Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
106 ára gömul kona neitar að yfirgefa hjúkrunarheimili Hundrað og sex ára gömul kona, Louisa Watts, sem er fimmta elsta kona Bretlands, berst nú gegn því að vera flutt af hjúkrunarheimili í Wolverhampton sem til stendur að loka í sparnaðarskyni. 28.9.2009 07:29
Móðgaði Brown með spurningum um lyfjanotkun Gordon Brown, forsætisráðherra Bretlands, er sármóðgaður út í Andrew Marr, helsta stjórnmálaskýranda BBC, eftir að Marr spurði hann í viðtali um helgina hvort hann notaði lyf til að komast gegnum daginn. 28.9.2009 07:28
83 látnir og margra saknað Að minnsta kosti 83 hafa látist og 23 er saknað eftir að fellibylurinn Ketsana gekk yfir norðurhluta Filippseyja. Flóðin á svæðinu eru þau mestu í fjóra áratugi. Rigningu kyngdi látlaust niður í einn sólarhring og var hún álíka mikil þennan sólahring og meðaltal alls septembermánaðar. Rúmlega 330 þúsund manns þurftu að glíma við afleiðingar fellibylsins. Þar af voru 59 þúsund manns flutt í um eitt hundrað skóla, kirkjur og önnur húsnæði. Margir íbúar misstu allar eigur sínar en voru engu að síður þakklátir fyrir að vera enn á lífi. „Við erum komin aftur á byrjunarreit,“ sagði einn íbúanna. 28.9.2009 06:30
Aukin pressa á Íransstjórn Öryggisráð Sameinuðu þjóðanna samþykkti fyrir helgina einróma að „skapa skilyrði þess að heimurinn verði án kjarnorkuvopna“. 28.9.2009 05:30
Írar nú sáttari við Lissabon-sáttmálann Örlög Lissabon-sáttmála Evrópusambandsins ráðast í þjóðaratkvæðagreiðslu á Írlandi næsta föstudag. Samkvæmt skoðanakönnun, sem birt var fyrir helgi, eru góðar líkur til þess að samningurinn verði samþykktur. 28.9.2009 04:30
Angela Merkel lýsti yfir sigri í kosningunum Angela Merkel, kanslari Þýskalands, hefur lýst yfir sigri í þingkosningunum þar í landi. Flokkur hennar, Kristilegir demókratar, geta myndað stjórn með frjálsum demókrötum ef niðurstöður verða eins og fyrsta útgönguspá gefur til kynna. Sextíu og tvær milljónir manna eru á kjörskrá í Þýskalandi en kjörstöðum hefur verið lokað. 27.9.2009 19:25
Flugmaðurinn í þyrluráninu handtekinn Sænska lögreglan hefur handtekið þyrluflugmann úr þyrluráni sem framið var í Stokkhólmi á miðvikudaginn, eftir því sem fram kemur í blaðinu Expressen. Lögregluþjónar fóru í dag á heimili mannsins til að gera húsleit þar. Fleiri hafa verið handteknir í dag vegna málsins. 27.9.2009 14:13
Kosið í Þýskalandi í dag Kjörfundur hófst í Sambandsþingskosningunum í Þýskalandi klukkan 6 í morgun að íslenskum tíma eða 8 að staðartíma. 62 milljónir manna eru á kjörskrá. Gríðarleg öryggisgæsla er í landinu vegna kosninganna, enda hafa alþjóða hryðjuverkasamtök hótað því að láta til skarar skríða í Þýskalandi í dag. Búist er við að Angela Merkel kanslari og flokkur hennar, kristilegir demókratar, beri sigur út býtum í þingkosningunum. 27.9.2009 10:04
Danskir sósíaldemókratar vilja banna vændiskaup Sósíaldemókratar í Danmörku vilja banna kaup á vændi með lögum líkt og gert hefur verið á hinum Norðurlöndunum. Ályktun þessa efnis var samþykkt á landsfundi Sósíaldemókrata í Álaborg í gær. 27.9.2009 08:00
