Ríkisstjórn Taiwans ætlar að segja af sér 7. september 2009 12:07
Ríkisstjórn Taiwans ætlar að segja af sér eftir mikla gagnrýni á því hvernig hún brást við þegar fellibylurinn Morakot gekk yfir landið í ágúst síðastliðnum. Talið er að 758 manns hafi farist þegar fellibylurinn Morakot gekk yfir Taiwan í byrjun ágúst. Eignatjón var gífurlegt. Stjórnvöld hafa síðan legið undir miklu ámæli fyrir sein viðbrögð. Það á við bæði um forseta landsins og ríkisstjórnina í heild. Liu Chao-shiuan forsætisráðherra hefur nú ákveðið að falla á sverð sitt til þess að reyna að stilla til friðar. Hann tilkynnti á fundi með fréttamönnum í dag að hann hefði lagt afsögn sína fyrir Ma Ying-jeou forseta og forsetinn hefði fallist á hana. Forsætisráðherrann sagði einnig að ríkisstjórn hans myndi öll segja af sér síðar í vikunni. Vonast er til að með þessu verði Ma forseta fært að sitja áfram en forsetinn er í raun sá sem valdið hefur á Taiwan.
Mest lesið Öllum heilbrigðisfulltrúum landsins sagt upp Innlent „Ég er ógeðslega reiður“ Innlent Flugmaður stakk kollega sinn og reyndi að brotlenda vélinni Erlent Aðstandendum sýnd mynd af líkinu fyrir slysni Innlent Tilkynnt um ölvaðan flugmann Innlent Íslensk heimili eigi að geta þolað sársaukann Innlent Valgerður réttir fram sáttahönd Innlent Umræðan verið erfið fyrir eiginkonuna Innlent Starfsmaður Landsnets fluttur erlendis á sjúkrahús Innlent Konan sem lögreglan lýsti eftir er fundin Innlent Fleiri fréttir Flugmaður stakk kollega sinn og reyndi að brotlenda vélinni Rússar sagðir hafa ætlað að myrða Kasparov Flugvél beint annað eftir „slagsmál“ milli flugmanna Hundruð unglinga handteknir í Frakklandi Einn mannanna fimm hafi hringt sjálfur í neyðarlínuna Stríðsyfirlýsing sem gæti leitt til nýrra kosninga Fundu eldsneyti en engin sprengiefni í bílunum Hafa enn ekki ákveðið hvort rétta eigi aftur yfir Clancy Skoða byggingu evrópskrar geimstöðvar Enn lítið um svör í Englandi Fundu lúxusíbúð með golfhermi innan veggja fangelsis Síðustu hermennirnir fara frá Írak, aftur Eistar saka Rússa um fjölþáttaárás Búa í „helvíti á jörðu“ og borða illgresi til að halda lífi „Háfhrifavaldur“ fastur í kóresku síki Kynna fyrsta „núllosunarsvæði“ Danmerkur Norlén tekinn aftur við og boðar formenn á fund Kallaði ráðherra á fund vegna handtöku mannanna við herstöðina Stjórnandi hjá New York Times myrtur af tengdaforeldrum sínum Hlýtur ríflega sjötíu svipuhögg fyrir að koma fram án höfuðslæðu Sækja fram gegn Rússum í Dónetsk Hryðjuverkamönnunum grunuðu sleppt úr haldi Starship á sporbraut í fyrsta sinn Allir mennirnir breskir ríkisborgarar Spurði Xi hvort hann vildi kaupa bandarísk vopn Sjö sakaðir um að nauðga samnemanda klukkustundum saman Vilja formlega afsökun frá Selenskí Trump vill fleiri bensínháka á göturnar Segist hafa gefist upp á stjórnarmyndun í Svíþjóð Rannsaka möguleg tengsl Íran við meinta hryðjuverkamenn Sjá meira