Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Marel seldi skuldabréf fyrir 6 milljarða kr. í útboði sínu Skuldabréfaútboði Marel Food Systems hf. er lokið. Seld voru skuldabréf að andvirði 6 milljarða króna (52 milljónir evra). Verðbréfamiðlun Landsbanka Íslands hf. hafði umsjón með sölu skuldabréfanna. 26.5.2008 12:12
Íbúðalánum fækkar um 77% á milli ára Íbúðalán innlánsstofnana í aprílmánuði voru 104 talsins og fækkaði um 5 frá fyrri mánuði. Í apríl fyrir ári síðan voru íbúðalán hinsvegar 461 talsins og hefur þeim því fækkað um 77% á milli ára. 26.5.2008 10:52
Rólegt á hlutabréfamarkaði Gengi hlutabréfa í Bakkavör hefur hækkað um 1,28 prósent frá því viðskipti hófust á hlutabréfamarkaði í dag. Þetta er mesta hækkun dagsins. Á sama tíma hefur gengi bréfa í færeyska olíuleitarfélaginu fallið um sjö prósent. 26.5.2008 10:15
Soros líkir breskum efnahag við grískan harmleik Milljarðamæringurinn George Soros líkir breskum efnahag við grískan harmleik í sinni verstu kreppu síðan 1929. Þetta segir Soros í viðtali við breska blaðið The Times. 26.5.2008 10:14
Gengið styrkist í morgun Gengi íslensku krónunnar hefur styrkst í morgun eða um 0,4%. Stendur gengisvísitalan nú í 146 stigum. 26.5.2008 10:04
Verðfall á mörkuðum í Asíu Verðfall varð á fjármálamörkuum Asíu i morgun og hafa úrvalsvísitölur þeirra ekki lækkað jafnmikið á einum degi á síðustu sex vikum. 26.5.2008 08:29
Létu njósna um starfsmenn sína Forráðamenn Deutsche Telekom. stærsta símafyrirtækis í Evrópu, hafa viðurkennt að hafa fengið utanaðkomandi aðila til að njósna um starfsmenn sína. 26.5.2008 06:46
Airbus metið á „minna en núll“ Töluvert hefur hallað undan fæti hjá flugvélaverksmiðjunum Airbus SAS sem nú eru metnar á „minna en núll“ eftir 32% lækkun á hlutabréfum móðurfyrirtækisins European Aeronautic, Defence & Space Co. það sem af er árinu. 25.5.2008 20:20
Rætt um afnám bensínskatts Meðal þess sem borið hefur á góma í málflutningi bandarísku forsetaframbjóðendanna John McCain, Hillary Clinton og Barack Obama er hvort til greina komi að afnema 18,4 senta eldsneytisskatt sem gengur til ríkisins af hverju bensíngalloni. 25.5.2008 16:44
Inspired Gaming í söluferli Inspired Gaming, afþreyingarfyrirtæki að hluta í eigu FL Group sem rekur ýmiss konar veðmálastarfsemi, er komið í söluferli í kjölfar þreifinga af hálfu nokkurra áhugasamra kaupenda. Global Leisure Partners er fyrirtækjasöluaðili sem fenginn hefur verið til að stýra sölunni og meta tilboð sem berast. 25.5.2008 11:27
Brown og al-Thani funda um olíumál Breski forsætisráðherrann Gordon Brown átti fund með tveimur leiðtogum í gær, þeim Dalai Lama, andlegum leiðtoga Tíbeta, og Hamad bin Jasim bin Jabir al-Thani, forsætisráðherra Katar. 24.5.2008 12:14
Glóir allt gull? Ekki er örgrannt um að févitringar, sjálfskipaðir sem aðrir, velti því nú fyrir sér hvort eina haldbæra fjárfestingin í kreppu, hruni og harðæri sé gullið sem ætíð glóir, óháð vöxtum og vísitölum. 24.5.2008 14:46
