Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Íslenskt rokkabillí til Japans „Rokkabillíið er sko alls ekki búið,“ segir Gísli Veltan, en hljómsveit hans, The 59‘s, spilar á Rokkabillíkvöldi á Faktorý á föstudaginn. 25.11.2010 10:45
Einn frægasti kvenhugsuður sögunnar Kvikmyndin Agora eftir Óskarsverðlaunahafann Alejandro Amenábar er frumsýnd á Íslandi um helgina. Hún fjallar um síðustu daga Rómaveldis og hetjulega baráttu heimspekingsins, stærðfræðingsins og konunnar Hypatiu fyrir því að mikilvægri þekkingu Forn-Grkkja sé bjargað frá glötun. 25.11.2010 00:01
Lone Ranger aftur af stað Eftir mikið volk í ólgusjó Hollywood er kvikmynd um Lone Ranger, grímuklædda kúrekann í villta vestrinu, og hestinn hans Silver loksins að verða að veruleika. Disney-fyrirtækið, í samstarfi við stórmyndakanónuna Jerry Bruckheimer, ætlar að framleiða kvikmynd um þessa frægustu persónu George W. Trendle sem varð feikilega vinsæl í amerísku útvarpi og sjónvarpi. Sjóræningjaleikstjórinn Gore Verbinski hefur verið ráðinn í leikstjórastólinn og Johnny Depp mun að öllum líkindum leika ráðagóða indíánann Tonto. 25.11.2010 22:00
Kántrí-upprisa Kid Rock Vandræðagemlingurinn Kid Rock sendi á dögunum frá sér plötuna Born Free. Ólíkt fyrstu skrefum Rocks í tónlistarbransanum er Born Free kántríplata af gamla skólanum og stefnubreytingin malar fyrir hann gull. 25.11.2010 21:00
Eftirsóttir andfætlingar Ástralskir og reyndar nýsjálenskir kvikmyndagerðarmenn hafa undanfarin ár tekið Ameríku með trompi í mörgum skilningi þess orðs. Þeir eru í fremstu röð en reyna um leið að halda tryggð við heimalandið. 25.11.2010 18:00
Einar er í góðum höndum Rithöfundurinn Árni Þórarinsson rambaði inn á tökustað Tíma nornarinnar í fyrradag en sjónvarpsþáttaröð Friðriks Þórs Friðrikssonar er einmitt byggð á samnefndri bók höfundarins um Einar blaðamann. Árni segir það hafa verið erfitt að skrifa handritið sjálfur. 25.11.2010 17:00
RÚV gerir þátt um Poppstjörnu Íslands „Þetta verður mjög skrautlegur og flottur þáttur,“ segir Sigrún Stefánsdóttir, dagskrárstjóri RÚV. RÚV hóf nýlega framleiðslu á þætti um líf og starf poppstjörnunnar Páls Óskars Hjálmtýssonar. Þátturinn verður á dagskrá laugardaginn 18. desember, þegar Hringekjan hefur runnið sitt skeið. 25.11.2010 08:45
Axl Rose ræðst á Guitar Hero Hinn léttgeggjaði Axl Rose, söngvari Guns N‘ Roses, hefur kært tölvuleikjaframleiðandann Activision sem framleiðir hina víðfrægu Guitar Hero leiki. Rose vill fá tuttugu milljónir dala í skaðabætur frá fyrirtækinu, en hann fullyrðir að hann hafi verið gabbaður til að leyfa því að nota smellinn Welcome to the Jungle í leiknum Guitar Hero III. 25.11.2010 08:00
Bonnie ‘Prince‘ tekur Sufjan Snillingurinn Bonnie ‘Prince‘ Billy verður á meðal flytjenda á ábreiðuplötu þar sem öll lögin verða af plötunni Seven Swans eftir Sufjan Stevens. Seven Swans kom út árið 2004 og er jafnan talin ein af betri plötum meistara Stevens. 25.11.2010 06:00
Christian Bale segir bless við Batman The Dark Knight Rises verður síðasta myndin sem Christian Bale mun klæðast skikkju Leðurblökumannsins í. Þetta kom fram í samtali Bale við fjölmiðla nýverið. Bale hefur leikið Batman og Bruce Wayne í tveimur myndum eftir Chris Nolan sem báðar hafa slegið í gegn hjá áhorfendum um allan heim. Bale kom hingað til Íslands þegar tökur á fyrri myndinni, Batman Begins, hófust en þær fór að mestu leyti fram við Svínafellsjökul. Þeirri mynd var ákaft fagnað enda hafði Leðurblökumaðurinn þá legið í dvala síðan að George Clooney og Arnold Schwarzenegger frystu þessa elskuðu myndasöguhetju. 25.11.2010 05:00
