Fleiri fréttir

Úrskurði í nauðgunarmáli í Bretlandi breytt

Bresk yfirvöld hafa viðurkennt að hafa brotið á 25 ára konu sem var nauðgað fyrir fimm árum. Konan átti rétt á bótum en var sagt að þær myndu skerðarst um 25% vegna þess að hún var ölvað þegar henni var nauðgað.

Salmonella í Danmörku

Heilbrigðiseftirlitið í Danmörku fullyrðir nú að salmonellu sýking sem hefur geysað í Danmörku í allt sumar hafi ekki borist með innfluttu kjöti.

Fundum haldið áfram í Zimbabwe

Forseta Zimbabwe og leiðtoga stjórnarandstöðunnar tókst ekki að ná samkomulagi um nýja ríkisstjórn í gær. Robert Mugabe forseti segir að viðræðunum verði haldið áfram og telur hann að samkomulag verði undirritað á næstunni.

Sarkozy á leið til fundar við ráðamenn í Moskvu

Forseti Frakklands, Nicolas Sarkozy, mun á morgun, þriðjudag, halda áleiðis til fundar við ráðamenn í Moskvu. Þangað fer Sarkozy fyrir hönd Evrópusambandsins en þar eru Frakkar í forsvari um þessar mundir.

Rússar stjórna háloftunum í Georgíu

Rússneskar herþotur hafa nú fullkomna stjórn yfir háloftunum á mestu átakasvæðunum í Georgíu. Engar herþotur Georgíumanna eru í loftinu. Þetta segir fréttastofa CNN.

Tæknivæddur fornleifauppgröftur

Fornleifafræðingar hafa tekið stökk inn í framtíðina og nota nú rafmagns- og örbylgjusenda til að grennslast fyrir um lifnaðarhætti landnámsmanna í Skagafirði.

Rússar komnir inn í Vestur-Georgíu

Rússneskar hersveitir hafa nú farið inn í Vestur-Georgíu úr héraðinu Abkasíu sem líkt og Suður-Ossetía krefst sjálfstæðis frá Georgíu. Er þetta í fyrsta sinn sem Rússar fara úr þessu héraði inn í Georgíu.

Móðir geymdi barn sitt inn í skáp til sjö ára aldurs

Nýverið kom fram í bandarískum fjölmiðlum harmræn saga stúlku sem fannst sjö ára gömul liggjandi inn í skáp í bleyju í eigin úrgangi. Stúlkan var sem nýfætt barn, brást ekki við snertingu né samskiptum við annað fólk og var með öllu ótalandi.

Stofufangelsi Aung San Suu Kyi framlengt

Stofufangelsi Aung San Suu Kyi, leiðtoga stjórnarandstöðunnar í Búrma, hefur verið framlengt um eitt ár. Þrátt fyrir umleitanir Sameinuðu þjóðanna hefur hún ekki losnað úr prísundinni.

Huliðshjálmur á næsta leiti

Vísindamenn við Berkley háskóla í Kaliforníu segjast nú skrefi nær að þróa aðferðir til að gera fólk ósýnilegt. Í grein sem birtist í tímaritunum Nature og Science segjast þeir hafa þróað efni sem getur sveigt ljós framhjá þrívíðum hlutum og þar með látið þá hverfa.

Æskulýðsbúðum nýnasista lokað

Lögreglan í Þýskalandi hefur lokað æskulýðsbúðum nýnasista sem var lýst sem ævintýrabúðum fyrir ungt fólk. Samkvæmt lögreglu voru 39 unglingar og börn samankomin í búðunum.

Segir stutt í samninga í Zimbabwe

Robert Mugabe, forseti Zimbawe, segir að aðeins eigi eftir að ganga frá smávægilegum hlutum í samningaviðræðum við stjórnarandstöðuna.

Feitum Dönum úthýst úr litlum kirkjum

Íturvaxnir Danir mega eiga vona á því að þeim verði úthýst úr sveitakirkjum þar í landinu áður en þeir leggjast til hinstu hvílu. Prestar í Danmörku hafa lýst áhyggjum sínum af því að nýlegar líkkistur sem eru sérhannaðar fyrir holdmikil lík séu svo breiðar að þær komist ekki í gegnum dyrnar á kirkjum sem hafi verið byggðar á miðöldum.

Mugabe frestaði fundi án niðurstöðu

Robert Mugabe, forseti Zimbabwe, segir að fjórtán klukkustunda langur fundur hans með stjórnarandstöðunni í gær hafi endað án niðurstöðu.

Bandaríkjamenn fordæma aðgerðir Rússa

Bandarísk stjórnvöld gagnrýna harðlega árásir Rússa á Georgíumenn, vegna deilna þeirra um Suður - Ossetíu. Bandaríkjastjórn virðist vera tilbúin til að blanda sér í deilu Rússa og Georgíumanna.

Forsætisráðherra Dana vill mikla skatta á eldsneyti

„Hátt eldsneytisverð á að hvetja fólk til þess að þróa nýja orkugjafa og gera það minna háð olíu," segir Anders Fogh Rasmussen, forsætisráðherra Danmerkur, í viðtali sem birtist í The New York Times í gær.

