Setur upp Villiönd Ibsens fyrir norska þjóðleikhúsið 20. nóvember 2010 11:00 Uppfærsla Baltasars á Pétri Gauti fyrir fjórum árum skildi góðar minningar eftir hjá fólkinu í norska þjóðleikhúsinu, sem hefur beðið hann um að setja upp Villiöndina eftir Henrik Ibsen á Ibsen-hátíð eftir tvö ár.
Baltasar Kormákur hefur verið fenginn til að setja upp Villiöndina eftir Henrik Ibsen í norska þjóðleikhúsinu árið 2012. Villiöndin á að vera opnunarsýningin á Ibsen-hátíðinni sem leikhúsið heldur annað hvert ár en Ibsen er í hávegum hafður í menningarlífi Norðmanna. „Þetta er mikill heiður fyrir mig," segir Baltasar í samtali við Fréttablaðið. Hann er staddur í Los Angeles að ráða til sín starfsfólk fyrir fyrstu stóru Hollywood-kvikmyndina sína, Contraband, sem Universal-kvikmyndaverið framleiðir með Mark Wahlberg og Kate Beckinsale í aðalhlutverki. Að sögn Baltasars má segja að upphafið að þessu samstarfi megi rekja til þess að fyrir fjórum árum mætti hann á sömu hátíð ásamt leikurum Þjóðleikhússins og sýndi tvær sýningar á Pétri Gauti. „Viðbrögðin við þeirri sýningu voru mjög góð og sýningin virðist hafa lifað hjá fólkinu í norska Þjóðleikhúsinu," segir Baltasar en Villiöndin verður að sjálfsögðu sett upp á norsku og verður að öllum líkindum með norskum leikurum í helstu aðalhlutverkum þótt Baltasar útiloki ekki neitt. „Nei, ég meina Gísli Örn er hálfnorskur." Hins vegar var haustið 2012 eina tímasetningin sem hentaði fyrir leikstjórann, sem verður ákaflega upptekinn á næstunni „Ég verð auðvitað upptekinn við tökur á Contraband, svo er það Djúpið og loks frumsýning á Contraband í mars 2012. Ég hefði því ekki getað gert þetta á öðrum tíma." Leikstjórinn segir það alltaf vissa áskorun að flakka milli kvikmyndaformsins og leikhúslífsins, leikstjóri þurfi til að mynda að geta unnið mun nánar með leikurum í leikhúsinu heldur en þegar hann gerir kvikmynd. „Og maður hefur alveg heyrt sögur af frægum kvikmyndaleikstjórum sem eru hreinlega hræddir við leikara. Mig langaði hins vegar til að gera þetta því ég vil ekki sleppa hendinni alveg af leikhúsinu," segir Baltasar. freyrgigja@frettabladid.is
Mest lesið Vill 700 milljónir fyrir höllina Lífið Viðar Örn hefur störf á Sólheimum Lífið Geoff og Ásta Margrét nýtt par Lífið Fannar og Vala keyptu fyrir 170 milljónir í Kjalarlandi Lífið Drengurinn sem dó Lífið Prinsinn og prinsessan ætla að flytja heim á næsta ári Lífið Hefur verið 73 kíló í 55 ár en bætti aðeins á sig þegar bjórinn var leyfður Lífið Nakinn á kóræfingu Lífið Vetrarhátíðin sjaldan verið stærri Menning „Þetta er bara fjárhagslegt ofbeldi“ Lífið Fleiri fréttir Fannar og Vala keyptu fyrir 170 milljónir í Kjalarlandi Hefur verið 73 kíló í 55 ár en bætti aðeins á sig þegar bjórinn var leyfður Viðar Örn hefur störf á Sólheimum Geoff og Ásta Margrét nýtt par Prinsinn og prinsessan ætla að flytja heim á næsta ári Vill 700 milljónir fyrir höllina Drengurinn sem dó Nakinn á kóræfingu Laufey fékk sæta kveðju frá yngsta Grammy-verðlaunahafa sögunnar „Skýið er bleikt og við erum sannarlega enn þá á því skýi og í sjokki“ Síðasti leynigesturinn opinberaður „Hvernig ég er að gera þetta núna er ekki hægt til lengri tíma“ Tók Indriða í pontu og uppskar hláturskast í þingsal X-ið bætir við sig Bolla Vaskir Valsmenn hressir á Hlíðarenda „Þetta er bara fjárhagslegt ofbeldi“ „Ekki er þetta uppáhaldslagið þitt?“ Forsetinn hótar lögsókn: „Vertu viðbúinn Noah“ „Þakklát fyrir að eiga stóran orkutank inni í litlum búk“ Þær keppa í Ungfrú Ísland 2026 „Ekki láta aldurinn eða stoltið stoppa þig“ Hvernig breytirðu þér í Dag Sigurðsson? Leyndardómar flugvallarins í Denver: Dómsdagsbyrgi, hakakrossar og blár hestur með rauðglóandi augu Fundu ástina í stjórnarráðinu Íslenskt par í Köben stofnar nýjan leikjavef Fjölskyldan veik af fíknivanda en alltaf staðið þétt saman Þessi fengu Grammy og sendu ICE-kaldar kveðjur Stjörnulífið: Dorrit og Pharrell Williams í fíling Laufey Lín fékk önnur Grammy-verðlaun Laufey gæti orðið tvöfaldur Grammy-verðlaunahafi í nótt Sjá meira
Leyndardómar flugvallarins í Denver: Dómsdagsbyrgi, hakakrossar og blár hestur með rauðglóandi augu