Fleiri fréttir

Skoðar álag á námsmenn sem ílengjast erlendis

Eðlilegt er að skoða hvort námsmenn sem taka námslán í námi erlendis en skila sér ekki heim að námi loknu ættu að borga markaðsvexti af láninu segir formaður fjárlaganefndar. Getur haft alvarlegar afleiðingar í för með sér segir framkvæmdastjóri SÍNE.

Ætti ekki að setja þjóðfélagið á hliðina

"Við teljum kröfugerð Starfsgreinasambandsins ekki grundvöll fyrir viðræður. Launaþróun hér á landi þarf að vera til samræmis við launaþróun í nágrannalöndunum. Þar er verið að semja um hálfs til tveggja prósenta launahækkanir á ári,“ segir Þorsteinn Víglundsson, framkvæmdastóri Samtaka atvinnulífsins.

Tvö efstu gefa ekki kost á sér áfram

Hvorki Guðríður Arnardóttir, oddviti Samfylkingarinnar í Kópavogi, né Hafsteinn Karlsson, sem skipar annað sætið á lista flokksins, munu gefa kost á sér fyrir næstu sveitarstjórnarkosningar.

Stóru málin - Borgarstjóri kosinn af borgarbúum?

Hildur Sverrisdóttir, borgarfulltrúi sem nýverið tók sæti Gísla Marteins Baldurssonar í borgarstjórn, er ein fjögurra einstaklinga sem býður sig fram til forystu í prófkjöri Sjálfstæðismanna í Reykjavík. Hún kveðst vilja skoða kosti þess að borgarbúar fái sjálfir að kjósa sér borgarstjóra í beinni kosningu.

Aðalmeðferð í Al Thani málinu

Þrír af fjórum sakborningum, Hreiðar Már Sigurðsson, Sigurður Einarsson og Magnús Guðmundsson, báru vitni í dag.

Löskuð Fernanda enn í vari

Allt kapp er lagt á að afstýra umhverfisslysi við Reykjanesskaga þar sem varðsskipið Þór er nú með flutningaskipið Fernöndu í togi. Litlar líkur eru á að Fernanda sökkvi í sæ að mati Landhelgisgæslunnar.

Bændagisting með stærsta veitingasal Suðausturlands

Lítil bændagisting, sem barnmörg hjón byrjuðu með á Smyrlabjörgum í Suðursveit árið 1990, hefur vaxið upp í að verða eitt veglegasta sveitahótel landsins og þar er nú stærsti veitingasalur Suðausturlands.

Egyptaland: Réttarhöldum yfir Mohammed Morsi frestað

Réttarhöldum yfir Mohammed Morsi, fyrrverandi forseta Egyptalands, hefur verið frestað til áttunda janúar en þau áttu að hefjast í dag. Gríðarleg öryggisgæsla var í Kaíró og studdu mótmælendur Morsi sem kvaðst réttkjörinn forseti landsins.

Vísindamenn fjölmenntu á þingpalla

Biðröð myndaðist fyrir framan Alþingishúsið í dag þegar hátt í hundrað vísinda- og fræðimenn mættu til að fylgjast með umræðum um framtíð rannsóknarsjóða og nýsköpunar. Þeir segja að boðaður niðurskurður bitni verst á ungum vísindamönnum.

Sjálfbær gróðurhúsaparadís á Íslandi

Íslenskur iðnhönnuður, sem er leiður á stóriðju og skammtímalausnum, vill að Íslendingar byggi sjálfbæra gróðurhúsaparadís til að skapa mörg og fjölbreytt störf. Hann segir Ísland geta verið leiðandi á þessu sviði í heiminum.

Lögreglumaður grunaður um refsiverða háttsemi

Í síðustu viku vísaði lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu til rannsóknar hjá ríkissaksóknara máli þar sem lögreglumaður er grunaður um refsiverða háttsemi í starfi.

Hvorki karl né kona

Guðrún fæddist karlkyns, varð opinberlega trans á menntaskólaárunum en gerði sér svo ljóst að kvenkyn átti heldur ekki við. Í dag skilgreinir Guðrún, sem er 21 árs, ekki kyn sitt og segir að fleiri séu í sömu sporum á Íslandi.

Mikil snjóframleiðsla í Hlíðarfjalli

Snjóframleiðsla hófst í Hlíðarfjalli á Akureyri í gær. Talsvert frost er nú í Eyjafirði og er gott útlit fyrir að það haldist svo næstu daga. Notast er við tíu snjóbyssur og eru þær í gangi allan sólarhringinn.