Morales Boliviuforseti áfram í embætti

Evo Morales, forseti Bólivíu, lýsti í nótt yfir sigri í kosningum um áframhaldandi setu hans í embætti, eftir að óstaðfestar tölur bárust um að hann hefði unnið yfirburðarsigur í kosningunum.

Amnesty skorar á stríðsaðila í Georgíu

Alþjóðlegu mannúðarsamtökin Amnesty International hafa sent frá sér áskorun til stríðandi fylkinga í Georgíu þess efnis að báðir aðilar geri allt sem í þeirra valdi sé til þess að hlífa almennum borgurum við stríðsrekstrinum. Samtökin krefjast þess að Georgíumenn og Rússar virði alþjóðasamninga þess efnis að borgurum sé hlíft en á því hefur verið mikill misbrestur undanfarna daga.

Þúsundir þurftu að yfirgefa heimili sín í Toronto

Þúsundir íbúa á stóru svæði í Toronto í Kanada neyddust til að yfirgefa heimili sín í dag eftir að eldur kom upp í gasfyrirtæki í borginni. Nokkrir slösuðust en enginn alvarlega þegar eldtungur þeyttust yfir íbúðabyggð í nágrenni gasverksmiðjunnar.

Rússneski flotinn sökti Georgísku skipi

Rússnesk herskip söktu í dag skipi frá Georgíu sem var að flytja eldflaugaskotpalla til hafnar í Georgíu. Rússneskar fréttastofur segja að herskip Georgíumanna hafi gert árásir á skip úr rússneska flotanum.

Fulltrúar stríðandi fylkinga föðmuðust í Peking

Þær stöllur Natalia Paderina og Nino Salukvadze létu stríðið á milli Rússlands og Georgíu ekki spilla gleðinni á Ólympíuleikunum í Peking í dag. Paderina er frá Rússlandi og Salukvadze frá Georgíu og þær náðu báðar á verðlaunapall í skotfimi á leikunum í dag.

Ku Klux Klan kætast yfir velgengni Obama

Hvítir kynþáttahatarar í Bandaríkjunum binda miklar vonir við hugsanlegan sigur Baracks Obama í forsetakosningunum vestra í haust. Ekki vegna þess að þeir séu á hans bandi, heldur vegna þess að sigur hans gæti aflað þeim fjölda nýrra liðsmanna.

Davíð og Golíat berjast í Ossetíu

Í stríði Georgíumanna við Rússa hefur Davíð svo sannarlega verið að berjast við Golíat. Hernaðaryfirburðir Rússa eru slíkir að þeir gátu hæglega leyft sér að hafna öllum hugmyndum um vopnahlé þar til Georgíumenn höfðu dregið herlið sitt til baka og grátbeðið um friðarviðræður.

Georgíumenn leggja niður vopn og bjóða viðræður

Georgíumenn hafa tilkynnt Rússum að þeir hafi hætt bardögum í Suður-Ossetíu og að þeir séu reiðubúnir til þess að hefja tafarlaust friðarviðræður við stjórnvöld í Moskvu. Í bréfi sem afhent var sendiherra Rússa í landinu segir að Mikheil Saakashvili hafi gefið fyrirskipun til hersins þess efnis að leggja þegar í stað niður vopn.

Efnahagslægðin heldur fólki heima hjá sér í sumarfríinu

Ekkert aðildarríkja OECD, Efnahags- og framfarastofnunar Evrópu, mun komast hjá efnahagslægðinni sem nú gengur yfir heiminn. Útlitið næstu sex mánuði er dapurlegt, að því er segir í nýjustu skýrslu stofnunarinnar og það sama gildir um sjö helstu hagkerfi heims. Hagvöxtur í Kína og Brazilíu fer hinsvegar enn vaxandi.

Reykingalitningurinn fundinn

Flestir reykingamenn byrja með fikti - og þeim sem finnst fiktið skemmtilegt eða gott ráða því ekki alltaf sjálfir hvort þeir halda áfram. Eins og oft áður ræðst það af litningamynstri viðkomandi einstaklings, að því er bandarískir vísindamenn hafa upplýst.

Rússar með tögl og hagldir í Suður-Ossetíu

Rússneskar hersveitir hafa náð tökum á Skinvali, höfuðborg Suður-Ossetíu, og her Her Georgíu hefur hörfað frá borginni, að því að hermt er í Tblisi, höfuðborg Georgíu. Georgíumenn segja þetta ekki ósigur heldur nauðsynlega aðgerð til að vernda óbreytta borgara. Rússar hafa safnað skipaflota að ströndum Georgíu og stöðva þannig hugsanlega vopnaflutninga til landsins.

Sextíu hafa farið í flóðum í Víetnam

Rúmlega sextíu manns hafa farist í flóðum og skriðuföllum í Víetnam. Hitabeltisstormar eru algengir í hafinu út af Vietnam á þessum árstíma. Tugum annarra er saknað og fjöldi þorpa í Lao Cai héraði er saknað en það hefur orðið verst úti í hamförunum. Lao Cai er nyrst í Vietnam og liggur að landamærunum við Kína.