Rændu gullsmíðaverkstæði í Álaborg Tveir menn huldir reykgrímurm réðust á í morgun inn í gullsmíðaverkstæðið N.P. Nielsen í Bispensgade í Álaborg og flúðu á brott með skartgripi að verðmæti allt að 100 þúsund dönskum krónum eða um 2,5 milljónum íslenskra. 26.9.2009 11:37
Eftirlitsmenn SÞ mega skoða auðgunarstöð á Úrani Eftirlitsmönnum Sameinuðu þjóðanna er velkomið að skoða nýja auðgunarstöð á úrani sem Íranar hafa komið sér upp. Þetta segir Mahmoud Ahmadinejad forseti landsins. Íranar voru harðlega gagnrýndir í gær af leiðtogum Bandaríkjanna, Bretlands og Frakklands eftir að upplýst var að þeir hefðu leynilega komið sér upp nýrri auðgunarstöð á úrani. 26.9.2009 09:43
Stóra samsteypan gæti lifað Angela Merkel Þýskalandskanslari á sér þá ósk heitasta að losna úr stjórnarsamstarfi við Sósíaldemókrata og mynda samsteypustjórn með Frjálsum demókrötum. Hvort henni verður að ósk sinni ræðst á morgun, þegar Þjóðverjar kjósa sér nýtt þing. 26.9.2009 01:15
Boða nýtt regluverk „Hið gamla kerfi alþjóðlegrar efnahagssamvinnu heyrir sögunni til. Nýja kerfið, frá og með deginum í dag, er komið af stað,“ sagði Gordon Brown, forsætisráðherra Bretlands, á leiðtogafundi tuttugu mestu iðnríkja heims í Pittsburgh í Bandaríkjunum. 26.9.2009 00:45
Barnaníðinga verður að gelda Neðri deild pólska þingsins samþykkti í gær frumvarp sem gerir yfirvöldum skylt að gelda barnaníðinga með lyfjagjöf. Frumvarpið fer nú til efri deildar þingsins, en þarf einnig samþykki forsetans. Talið er víst að það verði að lögum. 26.9.2009 00:30
Íranir undir miklum þrýstingi á G20 fundinum Íranir hafa komið sér upp aðstöðu til auðgunar úrans í leynilegri tilraunastöð. Barack Obama sagði í ræðu sinni á G20 fundinum sem hófst í Pittsburgh í Bandaríkunum í dag að skýlaus krafa væri uppi um að eftirlitsmenn á vegum Sameinuðu þjóðanna fái að rannsaka stöðina. 25.9.2009 14:40
Sjóræningjar láta enn til skarar skríða Sómalskir sjóræningjar ruddustu um borð í skip sem var á leið til höfuðborgarinnar Mogadishu og skutu skipstjórann til bana. Skipstjórinn, sem var frá Alsír hafði neitað að verða við skipunum ræningjanna um að breyta um stefnu á skipinu að sögn sómalskra yfirvalda. 25.9.2009 13:11
Mjaðmaaðgerðir kostnaðarsamar fyrir breska skattgreiðendur Einn af hverjum fimm Bretum, sem gengst undir mjaðmaaðgerð á breskum einkasjúkrahúsum og stofum, þarf á nýrri aðgerð eða viðgerð að halda, innan við þremur árum eftir aðgerð. Margar hinna síðari aðgerða eru framkvæmdar á opinberum sjúkrahúsum með miklum kostnaði fyrir breska skattgreiðendur. 25.9.2009 12:22
Áður óbirt myndband með Jackson Áður óbirt myndband, sem sýnir Michael Jackson heitinn æfa flutning lagsins This is it, hefur nú litið dagsins ljós. 25.9.2009 09:03
Vopnabrak og gnýr á G20-fundi Táragas og tuddaskapur einkenndu upphaf hins svokallaða G20-fundar í Pittsburgh sem hófst í gær. 25.9.2009 08:54
Segir tóma blekkingu að Noregur standi utan ESB „Það er tóm blekking að Noregur standi utan við Evrópusambandið,“ sagði Fredrik Sejersted, formaður Evrópuréttarstofnunar Óslóarháskóla, á morgunverðarfundi um stöðu Noregs í Evrópu sem haldinn var í Norræna húsinu í gær. 25.9.2009 06:00
Vekur vonir um sigur á AIDS Alþjóða heilbrigðisstofnunin WHO og Alnæmisstofnun Sameinuðu þjóðanna segja að tilraunir í Taílandi með nýtt bóluefni gegn alnæmi hafi gengið vel og lofi mjög góðu. 25.9.2009 06:00