Hrefna Rósa landsliðskokkur: Við erum stolt Íslenska kokkalandsliðið hlaut í dag gullverðlaun í flokknum „Heitir réttir" á heimsmeistaramótinu í matreiðslu. Við heyrðum í Hrefnu Rósu Sætran landsliðskokki sem er stödd í Luxembourg. Þetta er frábær árangur og við erum stolt. Það er mikið keppnisfólk í liðinu. Kokkar eru oft eins og kvikmyndastjörnur í útlöndum og það er rosalega mikil virðing borin fyrir þeim svo maður gekk með nefið upp í loftið í höllinni. Mjög góð tilfinning," segir Hrefna sem er líka sjónvarpsstjarna með meiru en hún er með vinsælu Matarklúbbsþættina á Skjá einum. Núna höfum við lokið keppni og erum að ganga frá öllu dótinu okkar. Það er svo mikið af pottum og pönnum sem fylgir landsliðinu og við þurfum að pakka því vel svo að það komist heilt til Íslands með skipi. Annars erum við að fara út að borða öll saman í kvöld á stað sem heitir The Last Supper eða Síðasta kvöldmáltíðin og þar munum við skála í kampavín til að fagna. Tveggja ára vinna að baki, allir sáttir og strax byrjaðir að huga að því hvernig við getum náð því að verða Ólympíumeistarar," segir Hrefna himinlifandi yfir frábærum árangri. 24.11.2010 14:31
John Travolta eignast son John Travolta og eiginkona hans Kelly Preston eignuðust dreng í gær, sem hefur verið nefndur Benjamin. Benjamin er þriðja barn hjónanna en talsmaður þeirra sendi tilkynningu frá sér svohljóðandi: John, Kelly og dóttir þeirra Ella Bleu, eru himinlifandi yfir nýja fjölskyldumeðliminum. Bæði móður og barni heilsast vel." Frumburður þeirra, Jett, féll frá í janúar 2009. 24.11.2010 12:16
Barnabókahöfundur náði mynd af Lagarfljótsorminum Barnabókahöfundurinn Huginn Þór Grétarsson ætlar sennilega að verða afkastamesti rithöfundurinn í ár en hann hefur gefið út fjórar barnabækur. Þar af var ein bókin prentuð í tíu þúsund eintökum. 24.11.2010 11:10
Greinilega staður fallega fólksins „Það var brjálað stuð á opnuninni og virkilega gaman. Við þökkum kærlega fyrir frábærar móttökur um helgina. Það var æðislegt hversu margir mættu og stemningin þvílíkt góð til klukkan fjögur bæði kvöldin og allir svo ánægðir og kátir," svarar Draupnir Rúnar Draupnisson fyrrum Eurovision stjarna, kennari, flugþjónn, fararstjóri, mastersnemi og sérlegur áhugamaður um skemmtanalíf. 24.11.2010 09:42
Sóli Hólm á leið í sjónvarp Rithöfundurinn og skemmtikrafturinn Sólmundur Hólm Sólmundarson hefur verið ráðinn á Skjá einn og verður hann liðsmaður í nýjum skemmtiþætti sem hefur göngu sína á sjónvarpsstöðinni á næsta ári. 24.11.2010 10:00
Get vonandi boðið konunni upp í dans hér eftir Átta íþróttamenn ætla að læra að dansa undir styrkri handleiðslu Peters Anderson fyrir dag Rauða nefsins sem haldinn verður hátíðlegur 3. desember. Íþróttamenn eru taktlausir, segir einn þátttakenda. 24.11.2010 09:00
Þakkar Hrafni fyrir ferilinn Hin sænska Noomi Rapace er stolt af þeim tíma sem hún eyddi á Íslandi. Hún er þakklát Hrafni Gunnlaugssyni fyrir að kveikt í sér draum um að gerast leikkona. 24.11.2010 07:30
Alba vill fleiri börn Leikkonan Jessica Alba vill eignast fleiri börn á næstunni með eiginmanninum Cash Warren. Alba og bóndi hennar eiga tveggja ára dóttur, Honor Marie, og leikkonan vill gjarnan að dóttirin fái systkini til að leika sér við. 24.11.2010 06:00