Börnunum næstum því rænt: "Erfiðasta sem ég hef lent í“

Elfa Þorsteinsdóttir skrifaði grein á Facebook fyrir nokkrum dögum sem hefur fengið töluvert meiri athygli en hún átti von á. Í greininni fjallar hún um atvik sem átti sér stað fyrir ári síðan á suður Spáni, þegar ókunnugt fólk sigldi næstum því á brott með tvö börn hennar.

Ekið á hjólreiðamann

Hjólreiðamaður var fluttur á slysadeild eftir að keyrt var á hann á gatnamótum Miklubrautar og Lönguhlíðar á ellefta tímanum.

Gremja innan stjórnar vegna Gísla Marteins

Stjórnarmenn hjá Ríkisútvarpinu eru sumir hverjir mjög ósáttir við að Gísli Marteinn Baldursson hafi verið ráðinn þar inn sem dagskrárgerðarmaður.

Lögreglan sendi inn 150 tíst

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu vakti talsverða athygli um helgina þegar hún tók þátt í alþjóðlegu tíst-maraþoni.

Besti árangur nemenda í samræmdum prófum frá upphafi

Nemendur í 10. bekk í Reykjanesbæ, Garði og Sandgerði hafa aldrei náð eins góðum árangri í samræmdu prófunum. Fræðslustjóri segir að unnið hafi verið hart að því markmiði að bæta árangurinn.

Óboðinn og óþægilegur gestur

Var viðkomandi kominn inn í íbúð hjá fólki honum ókunnu og sat þar í sófa en íbúar voru flúnir inn á baðherbergið.

Bílvelta í nótt

Tilkynnt um bílveltu í Hafnarfirði, nánar tiltekið á Reykjanesbraut við Lækjargötu um klukkan hálf tvö í nótt.

Fernanda undir Hafnarbergi

Skipið Fernanda er enn í togi en varðskipið Þór hefur þurft að leita í var með það vegna vonds veðurs.

Pólitískar væringar í Rangarþingi ytra

Minnihlutinn vill láta rannsaka ástæður að baki uppsögn starfsmanns á skrifstofu Rangárþings ytra. Oddviti minnihluta segir alvarlegt ef pólitískar ástæður liggja að baki. Oddviti meirihluta segir ekki um raunverulega uppsögn að ræða.

Samfylkingin og Björt framtíð bæta við sig fylgi

Stjórn Framsóknarflokks og Sjálfstæðisflokks myndi falla yrði gengið til kosninga nú samkvæmt skoðanakönnun Fréttablaðsins og Stöðvar 2. Samfylkingin og Björt framtíð bæta við sig fylgi en stjórnarflokkarnir tapa.

Hljómahöllin opnar á nýju ári

Hljómahöllin, nýtt og glæsileg tónlistarhús í Stapa í Njarðvík verður tekin í notkun strax í upphafi nýs árs en þar verður meðal annars tónlistarskóli og Poppminjasafn Íslands.

99% barna í 10. bekk á Facebook

Börn gefa upp rangan aldur til að komast hjá aldurstakmörkum á Facebook. Stelpur líklegri en strákar til að vera með öryggisstillingar í lagi

70% vilja gjald á náttúruperlur

Tæplega sjötíu prósent landsmanna telja að rétt sé að innheimta gjald af þeim sem skoða helstu náttúruperlur landsins.

Erlendir gestir vilja uppgötva íslenska listamenn

Tónlistarsenan á Íslandi er einstök. Þetta segir útsendari einnar stærstu tónlistarhátíðar í Evrópu, en hann kom til Íslands til að uppgötva ungt tónlistarfólk í gegnum Iceland Airwaves. Fjöldi áhrifafólks úr tónlistarheiminum er nú statt á landinu á vegum hátíðarinnar.

Styrkja börnin í Tógó

Krakkarnir á Laufásborg héldu í dag söfnun til styrktar börnum í Tógó í Afríku, en hjálparsamtökin Sól í Tógó byggja þar upp heimili fyrir munaðarlaus börn.

Ógnaði starfsmanni verslunar með hnífi

Maður var handtekinn á fimmta tímanum í dag vegna þjófnaðar í verslun í Kópavogi. Starfsmaður verslunarinnar hafði afskipti af manninum sem í kjölfarið dró upp hníf og ógnaði starfsmanninum.

Sjá næstu 50 fréttir