Boða nýtt regluverk 26. september 2009 00:45 Málin rædd í Pittsburgh Dmitrí Medvedev Rússlandsforseti hlýðir á Kevin Rudd, forsætisráðherra Ástralíu.nordicphotos/AFP „
Hið gamla kerfi alþjóðlegrar efnahagssamvinnu heyrir sögunni til. Nýja kerfið, frá og með deginum í dag, er komið af stað,“ sagði Gordon Brown, forsætisráðherra Bretlands, á leiðtogafundi tuttugu mestu iðnríkja heims í Pittsburgh í Bandaríkjunum. Ákveðið var að tuttugu ríkja hópurinn, G20, tæki að mestu við af G7-hópnum svonefnda, sem fyrir nokkrum árum var stækkaður upp í G8-hóp þegar Rússland bættist í hópinn. Leiðtogar ríkjanna tuttugu munu héðan í frá gegna lykilhlutverki í því að móta samhæfða alþjóðlega stefnu í efnahagsmálum. Meðal annars var samþykkt að takmarkanir yrðu settar á kaupaukagreiðslur til bankamanna. Þetta verður gert til þess að fjármálastofnanir freistist síður til þess að taka áhættu sem átti sinn þátt í að steypa heiminum út í kreppuna djúpu. Ágreiningur er engu að síður meðal ríkjanna tuttugu um útfærslu þessa, og bíður það verkefni síðari funda leiðtoganna. Leiðtogarnir samþykktu einnig tillögur Bandaríkjastjórnar um rammareglur um hagvöxt, sem myndi tryggja bæði sjálfbærni og jafnvægi. Með þessu á að takast á við erfiðleika í efnahagslífi ríkjanna, svo sem gríðarlegan viðskiptahalla Kína og vaxandi fjárlagahalla Bandaríkjanna. Brown sagði gert ráð fyrir því að sett yrðu ákveðin efnahagsmarkmið fyrir hvert ríki, sem endurskoðuð yrðu árlega í samvinnu við Alþjóðagjaldeyrissjóðinn. Ekki er þó gert ráð fyrir að ríkjum verði refsað fyrir að ná ekki þessum markmiðum, því ekki vilja ríkin sjá fullveldi sínu ógnað af alþjóðastofnunum á borð við Alþjóðagjaldeyrissjóðinn. Þrátt fyrir margvíslega fyrirvara sögðust leiðtogarnir hóflega bjartsýnir á framhaldið og töldu mikilvægum áfanga náð. Í G20-hópnum eiga ekki aðeins sæti auðug ríki á borð við Bandaríkin, Bretland, Þýskaland og Japan, heldur einnig upprennandi efnahagsveldi í „þriðja heiminum“ á borð við Kína, Indland og Brasilíu. Barack Obama Bandaríkjaforseti boðaði til fundarins, sem hófst í Pittsburgh á fimmtudag. Hann gekk á milli leiðtoga og ræddi meðal annars við Hu Jintao, forseta Kína, og Dmitrí Medvedev Rússlandsforseta. gudsteinn@frettabladid.is
Mest lesið „Ég er ógeðslega reiður“ Innlent Íslensk heimili eigi að geta þolað sársaukann Innlent Einn mannanna fimm hafi hringt sjálfur í neyðarlínuna Erlent Ráðgjöf Heiðu Kristínar kostaði fjórtán milljónir Innlent Stríðsyfirlýsing sem gæti leitt til nýrra kosninga Erlent Flugvél beint annað eftir „slagsmál“ milli flugmanna Erlent Fresta haustfundi vegna alvarlegs slyss Innlent Möguleg tengsl við heilabilun Innlent Samtökin séu ekki í baráttu gegn einkabílnum Innlent Aðstandendum sýnd mynd af líkinu fyrir slysni Innlent Fleiri fréttir Rússar sagðir hafa ætlað að myrða Kasparov Flugvél beint annað eftir „slagsmál“ milli flugmanna Hundruð unglinga handteknir í Frakklandi Einn mannanna fimm hafi hringt sjálfur í neyðarlínuna Stríðsyfirlýsing sem gæti leitt til nýrra kosninga Fundu eldsneyti en engin sprengiefni í bílunum Hafa enn ekki ákveðið hvort rétta eigi aftur yfir Clancy Skoða byggingu evrópskrar geimstöðvar Enn lítið um svör í Englandi Fundu lúxusíbúð með golfhermi innan veggja fangelsis Síðustu hermennirnir fara frá Írak, aftur Eistar saka Rússa um fjölþáttaárás Búa í „helvíti á jörðu“ og borða illgresi til að halda lífi „Háfhrifavaldur“ fastur í kóresku síki Kynna fyrsta „núllosunarsvæði“ Danmerkur Norlén tekinn aftur við og boðar formenn á fund Kallaði ráðherra á fund vegna handtöku mannanna við herstöðina Stjórnandi hjá New York Times myrtur af tengdaforeldrum sínum Hlýtur ríflega sjötíu svipuhögg fyrir að koma fram án höfuðslæðu Sækja fram gegn Rússum í Dónetsk Hryðjuverkamönnunum grunuðu sleppt úr haldi Starship á sporbraut í fyrsta sinn Allir mennirnir breskir ríkisborgarar Spurði Xi hvort hann vildi kaupa bandarísk vopn Sjö sakaðir um að nauðga samnemanda klukkustundum saman Vilja formlega afsökun frá Selenskí Trump vill fleiri bensínháka á göturnar Segist hafa gefist upp á stjórnarmyndun í Svíþjóð Rannsaka möguleg tengsl Íran við meinta hryðjuverkamenn Aðeins samningaviðræður geti leyst deiluna Sjá meira