Var fyrirsætan ekki að gera neitt fyrir þig? Leikkonan Kate Winslet er hætt með fyrirsætunni Louis Dowler en meðfylgjandi myndir voru teknar af þeim þegar allt lék í lyndi í september síðastliðnum. Eftir að Kate skildi við barnsföður sinn og eiginmann, leikstjórann Sam Mendes, fyrr á þessu ári, byrjaði hún fljótlega með fyrirsætunni en nú, aðeins fjórum mánuðum síðar hefur hún fengið nóg. Náinn vinur Kate sagði við tímaritið MailOnline: Louis var hækjan hennar eftir erfið sambandsslit við Sam og hún naut sín virkilega vel með honum en núna þarf Kate tíma út af fyrir sig. Hún vill einbeita sér að ferlinum og börnunum. Kate á sex ára son, Joe, með Sam og tíu ára gamla stúlku, Miu, með Jim Threapleton. 23.11.2010 10:12
Þýsk mynd um landkönnuði tekin upp á Langjökli „Þetta hljóta að vera einhverjar lengstu kvikmyndatökur sem hafa farið fram uppi á jökli hér á Íslandi,“ segir Kristinn Þórðarson hjá Saga Film. Um helgina lauk fjórtán daga tökumaraþoni fjörutíu manna tökuliðs frá Þýskalandi og Íslandi uppi á Langjökli. Jökullinn leikur stórt hlutverk í nýrri þýskri sjónvarpsmynd sem fjallar um frægt kapphlaup Roalds Amundsen og Roberts Scott á Suðurskautslandinu árið 1911 en hún verður frumsýnd í mars á næsta ári á þýsku stöðinni ZDF. 23.11.2010 09:00
Lítt reyndir nemar tóku upp myndband „Þetta gekk ótrúlega vel og tók enga stund,“ segir Garðar Örn Arnarson, 22 ára nemi við Kvikmyndaskóla Íslands. 23.11.2010 08:00
Hógvær Paul Potts vill íslenskan bjór Breski tenórinn Paul Potts treður upp með Björgvini Halldórssyni í Laugardalshöll nú í byrjun desember ásamt aragrúa söngvara, meðal annars norsku Eurovision-stjörnunni Alexander Rybak. Potts, sem er fyrrverandi símasölumaður í Bridgend, er greinilega ekki þjakaður af stjörnustælum því hann gerir ekki miklar kröfur um aðbúnað baksviðs – og þó. 23.11.2010 06:00
Klippa fyrir Krabbameinsfélagið „Við erum búin að spara daginn og reyndum að bóka ekki mikið svo hægt væri að fá sem flesta í heimsókn,“ segir Kristján Aage Hilmarsson, hárgreiðslumaður á Sjoppunni. Á morgun stendur stofan fyrir góðgerðadegi til styrktar Krabbameinsfélaginu þar sem starfsmenn Sjoppunnar bjóða upp á klippingu allan daginn, gegn frjálsu framlagi. „Fólk kemur í klippingu, borgar það sem það vill og allur peningurinn fer beint í Krabbameinsfélagið,“ segir Kristján. 23.11.2010 06:00
Fékk ráð hjá Downey Jr. Gwyneth Paltrow deyr ekki ráðalaus ef hana vantar ráð. Hún upplýsti í kanadísku útgáfunni af Hello! að hún hefði þegið góð ráð hjá Robert Downey Jr. hvað varðar ávanabindandi vímuefni. Eins og flestum ætti að vera kunnugt kom Downey sér reglulega í klandur út af slíkum málum á sínum yngri árum. 23.11.2010 06:00
Gerir mynd um geðveiki Óskarsverðlaunaleikkonan Halle Berry sér loksins fyrir endann á tólf ára þrautagöngu kvikmyndarinnar Frankie & Alice, því nú styttist í frumsýningu hennar. Frankie & Alice, sem byggð er á sannsögulegum atburðum, segir frá konu með geðklofa. 22.11.2010 20:00
Ótímabær þungun Sögur ganga nú um að sextán ára gömul dóttir fyrrverandi forsetaframbjóðandans Söruh Palin sé ólétt. Bristol Palin, eldri dóttir Söruh, varð sem frægt er orðið ólétt á táningsaldri og nú gæti verið að yngri dóttirin, Willow, eigi einnig von á barni. 22.11.2010 18:00
