Greining Glitnis reiknar með 7% lækkun fasteignaverðs 23. maí 2008 10:55
Í nýrri spá um þróun íbúðaverðs reiknar greining Glitni með að íbúðaverð muni lækka um 7% yfir þetta ár. Greiningin gerir ráð fyrir að framundan sé meiri og hraðari kólnun á íbúðamarkaði heldur en hún hefur áður gert ráð fyrir. Fjallað er um málið í Morgunkorni greiningarinnar. Þar segir að margt leggst á vogarskálarnar. Fyrst ber að nefna að er nú útlit fyrir að mjög hratt muni draga úr umsvifum í hagkerfinu og að einkaneysla og kaupmáttur almennings fari nú minnkandi hröðum höndum. Þá hefur lausafjárkrísan reynst langvinnari og dýpri en flestir áttu von á sem hefur neikvæð áhrif á fjármögnunarskilyrði til bæði íbúðafjármögnunar og -framkvæmda. Það mikla framboð íbúðahúsnæðis, sem til staðar er eftir uppsveiflu undangenginna ára, spilar einnig stórt hlutverk þeirrar þróunar sem framundan er. Sömu sögu má segja um fólksfjölgun en gera má ráð fyrir að hægja mun á fólksfjölgun í kjölfar þess sem atvinnuleysi eykst og erlendir starfsmenn hverfi í auknum mæli til sinna heima samhliða því sem eftirspurn dregst saman á vinnumarkaði Spá greiningarinnar gerir ráð fyrir að ytri skilyrði íbúðamarkaðarins verði betri strax á næsta ári í kjölfar þess að lánsfjárframboð fari batnandi og kaupmáttur almennings vex á nýjan leik. Til lengri tíma litið er gert ráð fyrir að íbúðaverð lækki um 3% á næsta ári en hækki um 3% árið 2010.
Mest lesið Hásetar fengu tæpar níu milljónir fyrir fimmtán daga Viðskipti innlent Sendir flugmönnum tóninn: „Maður mjólkar ekki dauða kú“ Viðskipti innlent Greiða sér rúmlega tvo milljarða í arð Viðskipti innlent Flugrisi eignast allan flugflota Air Atlanta Viðskipti innlent Uppsagnir hjá Bláa lóninu Viðskipti innlent Meira atvinnuleysi og fjöldauppsagnir í maí Viðskipti innlent Reynsluakstur: Mjúkur lúxus og moldarslettur í sama pakka Samstarf Segir vanda Icelandair djúpstæðari en samningar flugmanna Viðskipti innlent Hópuppsögn hjá Rapyd á Íslandi Viðskipti innlent Fá að kaupa Pei og Motus Viðskipti innlent Fleiri fréttir Yrði fjórði stærsti lífeyrissjóðurinn Kjörin formaður SÍA Sendir flugmönnum tóninn: „Maður mjólkar ekki dauða kú“ Meira atvinnuleysi og fjöldauppsagnir í maí Hásetar fengu tæpar níu milljónir fyrir fimmtán daga Flugrisi eignast allan flugflota Air Atlanta Greiða sér rúmlega tvo milljarða í arð Fá að kaupa Pei og Motus „Við þurfum að fara að spýta í lófana“ Gervigreindargjöf til lýðræðisins Hópuppsögn hjá Rapyd á Íslandi Helmingur Air Atlanta seldur úr landi Uppsagnir hjá Bláa lóninu Segir vanda Icelandair djúpstæðari en samningar flugmanna Fljúga til Færeyja árið um kring Verðbólga hjaðnar minna en vonir stóðu til Verslunin Air lokar í Kringlunni Fundi frestað til morguns Beina því til Storytel að gæta varúðar í markaðssetningu Skipulagsbreytingar hjá Símanum Advania lýkur kaupum á Evolv Stjórn Icelandair með fullt traust til Boga Hyggja á hóteluppbyggingu á milli Hveragerðis og Selfoss Vilja að frítekjumörk örorkulífeyris verði endurskoðuð Klíník og klíník í eina sæng Lokar Sjoppunni eftir sextán ára rekstur Tuttugu stærstu eiga 400 milljarða í öðrum félögum Reynir á þolmörk flugmanna og svigrúm Icelandair Voni að allir fái starfið aftur Fótboltastjörnur mokgræða á nikótínpúðum Sjá meira