Obama vill lesa betri dagblöð Forseti Bandaríkjanna hefur hug á að gera lagafrumvarp til að auðvelda dagblöðum að sporna gegn þeirri hnignun sem þau standa frammi fyrir. Til greina mun koma að dagblöðin, í breyttu rekstrarformi, fái skattaívilnanir. Fari svo verði þau ekki rekin í ágóðaskyni. 25.9.2009 03:30
Framleiðandi AK-47 á leið á hausinn Stærsti vopnaframleiðandi Rússlands sem kallast Izhmash stendur frammi fyrir gjaldþroti. Fyrirtækið er þekktast fyrir að framleiða Kalashnikov vélbyssuna sem einnig er þekkt undir nafninu AK-47. AK-47 er útbreiddasta vélbyssa sögunnar og hefur hún komið við sögu í flestum ef ekki öllum stríðum sem háð hafa verið frá lokum seinni heimstyrjaldarinnar. 24.9.2009 10:48
Íslenskur þorskur í úrslitum í Bretlandi Spennan er heldur betur farin að magnast í keppninni um besta „Fish ´n´Chips“ staðinn í Bretlandi. Nú eru einungis sex staðir eftir í keppninni en flestir hafa sterkar skoðanir á því hvernig best sé að útbúa þennan þjóðarrétt Breta. 24.9.2009 10:19
Nýtt bóluefni gegn alnæmi dregur úr líkum á sýkingu Nýtt bóluefni hefur fundist gegn alnæmi sem dregur úr líkum á sýkingu af völdum þessa sjúkdóms. Bóluefnið er enn á tilraunastigi en fyrstu niðurstöður benda til að það minnki líkur á sýkingu um þriðjung. 24.9.2009 08:35
Sádi-Arabar bjóða bæði kyn velkomin í háskóla Sádi-Arabar hafa opnað sinn fyrsta háskóla sem stendur stúdentum af báðum kynjum opinn. 24.9.2009 08:08
Níu ára fangelsi fyrir skotárás á McDonald's Félagi í vélhjólasamtökunum Vítisenglum í Danmörku og tveir menn sem bíða inngöngu í samtökin hafa verið dæmdir í níu ára fangelsi fyrir tilraun til manndráps þegar þeir gerðu skotárás á þrjá menn úr annarri vélhjólaklíku á McDonald's-stað í Árósum fyrir tæpu ári. 24.9.2009 07:35
Nýjar smyglleiðir frá Mexíkó Mexíkóskir smyglarar leita sífellt nýrra leiða til að koma ólöglegum innflytjendum og fíkniefnum til Bandaríkjanna og nýjasta aðferð þeirra er að sigla meðfram Kyrrahafsströndinni frá Mexíkó og taka land á fáförnum slóðum á strandlengju Kaliforníu. 24.9.2009 07:24
Indverjar finna vatn á tunglinu Indverjar hafa fundið vatn á tunglinu, fyrstir manna. Þetta gerðist í fyrsta tunglleiðangri þeirra en þar var á ferð ómannað könnunarfar með búnað sem sérstaklega var ætlað að leita að ummerkjum um vatn. 24.9.2009 07:22
Mafíukrókódíll upptækur Lögregla í Napólí á Ítalíu gerði krókódíl í eigu mafíuforingjans Sergio Di Mauro upptækan við húsleit á heimili hans í síðustu viku. 24.9.2009 07:18
Páfi heimsækir Breta á næsta ári Benedikt XVI páfi heldur í opinbera heimsókn til Bretlands á næsta ári og verður það í fyrsta sinn síðan 1982 sem páfi heimsækir landið. 24.9.2009 07:17
Verðið lækkar erlendis Heimsmarkaðsverð á hráolíu féll um tæp fjögur prósent og fór undir sjötíu dali á tunnu í gær eftir að bandaríska orkumálaráðuneytið birti vikulega tölur um olíubirgðir í landinu. 24.9.2009 06:00
Obama að ávarpa allsherjarþing SÞ Barack Obama Bandaríkjaforseti hóf fyrir stundu fyrstu ræðu sína á allsherjarþingi Sameinuðu Þjóðanna sem nú stendur yfir. Ræðan hófst klukkan hálftvö að íslenskum tíma og er búist við því að forsetinn muni afra yfir aðgerðir Bandaríkjamanna til þess að takast á við alheimskreppuna auk þess sem búist er við því að Obama lýsi þeirri viðhorfsbreytingu sem átt hefur sér stað í Hvíta húsinu gagnvart Sameinuðu þjóðunum frá því hann tók við. 23.9.2009 13:45
