Lífið

Íslenskt rokkabillí til Japans

Það eru kannski nokkur ár á milli þeirra Péturs, Arons, Gísla og Smutty en þeir eru allir jafn töff.
fréttablaðið/pjetur
Það eru kannski nokkur ár á milli þeirra Péturs, Arons, Gísla og Smutty en þeir eru allir jafn töff. fréttablaðið/pjetur

Rokkabillíkvöld verður á Faktorý annað kvöld. Aðalnúmerið er hljómsveitin The 59‘s sem stefnir á tónleikaferðalag til Japans á næsta ári.

„Rokkabillíið er sko alls ekki búið,“ segir Gísli Veltan, en hljómsveit hans, The 59‘s, spilar á Rokkabillíkvöldi á Faktorý á föstudaginn.

The 59‘s er skipuð söngvaranum Gísla, bróður hans Aroni Erni, gítarleikaranum Pétri Hallgrímssyni og bassaleikaranum Smutty Smiff, en sá síðastnefndi er töluvert nafn innan rokkabillísins.

„Smutty er Breti en hefur búið í Bandaríkjunum nánast allt sitt líf. Hann er búinn að vera í rokkabillíbransanum í rúm þrjátíu ár og var í fyrstu rokkabillíhljómsveitinni sem gerði það gott eftir Elvis en hún hét Levi and the Rockats,“ segir Gísli. Hann segir Smutty hafa komið hingað til lands, fundið sér íslenska konu og síðar ákveðið að finna liðsmenn í rokkabillíhljómsveit. Hann hafi fundið þá Gísla og Aron og fyrst þá hafi hlutirnir farið að gerast. Síðar hafi svo Pétur Hallgrímsson gengið til liðs við bandið, en hann hefur meðal annars spilað með Lay Low og Ellen Kristjánsdóttur.

Þrátt fyrir að rokkabillítímabilið sé löngu liðið segir Gísli tónlistina lifa vel. „Rokkabillíið er kannski lítið á Íslandi en í Skandinavíu er það mjög stórt. Við spilum í Noregi strax eftir jól og erum svo að spá í að fara að túra í Japan á næsta ári. Þetta er svo stórt alls staðar annars staðar.“

Gísli segir tískufyrirmyndirnar vera gömlu rokkkóngana Eddie Cochran og Elvis Presley. „Við erum auðvitað í leðurjökkum með „greasað“ hárið,“ segir Gísli og viðurkennir að það komi fyrir að fólk stari á þá á götunni.

The 59‘s spila á Faktorý á föstudagskvöldið, en hljómsveitirnar Bárujárn og Blues Willis koma líka fram, ásamt DJ Gísla Glym­skratta. Húsið verður opnað klukkan tíu en tónleikarnir hefjast klukkan ellefu og kostar ekkert inn. Þemaklæðnaður er hins vegar æskilegur og eru verðlaun veitt fyrir flottasta dressið.

kristjana@frettabladid.is






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.