Öfunduð af því að vera nálægt söngvara Hurts Anna Þóra Alfreðsdóttir, fyrirsæta hjá Eskimo, leikur í nýju myndbandi hinnar vinsælu hljómsveitar Hurts. Anna Þóra flaug til London á föstudag og dvaldi í borginni þar til í gær. Þetta er í annað sinn sem Anna Þóra leikur í myndbandi Hurts en hún fór einnig með aðalhlutverkið í myndbandi lagsins Stay ásamt söngvaranum Theo Hutchcraft. 22.11.2010 16:00
Hvaða brúnkukrem erum við að tala um? Meðfylgjandi má sjá myndir sem teknar voru í íþróttahúsinu í Mosfellsbæ og Laugardalshöll um helgina þar sem úrslit í fitness og vaxtarækt fóru fram. Magnús Samúelsson vann margfaldan Íslands- og bikarmeistaratitil, Magnús Bess í vaxtarrækt yfir 85 kóló og Gunnar Nelson att kappi gegn Michael Russel og sigraði bardagann en hann er í dag bjartasta vonin í heimi blandaðra bardagalistar. 22.11.2010 15:23
Uppselt á tónleika Ólafs Arnalds víða um Evrópu Ólafur Arnalds hefur verið í tæpan mánuð á tónleikaferðalagi um Evrópu. Allt hefur gengið eins og í sögu hjá Ólafi og föruneyti hans sem telur 11 manns. „Við erum búin að leggja allt í þennan túr,“ segir tónlistarmaðurinn Ólafur Arnalds. 22.11.2010 00:01
Skilnaðaralda í Hollywood Skilnaðir og brestir í samböndum fræga fólksins vekja jafnan mikla athygli og að undanförnu hefur óvenju mikið borið á hjónaskilnuðum í borg englanna. Fréttablaðið valdi fimm fræg pör sem hafa ákveðið að fara hvort í sína áttina. 22.11.2010 00:01
Ólafur seldur á 37 milljónir Quadruple Spiral Projection, sem listfræðingar telja vera fyrsta mikilvæga verkið eftir íslenska listamanninn Ólaf Elíasson, var slegið hæstbjóðanda hjá norræna uppboðshaldaranum Bukowski í Stokkhólmi á miðvikudagskvöld. 22.11.2010 00:01
Trúðar koma um áramótin Klovn:The Movie eða Trúður: Kvikmyndin verður frumsýnd á Íslandi 2. janúar í Sambíóunum. Þetta staðfestir Sigurður Viktor Chelbat hjá Samfilm við Fréttablaðið. 22.11.2010 00:01
Komin á samning í Þýskalandi Hljómsveit Veru Sölvadóttur og Magnúsar Jónssonar reynir fyrir sér í Þýskalandi með útgáfu á dansvænni plötu. Plata með tvíeykinu BB & Blake verður gefin út hjá þýska útgáfufyrirtækinu Athletikk á næstunni. Hún inniheldur fjórar ólíkar útgáfur af laginu Paris je t’aime. Tónlistarmennirnir Lars Sommerfeld, Edgar 9000 og Kerosene sjá um að endurvinna lögin. 22.11.2010 00:01
Willow fetar í fótspor foreldra sinna Hin tíu ára gamla dóttir Wills Smith og Jödu Pinkett Smith, Willow, prýðir forsíðu tímaritsins W Magazine um þessar mundir. Stúlkan gaf nýlega út sína fyrstu smáskífu, Whip My Hair, sem hefur slegið í gegn vestan hafs og komst í kjölfarið á samning hjá engum öðrum en Jay-Z. 22.11.2010 00:01
Ungfrú Samúel 2010 valin Á meðfylgjandi myndum má sjá þegar Móeiður Sif Skúladóttir sigraði samkeppni Samúels 2010 sem fram fór á veitingahúsinu Broadway á föstudagskvöldið. Í öðru sæti varð Hulda Kristinsdóttir og Jórunn Steinsson landaði þriðja sætinu. 21.11.2010 11:36
Konur eiga orðið allan ársins hring Meðfylgjandi myndir voru teknar í útgáfuhófi bókaforlagsins Sölku sem haldið var í IÐU í gærkvöldi. Tilefnið var útgáfa dagatalsbókarinnar Konur eiga orðið allan ársins hring sem kemur út árlega en í henni eru hugleiðingarnar íslenskra kvenna. Eins og sjá má á myndunum ríkti mikil gleði á meðal kvennanna. 20.11.2010 12:23
