Stjórnvöld í Venesúela í stríði við fjölmiðla Atli Steinn Guðmundsson skrifar 7. september 2009 08:17 Mótmæli í Venesúela. Myndin á spjaldinu er af Chavez forseta. MYND/AFP/Getty Images
Stjórnvöld í Venesúela hafa lokað yfir 30 útvarpsstöðvum síðasta mánuðinn og von er á að minnsta kosti jafnmörgum lokunum til viðbótar. Háværar mótmælaraddir hafa heyrst í höfuðborginni Caracas og gengu mótmælendur fylktu liði um götur borgarinnar á föstudag til að vekja athygli á því sem þeir kalla aðför stjórnvalda að tjáningarfrelsinu. Ráðherra fjarskiptamála, Diosdado Cabello, segir að stöðvarnar sem lokað hafi verið, 32 útvarpsstöðvar og tvær sjónvarpsstöðvar, hafi einfaldlega ekki uppfyllt þau skilyrði sem sett eru fyrir útsendingarleyfi og það sama gildi um tæplega 30 aðrar sem lokað verði á næstu dögum. Þá hafa stjórnvöld stefnt sjónvarpsstöðinni Globovision en stjórnendum hennar er gefið að sök að hafa beinlínis hvatt til frekari mótmæla gegn Hugo Chavez, forseta landsins, í fréttaumfjöllun um nýafstaðin mótmæli. Á þessu segir Cabello sjónvarpsstöðina þurfa að axla ábyrgð en einnig sé til rannsóknar hvort Globovision hafi brotið lög í byrjun maí þegar stöðin greindi frá jarðskjálfta áður en opinber tilkynning hafði verið gefin út um skjálftann. Einkareknir fjölmiðlar hafa átt erfitt uppdráttar í Venesúela síðan Hugo Chavez settist í forsetastólinn og hefur hann oft sakað þá um að vinna gegn stjórnvöldum landsins.
Mest lesið Öllum heilbrigðisfulltrúum landsins sagt upp Innlent „Ég er ógeðslega reiður“ Innlent Flugmaður stakk kollega sinn og reyndi að brotlenda vélinni Erlent Aðstandendum sýnd mynd af líkinu fyrir slysni Innlent Íslensk heimili eigi að geta þolað sársaukann Innlent Tilkynnt um ölvaðan flugmann Innlent Umræðan verið erfið fyrir eiginkonuna Innlent Starfsmaður Landsnets fluttur erlendis á sjúkrahús Innlent Konan sem lögreglan lýsti eftir er fundin Innlent Ráðgjöf Heiðu Kristínar kostaði fjórtán milljónir Innlent Fleiri fréttir Flugmaður stakk kollega sinn og reyndi að brotlenda vélinni Rússar sagðir hafa ætlað að myrða Kasparov Flugvél beint annað eftir „slagsmál“ milli flugmanna Hundruð unglinga handteknir í Frakklandi Einn mannanna fimm hafi hringt sjálfur í neyðarlínuna Stríðsyfirlýsing sem gæti leitt til nýrra kosninga Fundu eldsneyti en engin sprengiefni í bílunum Hafa enn ekki ákveðið hvort rétta eigi aftur yfir Clancy Skoða byggingu evrópskrar geimstöðvar Enn lítið um svör í Englandi Fundu lúxusíbúð með golfhermi innan veggja fangelsis Síðustu hermennirnir fara frá Írak, aftur Eistar saka Rússa um fjölþáttaárás Búa í „helvíti á jörðu“ og borða illgresi til að halda lífi „Háfhrifavaldur“ fastur í kóresku síki Kynna fyrsta „núllosunarsvæði“ Danmerkur Norlén tekinn aftur við og boðar formenn á fund Kallaði ráðherra á fund vegna handtöku mannanna við herstöðina Stjórnandi hjá New York Times myrtur af tengdaforeldrum sínum Hlýtur ríflega sjötíu svipuhögg fyrir að koma fram án höfuðslæðu Sækja fram gegn Rússum í Dónetsk Hryðjuverkamönnunum grunuðu sleppt úr haldi Starship á sporbraut í fyrsta sinn Allir mennirnir breskir ríkisborgarar Spurði Xi hvort hann vildi kaupa bandarísk vopn Sjö sakaðir um að nauðga samnemanda klukkustundum saman Vilja formlega afsökun frá Selenskí Trump vill fleiri bensínháka á göturnar Segist hafa gefist upp á stjórnarmyndun í Svíþjóð Rannsaka möguleg tengsl Íran við meinta hryðjuverkamenn Sjá meira