Fleiri fréttir Byggði Twittandi hús Verkfræðingurinn og uppfinningamaðurinn Andy Stanford-Clark á heldur einstakt hús. Það notar nefnilega samskiptavefinn Twitter til þess að láta íbúa þess vita ef hann gleymdi að slökkva ljósin eða hvort músagildran hafi veitt mús. Húsið er einstakt þar sem það sendir Andy skilaboð í gegnum Twitter og lætur hann vita um nákvæma orkunotkun hússins og svo framvegis. 8.9.2009 21:33 Karzai með hreinan meirihluta Samkvæmt nýjustu tölum í afgönsku forsetakosningunum sem fram fóru á dögunum gefa til kynna að Hamid Karzai, sitjandi forseti hafi náð hreinum meirihluta. Frambjóðandi þarf að ná hreinum meirihluta til þess að hljóta útnefningu, annars þarf að kjósa á ný á milli tveggja efstu. 8.9.2009 15:23 Norðmenn dæmdir til dauða Herdómstóll í Austur-Kongó dæmdi í dag tvo Norðmenn til dauða fyrir morð, njósnir og vopnasmygl. Um er að ræða tvo karlmenn, 27 og 28 ára, sem hafa verið haldi yfirvalda frá því í maí eftir að bílstjóri þeirra fannst látinn í höfuðborginni, Kinshasa. Þá eru norsk stjórnvöld krafinn um 60 milljónir dollara vegna málsins. 8.9.2009 14:01 Arctic Sea: Enginn vopnafarmur um borð að sögn Lavrovs Utanríkisráðherra Rússlands vísar alfarið á bug fréttum þess efnis að flutningaskiptið Arctic Sea, sem hvarf um tíma í sumar, hafi verið að flytja háþróaðar rússneskar loftvarnareldflaugar til Írans. 8.9.2009 12:12 Hitabeltisstormurinnn Fred er mættur Hitabeltisstormurinn Fred hefur nú litið dagsins ljós en hann varð til á austanverðu Atlantshafi í gær og var þá gefið nafn samkvæmt reglum Hvirfilbyljamiðstöðvar bandarísku veðurstofunnar en þær eru mjög fastmótaðar og hafa öll nöfn hvirfilbylja nú þegar verið ákveðin fram til ársins 2014. 8.9.2009 08:34 McDonald's-menn ekki sáttir við McCurry Skyndibitarisinn McDonald's beið lægri hlut í deilum um vörumerki við karríréttastað í Malasíu. 8.9.2009 08:24 Calderon skiptir um saksóknara Forseti Mexíkó hefur leyst saksóknara, sem tók þátt í að stjórna átakinu gegn eiturlyfjahringjum, frá störfum vegna lítils árangurs við að leysa upp slíka hringi. 8.9.2009 08:21 Hröpuðu til jarðar í véldrifinni fallhlíf Ótrúlegt þykir að ekki hafi orðið stórslys þegar feðgar í fallhlíf sem knúin var með hreyfli hröpuðu til jarðar og lentu í hópi fólks á hátíðarhöldum vegna frídags verslunarmanna í Hooper í Utah í gær. 8.9.2009 08:19 Krefjast afsökunarbeiðni N-Kóreumanna Suður-Kóreumenn krefjast þess að nágrannar þeirra í norðri biðjist afsökunar á að hafa skyndilega veitt vatnsflaumi í á, sem rennur um landamæri landanna, á sunnudagsmorgun með þeim afleiðingum að sex Suður-Kóreumenn, þar af eitt barn, sem voru í útilegu við ána drukknuðu þegar hún flæddi yfir bakka sína. 8.9.2009 08:14 Ógnaði starfsfólki banka með hlaupstífðri haglabyssu Maður á þrítugsaldri og félagi hans höfðu eitthvað af peningum upp úr krafsinu þegar þeir rændu banka í Åbyhøj á Austur-Jótlandi síðdegis í gær. 8.9.2009 08:13 Annar skjálfti í Indónesíu Jarðskjálfti að styrkleika 6,1 stig á Richter skók indónesísku eyna Jövu í gærdag, innan við viku eftir að 65 manns fórust þar og yfir 400 slösuðust í öðrum sterkum skjálfta. 