Bloomberg átti síður von á óbreyttum stýrivöxtum Vefritið Bloomberg greinir frá því að komið hafi á óvart að Seðlabanki Íslands tilkynnti um óbreytta stýrivexti í vikunni, aðeins sex dögum eftir að hafa tekið erlent neyðargjaldeyrislán frá norrænum seðlabönkum. 24.5.2008 10:49
Björgvin Guðmundsson til liðs við Morgunblaðið Björgvin Guðmundsson hefur ráðið sig til starfa hjá Morgunblaðinu þar sem hann mun stýra viðskiptaumfjöllun blaðsins. 24.5.2008 08:30
Óli ráðinn viðskiptaritstjóri Óli Kristján Ármannsson hefur verið ráðinn viðskiptaritstjóri Fréttablaðsins og ritstjóri Markaðarins í stað Björgvins Guðmundssonar, sem hefur látið af störfum. 24.5.2008 00:01
Dow Jones féll um 1,16% Helstu vísitölur á Wall Street hafa lækkað í vikunni sem nú líður undir lok. Ástæðan er helst rakin til hækkunar á heimsmarkaðsverði á olíu. 23.5.2008 21:06
Óttast að draga muni úr einkaneyslu í Bandaríkjunum Gengi hlutabréfa lækkaði almennt talsvert á bandarískum hlutabréfamarkaði í dag. Um er að kenna hagnaðartöku fjárfesta auk þess sem fjárfestar eru uggandi um horfur í efnahagsmálum. Óttast er að neytendur vestanhafs muni halda að sér höndum og draga úr einkaneyslu á næstunni til þess að komast leiðar sinnar í ökutækjum þrátt fyrir síhækkandi olíuverð. 23.5.2008 20:40
Valdimar Þorkelsson í lok dags Valdimar Þorkelsson, hjá Askar Capital, var gestur Ingimars Karls Helgasonar „Í lok dags“ í dag. 23.5.2008 19:28
Greiningardeild Kaupþings býst við 12,6 prósenta verðbólgu í maí Greiningardeild Kaupþings hefur endurskoðað verðbólguspá sína fyrir maímánuð og gerir nú ráð fyrir 1,6 prósenta verðbólgu í maí þannig að tólf mánaða verðbólga verði 12,6 prósent. 23.5.2008 17:19
Úkraínskur banki í eigu Íslendinga semur við þróunarbanka Evrópu Bank Lviv, úkraínskur banki sem meðal annars er í eigu íslenska félagsins MP fjárfestingarbanka, hefur undirritað samstarfssamning við Endurreisnar- og þróunarbanka Evrópu. 23.5.2008 15:33
Enn ein lækkun í Kauphöllinni Gengi hlutabréfa í Century Aluminum og færeyska olíuleitarfélaginu Atlantic Petroleum féllu í kringum 4,7 prósent í nokkurri lækkun á síðasta viðskiptadeginum í Kauphöll Íslands í dag. Gengi einungis fjögurra félaga hækkaði lítillega og lækkaði Úrvalsvísitalan. 23.5.2008 15:32
Bjössi í World Class tapaði dómsmáli í Danmörku - Greiðir 64 milljónir í skaðabætur Björn Leifsson, sem kenndur er við World Class, og viðskiptafélagar hans í Danmörku greiddu í gær fyrrverandi eiganda dönsku líkamsræktarkeðjunnar Equinox um 64 milljónir íslenksra króna í skaðabætur. 23.5.2008 14:57
Þegar rignir upp í nefið Þótt Bang & Olufsen sé þekkt fyrir vönduð hljómflutnings- og sjónvarpstæki hefur reksturinn ekki gengið sem skyldi Í Bandaríkjunum. 23.5.2008 14:46