Búist við lausn í Zimbabve

Útlit er fyrir að til tíðinda draga í dag í viðræðum um framtíðarstjórn Zimbabwe - og um framtíð Roberts Mugabes forseta. Gert er ráð fyrir að þeir Mugabe og Morgan Tsvangerai, leiðtogi stjórnarandstöðunnar, muni setjast niður augliti til auglitis ásamt forseta Suður-Afríku og reyna að leggja lokahönd á samkomulag sem er í burðarliðnum í viðræðunum.

Er Maddý í Belgíu?

Lögregla rannsakar nú sögur þess efnis að Madeleine McCann hafi sést í Belgíu. Að því er fréttastofa SKY greinir frá á stúlkan, sem hvarf af hótelherbergi í Portúgal í fyrra, að hafa sést í banka í Brussel í fylgd konu sem virtist vera frá Norður Afríku.

Líklegt að sættir náist í Zimbabve á morgun

Líklegt þykir að það dragi til tíðinda í Zimbabve á morgun en búist er við að sættir náist á milli Róberts Mugabe forseta landsins og Morgan Tsvangirai sem bauð sig fram gegn honum á dögunum. Reuters greinir frá því að samningaviðræður þeirra í millum hafi gengið vel og að von sé á yfirlýsingu þess efnis að þeir hyggist stjórna landinu í sameingu. Búist er við því að náist samningar muni Mugabe áfram verða forseti landsins en að Tsvangirai verði útnefndur forsætisráðherra.

Frakkar hvetja Rússa til að fallast á vopnahlé

Frakkar, sem fara með forsæti í Evrópusambandinu þessa stundina, hvetja Rússa til þess að samþykkja vopnahlé sem Georgíumenn hafa boðið í Suður-Ossetíu. Í yfirlýsingu frá forsætisnefnd sambandsins segir að vopnahléstilboði Georgíumanna beri að fagna og að Rússar eigi að taka því þegar í stað.

Vesturveldin reyna að stilla til friðar

Sameiginleg sendinefnd Evrópusambandsins, Bandaríkjanna og NATÓ heldur til Georgíu í kvöld til þess að reyna að stilla til friðar í deilum Rússa og Georgíumanna í Suður-Ossetíu og Abkasíu. Þetta hefur fréttastofa SKY eftir Des Brown, varnarmálaráðherra Breta og segir hann markmiðið að koma á vopnahléi milli stríðandi fylkinga. Georgíumenn hafa lýst yfir stríðsástandi í landinu og segjast þeir hafa brotið á bak aftur árásir í Abkasíu en að bardagar séu enn í gangi við rússneska hermenn í Suður-Ossetíu.

Rússar segja Georgíumenn stunda þjóðarmorð

Erindreki Rússa hjá NATÓ segir að Georgíumenn stundi þjóðernishreinsanir og þjóðarmorð á íbúum Suður-Ossetíu. Hann segir að átökin sem magnast hafa þar síðustu daga sé ekki hægt að kalla neitt annað en Rússneskir hermenn hafa barist við Georgíumenn sem reynt hafa að ná völdum í héraðinu sem lýst hefur yfir sjálfsstæði frá Georgíu. Suður-Ossetar hafa notið stuðnings Rússa í baráttu sinni fyrir sjálfstæði.

Átök einnig hafin í Abkasíu

Átökin í Georgíu virðast nú vera að breiðast út en nýjustu fregnir hermað að herflugvélar hafi gert sprengjuárásir á landamærum Georgíu og Abkasíu. Abkasía er, líkt og Suður-Ossetía, sjálfstjórnarsvæði innan landamæra Georgíu sem lýst hefur yfir sjálfstæði.

Drap mann og kastaði sér í dauðann

Bandaríkjamaður lét lífið þegar kínverskur maður á fimmtugsaldri réðst á hann og tvo aðra í Pekíng í morgun. Árásarmaðurinn svipti sig lífi eftir árásina með því að stökkva út af háhýsi. Ekki er ljóst hvert tilefni árásarinnar var.

Átök magnast í Suður-Ossetíu

Rússneski flugherinn hefur í nótt gert loftárásir á herstöðvar í borginni Gori í Georgíu á meðan georgíski herinn berst við uppreisnarmenn í Suður-Ossetíu. Fjölmargir óbreyttir borgarar hafa fallið. Fréttamenn hafa séð sært fólk flutt í ofboði úr íbúðarbyggingum sem hafa orðið fyrir sprengjum. Sergei Lavrov utanríkisráðherra Rússlands segir að 1500 manns hafi látið lífið.

Öryggisráð SÞ boðað til neyðarfundar

Sendiherrar hjá Sameinuðu þjóðunum hafa óskað eftir nýjum neyðarfundi öryggisráðs stofnunarinnar til þess að fara yfir ástandið í Suður-Ossetíu og reyna að koma í veg fyrir að stríð brjótist út.

Ólympíueldurinn tendraður í Peking

Ólympíueldurinn var nú á fimmta tímanum tendraður á Ólympíuleikvanginum í Peking í Kína en það markar setningu Ólympíuleikanna.

Sjá næstu 50 fréttir