Bréf Hitlers, Churchills og fleiri til sýnis í New York Atli Steinn Guðmundsson skrifar 23. september 2009 08:30 Rendell í sýningarsal sínum.
Bréf frá Adolf Hitler, þar sem fyrirskipað er að Berlín skuli varin meðan nokkur maður stendur uppi, er meðal muna á sýningu stríðsgrúskara nokkurs í New York. Kenneth Rendell er 67 ára gamall og rekur gallerý í New York sem kennt er við hann. Í tilefni þess að 70 ár eru nú liðin frá innrás Þjóðverja í Pólland og upphafi síðari heimsstyrjaldarinnar hefur Rendell dregið ávöxt ævistarfs síns fram, heilmikið safn bréfa og skjala sem mörg hver fóru milli þjóðar- og stríðsleiðtoga og skópu í sumum tilfellum fjölda manns örlög. Rendell segir safnið vera fullt af draugum, eins og hann orðar það, og vissulega svífur andi þessa hörmungartíma þar yfir vötnum. Bréf Hitlers um Berlínarvörnina er eitt en Rendell lumar einnig á bréfi sem breski forsætisráðherrann Winston Churchill skrifaði Frakklandsforseta þar sem hann eys yfir hann skömmum vegna breskra hermanna sem týndu lífinu við að bjarga franskri hersveit. Churchill sendi bréfið hins vegar aldrei en sá sig um hönd og skrifaði annað mildara. John F. Kennedy biður um að vera færður yfir á tundurskeytabát á Suður-Kyrrahafi í bréfi frá 1943 og er það væntanlega forsmekkurinn að því að hann réðst til þjónustu á stríðsfleyinu PT-109 þar sem hann vann hetjudáð og bjargaði nær allri áhöfninni eftir að japanski tundurspillirinn Amagiri sigldi skipið í kaf 2. ágúst 1943. Önnur bréf eru meðal annars til og frá Harry Truman, George Patton, eyðimerkurrefnum Irwin Rommel og Benito Mussolini.
Mest lesið „Ég er ógeðslega reiður“ Innlent Íslensk heimili eigi að geta þolað sársaukann Innlent Einn mannanna fimm hafi hringt sjálfur í neyðarlínuna Erlent Ráðgjöf Heiðu Kristínar kostaði fjórtán milljónir Innlent Aðstandendum sýnd mynd af líkinu fyrir slysni Innlent Stríðsyfirlýsing sem gæti leitt til nýrra kosninga Erlent Umræðan verið erfið fyrir eiginkonuna Innlent Flugvél beint annað eftir „slagsmál“ milli flugmanna Erlent Fresta haustfundi vegna alvarlegs slyss Innlent Möguleg tengsl við heilabilun Innlent Fleiri fréttir Rússar sagðir hafa ætlað að myrða Kasparov Flugvél beint annað eftir „slagsmál“ milli flugmanna Hundruð unglinga handteknir í Frakklandi Einn mannanna fimm hafi hringt sjálfur í neyðarlínuna Stríðsyfirlýsing sem gæti leitt til nýrra kosninga Fundu eldsneyti en engin sprengiefni í bílunum Hafa enn ekki ákveðið hvort rétta eigi aftur yfir Clancy Skoða byggingu evrópskrar geimstöðvar Enn lítið um svör í Englandi Fundu lúxusíbúð með golfhermi innan veggja fangelsis Síðustu hermennirnir fara frá Írak, aftur Eistar saka Rússa um fjölþáttaárás Búa í „helvíti á jörðu“ og borða illgresi til að halda lífi „Háfhrifavaldur“ fastur í kóresku síki Kynna fyrsta „núllosunarsvæði“ Danmerkur Norlén tekinn aftur við og boðar formenn á fund Kallaði ráðherra á fund vegna handtöku mannanna við herstöðina Stjórnandi hjá New York Times myrtur af tengdaforeldrum sínum Hlýtur ríflega sjötíu svipuhögg fyrir að koma fram án höfuðslæðu Sækja fram gegn Rússum í Dónetsk Hryðjuverkamönnunum grunuðu sleppt úr haldi Starship á sporbraut í fyrsta sinn Allir mennirnir breskir ríkisborgarar Spurði Xi hvort hann vildi kaupa bandarísk vopn Sjö sakaðir um að nauðga samnemanda klukkustundum saman Vilja formlega afsökun frá Selenskí Trump vill fleiri bensínháka á göturnar Segist hafa gefist upp á stjórnarmyndun í Svíþjóð Rannsaka möguleg tengsl Íran við meinta hryðjuverkamenn Aðeins samningaviðræður geti leyst deiluna Sjá meira