Fleiri fréttir

Hundi smituðu konunnar lógað

Borgaryfirvöld í Madríd á Spáni hafa ákveðið að lóga hundi spænsku hjúkrunarkonunnar sem smitaðist af ebólu.

Barn fór á leikskóla með heróín

Bandarísk móðir var handtekin í gær eftir að fjögurra ára dóttir hennar fór á leikskólann með 250 pakkningar af heróíni.

Fengu Nóbelsverðlaun fyrir LED ljós

Vísindamennirnir Isamu Akasaki, Hiroshi Amano og Shuji Nakamura fengu í dag Nóbelsverðlaun í eðlisfræði fyrir að uppgötva díóður sem gefa frá sér ljós.

Gerðu loftárásir við Kobane

Loftárásirnar hófust seint í gærkvöldi um sama leiti og vopnaðar sveitir Kúrda ráku vígamenn IS úr austurhluta borgarinnar.

Morgunmatur sem er 8000 hitaeiningar

Veitingastaður á Englandi býður viðskiptavinum upp á mjög hitaeiningaríkan morgunverð. Þeir sem klára geta lagst í vetrardvala, en fá gefins bol.

Appið FireChat fyrir samskipti

Rétt eins og mótmælendur í Egyptalandi notuðu Twitter fyrir þremur árum er nýjasta tækni notuð í mótmælunum í Hong Kong.

Ríkin orðin þrjátíu

Hæstiréttur Bandaríkjanna vísaði í gær frá ákærum fimm ríkja sem kváðu á um bann við hjónaböndum samkynhneigðra.

Ebólusmitið á Spáni til rannsóknar

Rannsókn er nú hafin á því hvernig það gat gerst að hjúkrunarfræðingur á Spáni smitaðist af Ebólu. Hún er fyrsti sjúklingurinn sem smitast af hinum banvæna sjúkdómi utan Vestur-Afríku.

Disney-land í París á barmi gjaldþrots

Disney-land í París á í miklum fjárhagserfiðleikum. Skemmtigarðurinn hefur verið rekinn með halla nánast á hverju ári frá því hann opnaði árið 1992.

Ellefu létust í eldingaveðri

Ellefu meðlimir ættbálks í Kólombíu létu lífið aðfararnótt mánudags þegar eldingum laust niður í þorp þeirra þegar trúarhátíð var í gangi. Fimmtán aðrir meðlimir ættbálksins slösuðust í hamaganginum en trúarhátíðin miðaði að því að ná andlegu jafnvægi í ættbálkinn.

Norskur læknir með ebólu

Norskur læknir sem starfað hefur með Læknum án landamæra í Síerra Leóne hefur smitast af ebólu og verður flutt heim til Noregs til meðferðar

Tugir þúsunda flýja heimili sín

Tugir þúsunda íbúa Kasmír héraðsins á milli Indlands og Pakistan hafa flúið heimili sín vegna átaka á milli Indverja og Pakistana.

Sautján ára próflaus stútur stöðvaður á Breiðholtsbraut

Sautján ára piltur, sem lögreglan stöðvaði á Breiðholtsbraut um miðnætti, hafði aldrei tekið bílpróf og var því réttindalaus. Hann var líka undir áhrifum fíkniefna og einhverskonar vopn fanst í bílnum því í skeyti frá lögreglunni segir að hann verði líka kærður fyrir brot á vopnalögum. Málið var afgreitt með aðkomu foreldris og tilkynnt barnaverndaryfirvöldum.

Rousseff hlaut flest atvkæði

Dilma Rousseff, forseti Brasilíu, hlaut flest atvkæði í forsetakosningum sem haldnar voru í landinu í gær.

Leit að MH370 hefst að nýju

Enn á ný er hafin leit að flaki Malasísku farþegaþotunnar sem hvarf með manni og mús þann áttunda mars síðastliðinn, einhversstaðar á milli Malasíu og Víetnam. Nú hefur leitarskipið GO Phoenix verið sent á svæðið þar sem líklegast er talið að vélin hafi hrapað og hófst neðansjávarleit í morgun. Talið er að aðgerðin geti þó tekið allt að einu ári enda er um gríðarlegt flæmi að ræða sem til stendur að leita á en það eru áströlsk yfirvöld sem skipuleggja leitina.

Kobani við það að falla

Vígamenn ISIS samtakanna í Sýrlandi eru sagðir við það að ná borginni Kobani á sitt vald sem er talið hafa gríðarlega hernaðarlega þýðingu í för með sér. Borgin er rétt við landamæri Tyrklands þar sem Kúrdar eru fjölmennir og nái ISIS menn völdum í borginni er óttast um líf íbúanna sem taldir eru villutrúar af ofstækismönnunum.

Örmagnaðist á hafi úti í uppblásnum bolta

Bandarískum maraþonhlaupara sem hafði það að markmiði að ferðast um 1.660 kílómetra vegalengd í uppblásnum bolta var í gærmorgun bjargað eftir að hafa örmagnast á hafi úti.

Fjöldagröf fannst í Mexíkó

Talið er að þar sé að finna lík 43 nemenda sem hurfu síðustu 27. september síðastliðinn eftir að lögregla réðist að þeim.

Ákærður fyrir glæpi gegn mannkyninu

Jean-Claude Duvalier, eða Baby Doc eins og hann var kallaður, fyrrverandi einræðisherra á Haiti sem lést í gær eftir hjartaslag átti yfir höfði sér ákæru fyrir glæpi gegn mannkyninu.

Bjargar stúlkum undan rakvélarblaðinu

Susan Moyoso er tvítugur eldhugi í Kenía sem segir sitt hlutverk í lífinu vera að bjarga stúlkum frá nauðungarhjónaböndum og kynfæralimlestingum.

Hong Kong búar loka fyrir umferð

Lögregla beitti í nótt piparúða á mótmælendur sem höfðu í þúsundatali sest á götur og lokað fyrir umferð í miðborg Hong Kong.

Aukin harka í mótmælunum í Hong Kong

Aukin harka færðist í mótmælin í Hong Kong í dag eftir að æðsti embættismaður Hong Kong, CY Leung, skipaði lögreglu að grípa til nauðsynlegra ráðstafana til að tryggja að hægt væri að opna opinberar skrifstofur og skóla á mánudag.

Bandaríkjamaðurinn í lífshættu

Níu hafa verið færðir í sóttkví vegna gruns um smit, þar á meðal unnusta hans og sonur, en grunur leikur á að fimmtíu til viðbótar séu í hættu.

Baby Doc látinn

Fyrrverandi einræðisherra Haítí, Jean Claude Duvalier, betur þekktur sem Baby Doc, lést í dag. Doc lést úr hjartaáfalli, 63 ára gamall.

Sjá næstu 50 fréttir