla sér Kanada Donald Trump Bandaríkjaforseti hélt áfram ögrunum sínum í nótt og birti nú í morgunsárið mynd af sér, JD Vance varaforseta og Marco Rubio utanríkisráðherra að nema land á Grænlandi. Erlent 20. janúar 2026 06:29
Eldur segir Bandaríkjastjórn íhuga fjárfestingu og Amaroq tekur stökk Eldur Ólafsson, forstjóri námafyrirtækisins Amaroq á Grænlandi, segir stjórnvöld í Bandaríkjunum íhuga fjárfestingu í starfsemi félagsins. Í fyrstu viðskiptum í morgun hækkaði gengi félagsins um 10,7 prósent. Á mörkuðum erlendis hækkaði gengið um 19 prósent í gær. Viðskipti innlent 9. janúar 2026 10:10
Fyrrverandi fjármálaráðherra Kanada verður ráðgjafi Selenskí Chrystia Freeland, fyrsta konan til að gegna embætti fjármálaráðherra Kanada, hefur ráðið sig sem ólaunaðan efnahagsráðgjafa Volodýmýrs Selenskí, forseta Úkraínu. Hún tilkynnti í gær að hún ætlaði að segja af sér þingmennsku til þess að sinna ráðgjafastarfinu. Erlent 6. janúar 2026 08:58
Þegar Bardot fór í „leyniferðalag“ til Íslands Brigitte Bardot heimsótti Ísland tvívegis með skömmu millibili árið 1977. Heimsóknirnar vöktu mikla athygli fjölmiðla hér á landi og var önnur þeirra kallað „leyniferðlag“ í Dagblaðinu. Um var að ræða tvær stuttar millilendingar á Reykjavíkurflugvelli þegar hún flaug frá heimalandi sínu, Frakklandi, til Nýfundnalands og svo til baka. Lífið 30. desember 2025 11:02
Deila fyrstu myndunum af hvort öðru Poppsöngkonan Katy Perry birti myndir af sér og nýja kærastanum Justin Trudeau, fyrrverandi forsætisráðherra Kanada, á Instagram. Parið eyddi nokkrum dögum saman í Japan þar sem þau bæði smökkuðu japanska matargerð en hittu einnig fyrrverandi forsætisráðherra landsins. Lífið 7. desember 2025 13:48
Einn áhrifamesti arkitekt samtímans látinn Frank Gehry, einn áhrifamesti arkitekt sögunnar, er látinn, 96 ára að aldri. Gehry hannaði byggingar á borð við Guggenheim-safnið í Bilbaó, Dansandi húsið í Prag og Louis Vuitton-listasafnið í París. Tíska og hönnun 6. desember 2025 13:45
Harbour og „Madeline“ sögð hafa endurnýjað kynnin Leikarinn David Harbour, sem skildi fyrr á árinu við popparann Lily Allen, er talinn hafa endurnýjað kynni sín við búningahönnuðinn Natalie Tippett sem hann hélt við meðan þau Allen voru enn gift. Allen samdi heila plötu um framhjáhaldið og lagið „Madeline“ um viðhaldið en Tippett hefur gengist við því að vera títtnefnd Madeline. Lífið 26. nóvember 2025 11:25
WestJet flýgur líka til Winnipeg og Edmonton Kanadíska flugfélagið WestJet hefur bætt við tveimur nýjum kanadískum áfangastöðum við áætlun sína til Keflavíkurflugvallar sumarið 2026. Flogið verður einu sinni í viku frá Edmonton og Winnipeg frá 28. júní. Viðskipti 18. nóvember 2025 18:46
Mun fljúga milli Keflavíkur og Montreal næsta sumar Kanadíska flugfélagið Air Transat hefur ákveðið að hefja flug til Íslands. Viðskipti innlent 14. nóvember 2025 10:47
Markvörður með skóflu á lofti í miðjum úrslitaleik Atlético Ottawa tryggði sér kanadíska úrvalsdeildartitilinn í fótbolta eftir sigur í skrautlegum og framlengdum leik í nótt. Fótbolti 10. nóvember 2025 07:17
Staðfesta loks sambandið Bandaríska poppstjarnan Katy Perry og Justin Trudeau, fyrrverandi forsætisráðherra Kanada, hafa loksins staðfest að þau séu í sambandi. Það gerðu þau þegar ljósmyndari hitti þau út á lífinu í París í gærkvöldi, þar sem þau voru að halda upp á 41 árs afmæli Perry. Lífið 26. október 2025 14:14
Leita Cessnu sem hvarf nærri Nuuk Umfangsmikilli leit að eins hreyfils flugvél sem hvarf nærri Nuuk á Grænlandi var frestað vegna veðurs í gær. Leitin á að halda áfram í dag en flugvélin, Cessna frá Kanada, hvarf af ratsjám norður af Nuuk seinni partinn í gær. Erlent 26. október 2025 08:56
Hækkar tolla á kanadískar vörur vegna sjónvarpsauglýsingar Donald Trump hefur heitið því að hækka tolla á vörur frá Kanada um tíu prósentustig vegna auglýsingar sem Ontario-hérað stóð fyrir og var sýnd í bandarísku sjónvarpi. Í auglýsingunni voru spilaðar klippur af Ronald Reagan Bandaríkjaforseta vara við afleiðingum hárra tolla á innflutningsvörur. Erlent 25. október 2025 22:30
Trump slaufar öllum viðræðum við Kanada út af sjónvarpsauglýsingu sem fór fyrir brjóstið á honum Donald Trump Bandaríkjaforseti segist vera hættur öllum viðræðum við Kanadamenn um tolla og viðskipti á milli landanna. Ástæðan er auglýsing sem sýnd hefur verið í Kanada þar sem tollahækkanir Trumps eru harðlega gagnrýndar. Erlent 24. október 2025 07:28
Títan var hvorki hannaður né smíðaður nógu vel Kafbáturinn Títan var hvorki hannaður né smíðaður nægilega vel. Þá voru ekki framkvæmdar nægilegar tilraunir á kafbátnum, sem fórst með fimm innanborðs nærri flaki Titanic í júní 2023. Erlent 16. október 2025 10:31
Götulistamaðurinn Jójó látinn Jón Magnússon, götulistamaður, lést á hjartadeild Landspítalans þann 19. september síðastliðinn. Hann var þekktur undir listamannsnafninu Jójó. Hann var 65 ára að aldri þegar hann lést en hann fæddist í Reykjavík 2. nóvember 1960. Foreldrar hans eru Nanna Jónsdóttir og James Andrew Shipp, sem er látinn. Lífið 7. október 2025 14:47
Kristrún í pallborði með Starmer, Carney og Albanese Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra er nú stödd á ráðstefnunni Global Progress Action Summit í Lundúnum, þar sem hún tekur þátt í pallborði ásamt Keir Starmer, forsætisráðherra Bretlands, Mark Carney, forsætisráðherra Kanada, og Anthony Albanese, forsætisráðherra Ástralíu. Innlent 26. september 2025 09:46