Ingó gefur litla bróður tækifæri á Nasa 20. nóvember 2010 09:15 Bræður munu berjast… um hylli áhorfenda í kvöld. Ingó segir Guðmund bæði myndarlegri og betri söngvara en hann sjálfan. „
Hann er yngri, myndarlegri og betri söngvari. Það er allt sem þarf,“ segir Ingólfur Þórarinsson, söngvari Veðurguðanna. Ingó og Veðurguðirnir koma fram á Nasa í kvöld. Litli bróðir Ingós, Guðmundur Þórarinsson, stígur á svið með hljómsveitinni og flytur nokkur lög á meðan Ingó hvílir sig. „Ég ætla að stilla honum upp og láta hann syngja. Svo ætla ég að mæma, dansa eða flippa á meðan. Það er planið,“ segir Ingó og viðurkennir fúslega að sá yngri sé endurbætt útgáfa af sjálfum sér. „Hann er ‘92 týpan af þessum sama gamla Volvo.“ En ertu að þjálfa hann upp svo hann geti einn daginn tekið við kyndlinum í Veðurguðunum? „Nei, ég held að það sé ekki séns að hann nenni því. Hann er bara í boltanum. Enda ætla ég ekki að borga honum fyrir þetta – bara gefa honum pítsu, eins og stórir bræður gera.“ Guðmundur vakti talsverða athygli á dögunum þegar myndband með atriði hans í söngkeppni Fjölbrautaskóla Suðurlands gekk manna á milli á netinu. Honum líst vel á að stíga á svið með stóra bróður, en þvertekur fyrir að vera betri söngvari og myndarlegri. „Ég ætla aðallega að reyna að slá í gegn í boltanum og vera betri en hann þar. Það hefur alltaf verið markmiðið – hann má eiga hitt,“ segir Guðmundur í léttum dúr, en hann gekk nýlega í raðir úrvalsdeildarliðs ÍBV. En nú ætlar Ingó að borga þér pítsu fyrir sönginn. Er stóri bróðir svona harður við samningaborðið? „Nei, engan veginn! (hlær) Launin verða bara gleði og ánægja, held ég. Hann er alltaf að splæsa einhverju á mig þannig að ég held að hann eigi inni hjá mér að ég syngi með honum frítt.“ - afb
Mest lesið Gugga á Þjóðhátíð: „Er þetta leigubíll? Nei, þetta er pó-pó“ Lífið Urður yfirgefur Kastljós Lífið Byrjaði sem þráhyggja fyrir rapplagi á spítala Menning Lenti í mótorhjólaslysi daginn eftir gleðigönguna Lífið Stjörnulífið: „Ég elska að vera hommalingur“ Lífið Ben Jones er látinn Bíó og sjónvarp Aubrey Plaza orðin mamma Lífið Raye og Jordan ástfangin í rússíbana Lífið „Svolítið eins og að vera á annarri plánetu“ Ferðalög Ódysseifur halað inn milljarði dala og Lói nálgast tvo Bíó og sjónvarp Fleiri fréttir Gugga á Þjóðhátíð: „Er þetta leigubíll? Nei, þetta er pó-pó“ Urður yfirgefur Kastljós Aubrey Plaza orðin mamma Lenti í mótorhjólaslysi daginn eftir gleðigönguna Raye og Jordan ástfangin í rússíbana Stjörnulífið: „Ég elska að vera hommalingur“ Perez Hilton þarf að fara í aðgerð eftir sjálfsskaða í beinu streymi á TikTok Þegar Davíð hafði afskipti af hjónabandi Ólafs og Dorritar Fræg feðgin snæddu kvöldmat á Horninu Minnast almyrkvans 1954: „Mér fannst þetta alveg nauðaómerkilegt fyrirbæri“ Týndi bókstaflega röddinni eftir áratugi af aga Krakkatía vikunnar: Hundar, ber og ælubogi Myndaveisla frá Gleðigöngunni: Borgarstjóri, biskup og risastór flæmingi Brekkusöngur á jafnsléttu hápunkturinn Euphoria-stjörnur á Íslandi Örlaganótt á Kiki varð að ást um ókomna tíð Fréttatía vikunnar: Úkraína, hoppukastali og George R. R. Martin Þetta táknar flæmingi Páls Óskars: „Kommentakerfið logar af fólki sem talar eins og 1986“ „Við nýtum tækifærið og ræðum lífið og tilveruna“ Héldu annað brúðkaup í leyni á sveitasetri í Surrey Trump deilir myndum frá Íslandsferðinni Sigurjón Sighvatsson hlýtur heiðursverðlaun Dóttir Ingu Lindar selur miðbæjarperlu „Ég mun aldrei treysta því að kerfið passi upp á son minn“ Hringar bendi til þess að Hadid og Cooper hafi gift sig Inga Sæland orðin eldri borgari: „Mér finnst ég alltaf vera bara tvítug“ Mikkel Hansen og Guðlaugur Victor í stuði hjá 66°Norður „Ekki hægt að horfa á neitt annað en brjóstin á þér“ „Hún er í hljóðverinu núna“ Hvað veistu um… One Direction? Sjá meira