Fitch jákvætt gagnvart lántöku til að styrkja gjaldeyrisforðann Í sérriti sem matsfyrirtækið Fitch gaf út um Ísland í gær er eytt töluverðu púðri í að fjalla um áhrif lántöku ríkissjóðs til styrktar gjaldeyrisforða Seðlabankans. 23.5.2008 11:42
Greining Glitnis reiknar með 7% lækkun fasteignaverðs Í nýrri spá um þróun íbúðaverðs reiknar greining Glitni með að íbúðaverð muni lækka um 7% yfir þetta ár. 23.5.2008 10:55
Garðar Þorsteinn Guðgeirsson ráðinn til TM Garðar Þorsteinn Guðgeirsson hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri fjárfestinga og viðskiptaþróunar hjá Tryggingamiðstöðinni. 23.5.2008 10:32
Rauður dagur fyrir Atlantic Petroleum Gengi hlutabréfa í færeyska olíuleitarfélaginu Atlantic Petroleum hefur fallið um rúm 4,6 prósent frá því viðskipti í Kauphöllinni hófust fyrir um hálftíma. Félagið er eitt þeirra sem danskur blaðamaður er sakaður um að hafa skrifað jákvæða greiningu um á sama tíma og hann keypti hluti í félaginu. Gengi hlutabréfa hefur almennt lækkað í dag en það er í samræmi við þróunina á alþjóðlegum hlutabréfamörkuðum. 23.5.2008 10:24
Norski olíusjóðurinn tapaði 1.600 milljörðum kr. Síðasti ársfjórðungur var sá versti í sögu norska olíusjóðsins og nam tap hans á tímabilinu 115 milljörðum nkr. eða rúmlega 1.600 milljörðum kr. 23.5.2008 09:59
Félag Existu kaupir skókeðju á eitt pund Stjórnendur bresku íþróttavöruverslunarinnar JJB Sports, sem Exista á 14 prósent í, greindu frá því í gærkvöldi að þeir hefðu keypt bresku skóverslunina Qube Footwear. Kaupverð nemur litlu einu bresku pundi, jafnvirði tæpra 144 íslenskra króna. 23.5.2008 09:58
Lækkun á evrópskum hlutabréfamörkuðum Það er langt í frá hefðbundinn föstudagur á evrópskum hlutabréfamörkuðum í dag en gengi hlutabréfa hefur almennt lækkað í álfunni á þessum síðasta degi vikunnar. 23.5.2008 09:40
Gosstríð í uppsiglingu milli Carlsberg og Royal Unibrew Viðskiptablaðið Börsen greinir frá því í dag að gosstríð sé í uppsiglingu milli Carlsberg og Royal Unibrew í Danmörku. FL Group er stór hluthafi í Royal Unibrew sem m.a. framleiðir Ceres bjórinn. 23.5.2008 09:35
Staðhæfingum hafnað í skýrslu Neikvæðar horfur alþjóðlega matsfyrirtækisins Fitch á lánshæfi bankanna ráðast af því að landið sé ekki nógu vel undir það búið að standa af sér langvarandi áhættufælni á alþjóðamörkuðum. 23.5.2008 06:00
Eftiráspekin er léttvæg Stýrivextir eru óbreyttir í 15,5 prósentum, samkvæmt ákvörðun bankastjórnar Seðlabanka Íslands í gær. Verðbólguhorfur til skemmri tíma hafa versnað, en bankastjórnin vonast engu að síður til þess að áður kynntur stýrivaxtaferill bankans kunni að halda. Litlar líkur eru því á að vextir lækki á næsta ákvörðunardegi stýrivaxta 3. júlí. 23.5.2008 06:00
Olíutunnan yfir 135 dali Heimsmarkaðsverð á olíu náði nýjum hæðum í dag þegar tunnan fór yfir hundrað þrjátíu og fimm Bandaríkjadali. Hér heima hækkaði N1 síðdegis verð á bensíni og dísel hjá sér um tvær krónur. 22.5.2008 19:29