Sumir eiga bara fallega vini Útlitsráðgjafinn og sjónvarpsmaðurinn vinsæli Karl Berndsen hélt partý á stofunni sinni Beautybarinn í gærkvöldi af því tilefni að hann sendir nú frá sér sína fyrstu bók sem ber hún heitið VAXI-n - Finndu hvað fer þér best. Bókin hefur að geyma ýmsan fróðleik og gagnlegar upplýsingar sem Karl hefur safnað að sér á sínum fjölbreytilega ferli. Hann leggur ríka áherslu á að sérhver kona finni sinn eigin stíl og klæði sig í samræmi við það hvernig hún er VAXI-n. Á meðfylgjandi myndum má sjá Karl fagna á meðal fallegra vina og vinkvenna sem voru áberandi smart eins og Kalli sjálfur. 20.11.2010 09:58
Kynnir Nóbelinn Leikkonan unga Anne Hathaway kemur fram í nýju hlutverki í lok mánaðarins en hún ætlar að vera kynnir á Nóbelstónleikunum sem haldnir eru í tengslum við afhendingu friðarverðlaunanna í Osló. Hathaway stendur við hlið leikarans Denzels Washington og mun það hafa verið leikkonan sjálf sem bað um að fá að gegna þessu hlutverki. 20.11.2010 20:00
Fjölmiðlafárið var of mikið fyrir mig Sænska prinsessan Madeleine talaði í fyrsta sinn opinberlega um sambandsslitin við Jonas Bergström síðasta vor í blaðaviðtali í vikunni. Þau voru nýtrúlofuð þegar upp komst um ítrekað framhjáhald kappans, meðal annars með ungri norskri stúlku sem seldi sögu sína til slúðurblaða þar í landi. 20.11.2010 18:15
Knightley leikur Önnu Keira Knightley á nú í samningaviðræðum við leikstjórann Joe Wright um að leika Önnu Kareninu, höfuðpersónu samnefndrar skáldsögu eftir Leo Tolstoj. Wright þessi leitar greinilega ekki langt yfir skammt eftir aðalleikkonum því hann leikstýrði Keiru í Pride and Prejudice og Atonement. Working Title er með myndina á sinni könnu og er gert ráð fyrir því að fyrsta uppkast að handriti verði klárt í næsta mánuði. 20.11.2010 18:00
Kennir Frökkum að taka slátur „Hann viðurkenndi að hann hefði kúgast yfir þessu,“ segir Nanna Rögnvaldardóttir matargúrú, sem sýndi frönskum sjónvarpsmanni í vikunni hvernig ætti að taka slátur. Franska sjónvarpsstöðin Arte var stödd hér á landi til að fjalla um hvernig Íslendingar hefðu brugðist við kreppunni sem svo skyndilega skall á þjóðinni. 20.11.2010 16:30
Kate leggur línurnar Kjólar eins og sá sem Kate Middleton, unnusta Vilhjálms Bretaprins, var í er trúlofun þeirra var kynnt seldust upp á innan við sólarhring eftir að myndir af henni í kjólnum birtust. Kjóllinn er hannaður af brasilískum hönnuði sem Middleton leitar gjarnan til þegar hana vantar kjóla við opinberar athafnir. 20.11.2010 15:00
Japis opnuð á ný á netinu „Það verður að hafa trú á því að fólk borgi áfram fyrir tónlist því ef að það gerir það ekki endar það þannig að ekkert verður gefið út,“ segir Ásvaldur Friðriksson. 20.11.2010 13:00
Setur upp Villiönd Ibsens fyrir norska þjóðleikhúsið Baltasar Kormákur hefur verið fenginn til að setja upp Villiöndina eftir Henrik Ibsen í norska þjóðleikhúsinu árið 2012. Villiöndin á að vera opnunarsýningin á Ibsen-hátíðinni sem leikhúsið heldur annað hvert ár en Ibsen er í hávegum hafður í menningarlífi Norðmanna. „Þetta er mikill heiður fyrir mig," segir Baltasar í samtali við Fréttablaðið. Hann er staddur í Los Angeles að ráða til sín starfsfólk fyrir fyrstu stóru Hollywood-kvikmyndina sína, Contraband, sem Universal-kvikmyndaverið framleiðir með Mark Wahlberg og Kate Beckinsale í aðalhlutverki. 20.11.2010 11:00
Ingó gefur litla bróður tækifæri á Nasa „Hann er yngri, myndarlegri og betri söngvari. Það er allt sem þarf,“ segir Ingólfur Þórarinsson, söngvari Veðurguðanna. 20.11.2010 09:15