Líklegt að ræningjarnir í Svíþjóð hafi hlotið herþjálfun Sænska lögreglan telur að þyrluflugmaðurinn sem tók þátt í að ræna peningageymslu öryggisfyrirtækis í morgun hafi hlotið herþjálfun. Þá leikur einnig grunur á að einn ræningjanna sé starfsmaður öryggisfyrirtækisins. 23.9.2009 12:33
Fjórir ræningjar á þyrlu sneru á sænsku lögregluna Djarfir ræningjar á þyrlu sprengdu upp peningageymslu öryggisfyrirtækis og nældu sér í óþekkta peningaupphæð í Västberga í Stokkhólmi snemma í morgun. 23.9.2009 08:44
Bréf Hitlers, Churchills og fleiri til sýnis í New York Bréf frá Adolf Hitler, þar sem fyrirskipað er að Berlín skuli varin meðan nokkur maður stendur uppi, er meðal muna á sýningu stríðsgrúskara nokkurs í New York. 23.9.2009 08:30
Jarðneskar leifar úr Trójustríðinu Fornleifafræðingar í Tyrklandi hafa fundið jarðneskar leifar fólks sem talið er að hafi dáið í Trójustríðinu 1.200 árum fyrir Krists burð. 23.9.2009 08:25
Sydney hulin rykmekki Glórulaus rykstormur fer nú um austurhluta Ástralíu, þar á meðal Sydney, en þar sáu menn varla milli húsa í morgun. Slíkir stormar eru ekki óalgengir í Ástralíu en eru oftast meira inn til landsins. 23.9.2009 08:19
Skógareldar í Kaliforníu á ný Enn á ný geisa skógareldar í Kaliforníu og fengu tveir slökkviliðsmenn reykeitrun í gær þegar þeir börðust við elda í suðvesturhluta ríkisins. 23.9.2009 08:15
Skotbardagi við landamæri Mexíkó Hliðinu við San Ysidro, sem eru landamæri Bandaríkjanna og Mexíkó og er í Kaliforníu Bandaríkjamegin, var lokað í nokkrar klukkustundir í gær eftir að skotbardagi braust þar út. 23.9.2009 08:08
Sjö látnir í flóðum í Georgíu Sjö eru látnir í miklum flóðum í norðurhluta Georgíuríkis í Bandaríkjunum en miklar rigningar hafa valdið því að Chattahoochee-áin hefur flætt yfir bakka sína, kaffært um þúsund heimili og slegið út rafmagni hjá alls 30.000 manns. 23.9.2009 07:34
Irina Bokava stýrir UNESCO Frakkland, AP Irina Bokava, sendiherra Búlgaríu í Frakklandi, verður næsti framkvæmdastjóri UNESCO, menningarmálastofnunar Sameinuðu þjóðanna. 23.9.2009 03:30
Jarðýtum beitt á búðir flóttamanna Franska lögreglan réðst í gærmorgun til atlögu gegn ólöglegum búðum flóttamanna, sem höfðu komið sér fyrir skammt frá borginni Calais við Ermarsund, í þeirri von að komast yfir til Englands um Ermarsundsgöngin. 23.9.2009 03:30
Öryggisgæsla hert í Þýskalandi vegna al-Qaeda Öryggisgæsla hefur verið hert í Þýskalandi vegna myndskeiða sem hryðjuverkasamtökin al-Qaeda hafa birt. Á myndskeiðunum hótar al-Qaeda árásum dragi Þjóðverjar ekki herlið sitt til baka frá Afganistan. Kosið er í Þýskalandi á sunnudag en einungis einn flokkur, Vinstri, er fylgjandi því að herlið Þjóðverða verði samstundis kvatt heim. 22.9.2009 23:25
Danir eru bjartsýnir þrátt fyrir kreppu Þrátt fyrir að Danir hafi orðið fyrir barðinu á alheimskreppunni eins og íbúar í flestum öðrum þjóðum heims eru viðhorf þeirra til framtíðarinnar mjög jákvæð. Þetta sýnir rannsókn um viðhorf Dana til framtíðarinnar, sem Capacent rannsóknir gerðu fyrir Rauða krossinn í Danmörku. 22.9.2009 21:42