Stýrivaxtaákvörðunin rædd í lok dags Stýrivaxtaákvörðun Seðlabanka Íslands var meðal þess sem var rætt „Í lok dags" í dag. Það var Þorbjörn Atli Sveinsson, hagfræðingur hjá Greingadeild Kaupþings, sem var gestur Ingimars Karls Helgasonar. 22.5.2008 18:08
MK One verður selt eftir gjaldþrotameðferð Hilco, sem keypti bresku fatakeðjuna MK One af Baugi fyrir skömmu, hefur sett það í gjaldþrotameðferð. Félagið hyggst síðan selja MK One áfram eftir því sem fram kemur í Financial Times í dag. 22.5.2008 16:33
Þrettán félög lækkuðu í dag Þrettán félög lækkuðu í Kauphöll Íslands í dag á meðan fjögur félög hækkuðu. Mest voru viðskipti með bréf í Kaupþingi, Gltini og Landsbankanum. 22.5.2008 16:06
Viðsnúningur hjá Booker í Bretlandi Booker, heildsölukeðjan í Bretlandi skilaði afbragðsgóðri afkomu á síðasta fjárhagsári. Baugur Group og eignarhaldsfélagið Fons eiga um 30 prósenta hlut í Booker. Á heimasíðu fyrirtækisins er greint frá því að hagnaður hafi stóraukist í kjölfar aukinnar sölu á tímabilinu, þrátt fyrir að blikur séu á lofti í verslunargeiranum. 22.5.2008 14:38
Myndi kannski selja Magasin fyrir 155 milljarða Jón Ásgeir Jóhannesson, stjórnarformaður Baugs, myndi kannski selja dönsku stórverslununa Magasin du Nord fyrir tíu milljarða danskra króna eða um 155 milljarða. Þetta segir hann í samtali við Vísi. 22.5.2008 14:06
Óráð að búast við stýrivaxtalækkun í júlí Seðlabanki Íslands ákvað í morgun að stýrivextir verði óbreyttir í 15,5 prósentum. Davíð Oddsson seðlabankastjóri segir óráð að búast við því að stýrivextir verði lækkaðir á næsta ákvörðunardegi bankans í júlí. 22.5.2008 12:47
Tveir menn kærðir fyrir markaðsmisnotkun Fjármálaeftirlitið hefur kært tvo starfsmenn fjármálafyrirtækis til ríkislögreglustjórans vegna meintrar markaðsmisnotkunar 22.5.2008 12:15
Lítilsháttar hækkun á markaðinum Úrvalsvísitalan hefur hækkað lítillega frá opnun markaða í morgun eða um 0,27%. Stendur hún núna í 4.913 stigum. 22.5.2008 11:42
Seðlabankinn segir ekki unnt að slaka á peningalegu aðhaldi Rökstuðningur Seðlabanka Íslands fyrir óbreyttum stýrivöxtum, 15,5%, felst fyrst og fremst í því að gengislækkunin fyrstu þrjá mánuði ársins hafi leitt til meiri verðbólgu í apríl og gæti jafnvel orðið meiri á næstu mánuðum en Seðlabankinn spáði í apríl. 22.5.2008 11:15
Lítil áhætta í óbreyttum stýrivöxtum þrátt fyrir háa verðbólgu Edda Rós Karlsdóttir forstöðumaður greiningar Landsbankans segir að þótt verðbólgan sé afar há í augnablikinu sé lítil áhætta fólgin í því að halda stýrivöxtum óbreyttum eins og Seðlabankinn hefur ákveðið. 22.5.2008 10:03
Krónan veikist lítillega Gengi krónunnar hefur veikst lítillega frá því viðskipti hófust á gjaldeyrismarkaði í dag. Gengið veiktist um rúm 0,3 prósent í byrjun dags en styrktist lítillega í kjölfarið og nemur veiking hennar nú 0,16 prósentum. 22.5.2008 09:36