8.9.2009 08:10 Könguló til heiðurs David Bowie Risastór kafloðin könguló frá Malasíu hefur verið nefnd í höfuðið á tónlistarmanninum David Bowie og nefnist tegundin Heteropoda davidbowie. 8.9.2009 07:57 Ætluðu að sprengja fjölda flugvéla Þrír múslimar, búsettir í Bretlandi og tengdir hryðjuverkasamtökunum al-Qaeda, hafa verið fundnir sekir um að leggja á ráðin um sjálfsmorðssprengjuárásir í stórum farþegaflugvélum á leið yfir Atlantshafið. 8.9.2009 07:30 Ríkisstjórn Taiwans ætlar að segja af sér Ríkisstjórn Taiwans ætlar að segja af sér eftir mikla gagnrýni á því hvernig hún brást við þegar fellibylurinn Morakot gekk yfir landið í ágúst síðastliðnum. Talið er að 758 manns hafi farist þegar fellibylurinn Morakot gekk yfir Taiwan í byrjun ágúst. Eignatjón var gífurlegt. 7.9.2009 12:07 You talking to me? Sérstök spjallsæti hafa verið sett í strætisvagna í Kaupmannahöfn. 7.9.2009 11:44
Sjá næstu 50 fréttir
Byggði Twittandi hús Verkfræðingurinn og uppfinningamaðurinn Andy Stanford-Clark á heldur einstakt hús. Það notar nefnilega samskiptavefinn Twitter til þess að láta íbúa þess vita ef hann gleymdi að slökkva ljósin eða hvort músagildran hafi veitt mús. Húsið er einstakt þar sem það sendir Andy skilaboð í gegnum Twitter og lætur hann vita um nákvæma orkunotkun hússins og svo framvegis. 8.9.2009 21:33
Karzai með hreinan meirihluta Samkvæmt nýjustu tölum í afgönsku forsetakosningunum sem fram fóru á dögunum gefa til kynna að Hamid Karzai, sitjandi forseti hafi náð hreinum meirihluta. Frambjóðandi þarf að ná hreinum meirihluta til þess að hljóta útnefningu, annars þarf að kjósa á ný á milli tveggja efstu. 8.9.2009 15:23
Norðmenn dæmdir til dauða Herdómstóll í Austur-Kongó dæmdi í dag tvo Norðmenn til dauða fyrir morð, njósnir og vopnasmygl. Um er að ræða tvo karlmenn, 27 og 28 ára, sem hafa verið haldi yfirvalda frá því í maí eftir að bílstjóri þeirra fannst látinn í höfuðborginni, Kinshasa. Þá eru norsk stjórnvöld krafinn um 60 milljónir dollara vegna málsins. 8.9.2009 14:01
Arctic Sea: Enginn vopnafarmur um borð að sögn Lavrovs Utanríkisráðherra Rússlands vísar alfarið á bug fréttum þess efnis að flutningaskiptið Arctic Sea, sem hvarf um tíma í sumar, hafi verið að flytja háþróaðar rússneskar loftvarnareldflaugar til Írans. 8.9.2009 12:12
Hitabeltisstormurinnn Fred er mættur Hitabeltisstormurinn Fred hefur nú litið dagsins ljós en hann varð til á austanverðu Atlantshafi í gær og var þá gefið nafn samkvæmt reglum Hvirfilbyljamiðstöðvar bandarísku veðurstofunnar en þær eru mjög fastmótaðar og hafa öll nöfn hvirfilbylja nú þegar verið ákveðin fram til ársins 2014. 8.9.2009 08:34
McDonald's-menn ekki sáttir við McCurry Skyndibitarisinn McDonald's beið lægri hlut í deilum um vörumerki við karríréttastað í Malasíu. 8.9.2009 08:24
Calderon skiptir um saksóknara Forseti Mexíkó hefur leyst saksóknara, sem tók þátt í að stjórna átakinu gegn eiturlyfjahringjum, frá störfum vegna lítils árangurs við að leysa upp slíka hringi. 8.9.2009 08:21
