Lífið

Hrefna Rósa landsliðskokkur: Við erum stolt

Hefna Rósa Sætran í Luxembourg.
Hefna Rósa Sætran í Luxembourg.

Íslenska kokkalandsliðið hlaut í dag gullverðlaun í flokknum „Heitir réttir" á heimsmeistaramótinu í matreiðslu. Við heyrðum í Hrefnu Rósu Sætran landsliðskokki sem er stödd í Luxembourg.

„Þetta er frábær árangur og við erum stolt. Það er mikið keppnisfólk í liðinu. Kokkar eru oft eins og kvikmyndastjörnur í útlöndum og það er rosalega mikil virðing borin fyrir þeim svo maður gekk með nefið upp í loftið í höllinni. Mjög góð tilfinning," segir Hrefna sem er líka sjónvarpsstjarna með meiru en hún stjórnar vinsælu Matarklúbbsþáttunum á Skjá einum og svo er nýkomin á markað girnilega bók eftir Hrefnu sem ber heitið Fiskmarkaðurinn.

„Núna höfum við lokið keppni og erum að ganga frá öllu dótinu okkar. Það er svo mikið af pottum og pönnum sem fylgir landsliðinu og við þurfum að pakka því vel svo að það komist heilt til Íslands með skipi. Annars erum við að fara út að borða öll saman í kvöld á stað sem heitir The Last Supper eða Síðasta kvöldmáltíðin og þar munum við skála í kampavín til að fagna. Tveggja ára vinna að baki, allir sáttir og strax byrjaðir að huga að því hvernig við getum náð því að verða Ólympíumeistarar," segir Hrefna himinlifandi yfir frábærum árangri.


Tengdar fréttir

Íslenska kokkalandsliðið fékk gull fyrir heita rétti

Íslenska kokkalandsliðið hlaut í dag gullverðlaun í flokknum „Heitir réttir" á heimsmeistaramótinu í matreiðslu. Keppt var í þessum flokki í gær og gæddu þá 110 manns sér á glæsilegri þriggja þriggja rétta máltíð. Fimm lið kepptu samtímis og höfðu þau sex klukkutíma til að undirbúa matinn. Selt var inn á keppnina í forsölu og sátu gestir við borð á keppnisstað og fengu matinn afgreiddan eins og á veitingastað.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.