Slökkvilið og varðskipsmenn um borð í Fernöndu Jakob Bjarnar skrifar 4. nóvember 2013 13:22 Varðskipið Þór hefur nú verið að snúast um flutningsdallinn Fernöndu frá á miðvikudag en Sigurður Steinar kvartar ekki.
Sigurður Steinar Ketilsson skipherra á Þór segir ómögulegt að segja til um hvort enn leynist eldur í Fernöndu. Varðskipið Þór er nú með flutningskipið Fernöndu í togi á Kirkjuvogi á Reykjanesi í góðu vari að sögn Sigurðar Steinars Ketilssonar skipherra á Þór en Vísir náði tali af honum nú fyrir stundu. „Við erum nú í góðu vari. Hann hefur farið alveg uppí 40 hnúta og spáir því að hann eigi eitthvað eftir að bæta í nú eftir hádegi. En, við erum bara í góðum málum hérna í landfæri. Við getum siglt hérna fram og til baka þannig að það er betra að vinna við skipið. Ef einhver reykur kæmi upp myndi hann náttúrlega fjúka af skipinu, undan vindi, þannig að við erum hér bara í mjög góðum málum,“ segir Sigurður Steinar. Víðtækur samráðsfundur stóð yfir í allan morgun með fulltrúum þeirra aðila sem að aðgerðum koma; Landhelgisgæslu, slökkviliði, umhverfisstofnun og samgöngustofu, Hafró og hafnaryfirvöldum um hvernig haga beri björgunaraðgerðum en eins og kunnugt er kom eldur upp í skipinu á fimmtudaginn. Mikill og erfiður eldur sem menn hafa átt fullt í fangi með að ná tökum á. Sigurður Steinar segir að strax í birtingu í morgun hafi farið fram vettvangskönnun í skipinu. „Byrjað utan frá, finna heita bletti og annað. Nú erum við að undirbúa okkur undir að fara inn í skipið, í hádeginu, og þá sjáum við hver staðan er.“ Varlega er farið áður en opnaðar eru dyr, og slökkvidælur og reykkafarar þurfa að vera klárir en fimm manna teymi er frá slökkviliðinu um borð í Þór. „Þá kannski byrjum við að sjá hvernig er staðan er inni í lestunum, millidekki eitt og tvö, og svo lest. Við væntum þess að hiti hafi minnkað mikið þar. En þar var mikill eldmatur sem var í einangrun og sennilega timbur líka og frystilest, raki og þetta hefur kraumið.“ Svo fara menn í vélarrúmið þar sem mikill járnmassi er. „Við höldum að það sé enginn eldur í olíu, við fullvissuðum okkur um það með hitamyndasjánni sem er algjörlega óborganleg í þessu verkefni, að það hefur enginn eldur komist í þennan stóra olítank þar sem talið er að væru hundrað tonn í.“ Skipherra segir vonlaust að fullyrða um hvort eldur sé dauður eða logandi. „En, við teljum það. Við höfum ekki séð neinn eld núna á annan sólarhring og teljum að hann sé slokknaður.“ Þór hefur nú verið með Fernöndu í togi býsna lengi, fóru af stað á miðvikudag en skipið var þá fyrir Suðurlandi en Sigurður Steinar segir menn ekkert orðnir leiðir á þessu verkefni. Þetta sé starfið. Þá segir skipherra Þór hafa sannað gildi sitt nú í þessu verkefni. „Alveg tvímælalaust. Það er ekki spurning.“ Sigurður Steinar segir ekkert liggja fyrir um hvað verði eftir að skipið hefur verið tekið út. Væntanlega verði það dregið til hafnar. „En, við erum nú búnir að koma í eina höfn, sællar minningar,“ segir skipherra. Og einmitt því tengt: Á fundi Hafnarstjórnar Hafnarfjarðar í morgun var bókað að hún telji afar brýnt að mótaðar séu skýrar reglur um hlutverk og skyldur neyðarhafna og jafnframt er brýnt að farið verði yfir þá atburðarrás sem átti sér stað sl. föstudag þegar flutningaskiptið Frenanda var dregið til hafnar. En þá lagði reyk yfir Hafnarfjörð og olli það verulegum óþægindum fyrir marga íbúa.
Mest lesið Afgerandi niðurstaða um að slíta kjarasamningum Innlent Portúgalsfarinn á bak við lás og slá Innlent Ætlar að borga fyrir umdeildar auglýsingar úr eigin sjóðum Erlent Idol-keppandi í lífstíðarfangelsi fyrir að skjóta eiginkonu sína Erlent Hútar sagðir hörfa frá mynni Rauðahafs Erlent Fengu heimild til þess að segja upp kjarasamningum Innlent Brotist inn í fjóra bíla í þremur hverfum Innlent Íslenskir karlmenn flytji inn konur og haldi þeim sem kynlífsþrælum Innlent Segir Aþenu í andarslitrunum Innlent Aldraður læknir sparkaði í flugfreyju Innlent Fleiri fréttir Tvær líkamsárásir á borði lögreglu Brotist inn í fjóra bíla í þremur hverfum Afgerandi niðurstaða um að slíta kjarasamningum Auglýsingatekjur Rúv undir fyrirhuguðu þaki þrjú ár í röð Fengu heimild til þess að segja upp kjarasamningum Öflugur jarðskjálfti í Bárðarbungu Meiri líkur en minni á að kjarasamningum verði sagt upp Rubio lentur á Íslandi Hafna ásökunum um svik og benda á stjórnvöld Portúgalsfarinn á bak við lás og slá Opnuðu Arnarnesveg að hluta Tvöföld árekstrarhætta þegar flugumferðarstjóri missti yfirsýn Meirihlutinn sprakk aftur vegna vallarmála Segir Aþenu í andarslitrunum Rubio spenntur að hitta Þorgerði Skakkur á stolnum strætó Tugir starfsmanna Reykjavíkur veiktust Trúnaðarbrestur milli flokka og innan flokks Tuttugu milljónir fyrir rafmagn hjólhýsa SA hafi skilað auðu og telur að samningum verði sagt upp Einn í haldi eftir handtöku í flugstöðinni Ekki fleiri tilkynnt kynferðisbrot í fimm ár Þessi eru tilnefnd til menntaverðlauna Tíu manns veitt sálgæsla eftir banaslysið Ögurstund í kjarasamningamálum „Ég geri ekki ráð fyrir því að við munum halda útgáfupartí í Valhöll“ Aldraður læknir sparkaði í flugfreyju Vill breyta umdeildum gatnamótum „Við erum ekki að gera þetta til að gleðja fólk í Brussel“ Slitu samstarfinu vegna trúnaðarbrests „sem ekki var hægt að líta framhjá“ Sjá meira