Hröpuðu til jarðar í véldrifinni fallhlíf Ótrúlegt þykir að ekki hafi orðið stórslys þegar feðgar í fallhlíf sem knúin var með hreyfli hröpuðu til jarðar og lentu í hópi fólks á hátíðarhöldum vegna frídags verslunarmanna í Hooper í Utah í gær. 8.9.2009 08:19
Krefjast afsökunarbeiðni N-Kóreumanna Suður-Kóreumenn krefjast þess að nágrannar þeirra í norðri biðjist afsökunar á að hafa skyndilega veitt vatnsflaumi í á, sem rennur um landamæri landanna, á sunnudagsmorgun með þeim afleiðingum að sex Suður-Kóreumenn, þar af eitt barn, sem voru í útilegu við ána drukknuðu þegar hún flæddi yfir bakka sína. 8.9.2009 08:14
Ógnaði starfsfólki banka með hlaupstífðri haglabyssu Maður á þrítugsaldri og félagi hans höfðu eitthvað af peningum upp úr krafsinu þegar þeir rændu banka í Åbyhøj á Austur-Jótlandi síðdegis í gær. 8.9.2009 08:13
Annar skjálfti í Indónesíu Jarðskjálfti að styrkleika 6,1 stig á Richter skók indónesísku eyna Jövu í gærdag, innan við viku eftir að 65 manns fórust þar og yfir 400 slösuðust í öðrum sterkum skjálfta. 8.9.2009 08:10
Könguló til heiðurs David Bowie Risastór kafloðin könguló frá Malasíu hefur verið nefnd í höfuðið á tónlistarmanninum David Bowie og nefnist tegundin Heteropoda davidbowie. 8.9.2009 07:57
Ætluðu að sprengja fjölda flugvéla Þrír múslimar, búsettir í Bretlandi og tengdir hryðjuverkasamtökunum al-Qaeda, hafa verið fundnir sekir um að leggja á ráðin um sjálfsmorðssprengjuárásir í stórum farþegaflugvélum á leið yfir Atlantshafið. 8.9.2009 07:30
Ríkisstjórn Taiwans ætlar að segja af sér Ríkisstjórn Taiwans ætlar að segja af sér eftir mikla gagnrýni á því hvernig hún brást við þegar fellibylurinn Morakot gekk yfir landið í ágúst síðastliðnum. Talið er að 758 manns hafi farist þegar fellibylurinn Morakot gekk yfir Taiwan í byrjun ágúst. Eignatjón var gífurlegt. 7.9.2009 12:07
Risarotta á meðal 40 nýuppgötvaðra dýrategunda Hópur líffræðinga og sjónvarpsfólks frá breska ríkisútvarpinu BBC hefur uppgötvað áður óþekktar dýrategundir í gíg hins afskekkta Bosavi-eldfjalls sem er á hálendi Papúa Nýju-Gíneu. 7.9.2009 08:34
Stjórnvöld í Venesúela í stríði við fjölmiðla Stjórnvöld í Venesúela hafa lokað yfir 30 útvarpsstöðvum síðasta mánuðinn og von er á að minnsta kosti jafnmörgum lokunum til viðbótar. 7.9.2009 08:17
Segja Íslendinga veiða fleiri hvali en þeir geti torgað Bresk dýraverndunarsamtök segja Íslendinga hafa drepið 93 langreyðar í sumar, sem sé það mesta síðan alþjóðlegt bann við hvalveiðum í hagnaðarskyni tók gildi fyrir rúmum 20 árum. 7.9.2009 08:14
Moore telur auðvaldsskipulagið illt Auðvaldsskipulagið er af hinu illa. Þetta er niðurstaða nýrrar heimildamyndar Michaels Moore. 7.9.2009 07:29
Johnny Rotten hyggst endurvekja Public Image Pönktónlistarmaðurinn John Lydon, betur þekktur sem Johnny Rotten úr hljómsveitinni Sex Pistols, hyggst vekja hljómsveit sína, Public Image Ltd, til lífsins á nýjan leik og halda í fimm daga langt tónleikaferðalag í desember. 7.9.2009 07:27
Bandaríkin selja langmest af vopnum Bandaríkjamenn seldu tæplega 70 prósent allra vopna sem seld voru á alþjóðavettvangi árið 2008 og jókst salan um helming það ár þrátt fyrir ástandið í efnahagsmálum heimsins. 7.9.2009 07:21
Hanski Jacksons seldur fyrir sex milljónir Hvítur hanski, sem Michael Jackson heitinn klæddist við brúðkaup sitt árið 1996, seldist á uppboði í Ástralíu í gær fyrir rúmlega sex milljónir króna. 7.9.2009 07:20
Staðsetningartæki sett á hvítháfa Vísindamenn í Massachusetts hafa fest staðsetningartæki við tvo hvítháfa sem sáust út af Cape Cod og er það í fyrsta sinn sem slík tæki eru fest á hvítháfa í Atlantshafi. Er þetta gert til að auðvelda rannsóknir á ferðum og hegðun hákarlanna. 7.9.2009 07:16
Fimmtán drukknuðu þegar skemmtibátur sökk Fimmtán ferðamenn drukknuðu þegar yfirhlaðinn skemmtibátur sökk á stöðuvatni í Makedóníu í gær. Fimmtíu og þrem var bjargað. 6.9.2009 18:38
Blóðugir bardagar í Birmingham Blóðugir götubardagar voru háðir í Birmingham í dag þegar samtök sem kalla sig verjendur Englands komu saman til þess að mótmæla öfgasamtökum múslima. 6.9.2009 17:19
Ragnar vill geta mjólkað sig Á þriðjudagskvöldið hefst nokkuð merkileg tilraun í sænska sjónvarpinu. Þá mun hinn tuttugu og sex ára gamli Ragnar Bengtsson setja brjóstapumpu á geirvörturnar á sér í þeirri von að geta framleitt brjóstamjólk. 6.9.2009 16:19
Viðskiptahagsmunir ofar réttlætinu Rifrildið yfir samskiptum Bretlands og Líbýu tók nýja stefnu í dag þegar Gordon Brown var sakaður um að hafa veigrað sér við að krefja Libyumenn um skaðabætur til þeirra fjölskyldna sem misstu ástvini fyrir byssum og sprengjum Írska lýðveldishersins. Libya sá lýðveldishernum fyrir vopnum áratugum saman. 6.9.2009 14:57
Ráðherrafrú lifir á kerfinu í Kaupmannahöfn Hinn fimmtíu og sjö ára gamli Adnan Al-Assadi hefur danskan ríkisborgararétt. Hann býr hinsvegar í Bagdad þar sem hann er aðstoðar utanríkisráðherra Íraks. 6.9.2009 13:07
Ráðgjafi Obamas hrökklast úr starfi Van Jones var einn af stórum hópi manna sem á sínum tíma undirrituðu skjal þar sem því var haldið fram að ríkisstjórn Georges Bush hefði átt þátt í og borið ábyrgð á árásunum á Tvíburaturnana í New York og varnarmálaráðuneytið í Washington. 6.9.2009 13:02
Áfram byggt á herteknum svæðum Það er þegar verið að reisa um 2500 hús í landnemabyggðum Ísraela á Vesturbakkanum. Ísraelar vilja ekki líta á þetta sem frekara landnám heldur eðlilega stækkun þeirra byggða sem fyrir eru. 6.9.2009 12:59
Opna spilavíti í kreppunni Ráðamenn í Kansasríki í Bandaríkjunum hafa ákveðið að fara ótroðnar slóðir í tekjuöflun í kreppunni. Ríkið ætlar að henda sér í spilavítisrekstur og setja tekjur af því í rekstur skóla og opinberrar þjónustu. 6.9.2009 12:00
Yfir áttahundruð bjargað af sökkvandi ferju Yfir áttahundruð manns var í morgun bjargað af sökkvandi ferju á Filipseyjum. Þrír létu lífið og áttatíu og átta er saknað. Talið er að flestir þeirra hafi bjargast um borð í fiskibáta. 6.9.2009 10:06
Bróðir Jackson gagnrýnir upptöku af jarðarförinni Randy Jackson, einn af bræðrum Michael, hefur gagnrýnt "leynilegar" upptökur af jarðarför bróður síns í Los Angeles. Bein útsending af gestum að koma í jarðarförin hafði verið skipulögð en var stöðvuð þegar lík poppstjörnunnar kom í kirkjugarðinn. 6.9.2009 07:00
Viltu stunda öruggt kynlíf? Þá þarftu brauð Sumar Breskar konur halda að brauð, matarfilma og kjúklingahúð geti komið í stað smokka, ef marka má skoðanakönnun sem var kynnt í dag. Úrtakið var um þúsund konur á aldrinum 18 til 50 ára og útkoman sýndi nokkrar mjög skrýtnar hugmyndir um fjölskyldulífið. 5.9.2009 21:30
G20: Efnahagsástandið betra nú en í apríl Tuttugu helstu iðnveldi heims segja að efnahagsástandið í heiminum sé mun betra en á fundi þeirra í apríl síðastliðnum. Á þeim fundi var aðallega rætt um neyðarráðstafanir gegn kreppunni. 5.9.2009 17:05
Lífstíðarfangelsi fyrir nauðgun og morð Bandaríski hermaðurinn Steven Green sem nauðgaði og myrti 14 ára gamla íraska stelpu eftir að hafa skotið foreldra hennar og yngri systur til bana hefur verið dæmdur í lífstíðarfangelsi án möguleika á reynslulausn. 5.9.2009 16:57
Enn rifist um úrslit forsetakosninga í Afganistan Enn er rifist um úrslit forsetakosninganna í Afganistan. Það er kannski ekki skrýtið því tölur frá kjörstöðum eru dálítið undarlegar. 5.9.2009 16:00
Sjöundi maðurinn handtekinn vegna skartgriparáns í Bretlandi Sjöundi maðurinn hefur verið handtekinn vegna stærsta skartgripaþjófnaðar Bretlands í Graff skartgripaversluninni á dögunum. 5.9.2009 13:22
Hefur lofað rannsókn á loftárásinni í Afganistan Óttast er að mannskæð loftárás sem bandarísk herþota gerði í Afganistan í gær geti orðið NATO fjötur um fót við friðargæslu í landinu. 5.9.2009 11:57
Látinn laus vegna olíu Jack Straw dómsmálaráðherra Bretlands hefur viðurkennt að olíusamningur hafi ráðið miklu um að einum líbysku Lockerbie morðingjanna var sleppt úr fangelsi. Gordon Brown forsætisráðherra hafði áður harðneitað því. 5.9.2009 10:58
Ofurbónusar enn gagnrýndir Fjármálaráðherrar og seðlabankastjórar 20 stærstu iðnríkja heims hittust í London í gær til að undirbúa leiðtogafund ríkjanna, sem haldinn verður í Bandaríkjunum 24. og 25. september. 5.9.2009 05:15
Hlaut lífstíðarfangelsi fyrir að nauðga og myrða íraska stúlku Bandarískur hermaður hlaut í dag fimmfaldan lífstíðardóm fyrir nauðga og myrða íraska stúlku og fjölskyldu hennar. Fjórir aðrir hermenn fengu vægari dóma vegna málsins. 4.9.2009 22:13
Innbrotsþjófar á unglingsaldri drepnir Eigandi einbýlisshús í Texas í Bandaríkjunum skaut tvo 16 ára unglinga til bana, og særði annan lífshættulega, þegar ungmenninn brutust inn á heimili hans í dag. Fjórði unglingurinn komst ósærður undan. Ekki er vitað hvað þeim gekk til. 4.9.2009 21:08
Ekki hægt að bera kennsl á mörg líkanna Uppundir 100 manns féllu þegar orrustuþotur NATO gerðu árás á tvo olíubíla sem Talibanar höfðu rænt í Afganistan. Óljóst er hvort óbreyttir borgarar voru á meðal þeirra. Mörg líkanna voru svo illa brunnin að ekki var hægt að bera kennsl á þau. 4.9.2009 20:15
Bjössi fær nýtt búr Ísbirnirnir í dýragarðinum í Kaupmannahöfn fá nýja gryfju til að hreiðra sig um í árið 2012. Dýrin fá gryfjuna að gjöf frá góðgerðarsamtökum í tilefni af 150 ára afmæli dýragarðsins eftir því sem fram kemur í Berlingske Tidende. 4.9.2009 10:31