Fleiri fréttir

24 ára dæmdur fyrir samræði við 14 ára

Tuttugu og fjögurra ára gamall karlmaður var í Héraðsdómi Austurlands í dag dæmdur í fimmtán mánaða fangelsi, þar af eru 12 skilorðsbundnir, fyrir kynferðisbrot gegn 14 ára stúlku.

Karlarnir frekar í vel launuðum nefndum

"Þó að það séu margar nefndir, eru þær ekki allar launaðar, en feitustu nefndirnar eru það og oft á tíðum eru það karlmenn sem sitja í þeim,“ segir Vigdís Hauksdóttir, alþingismaður og formaður fjárlaganefndar sem á sæti hagræðingarhóp ríkisstjórnarinnar.

Kíkti á miðann eftir umræður á Facebook

Tveir voru með allar tölurnar réttar í lottóinu síðastliðinn laugardag. Annar miðinn var sjálfvalsmiði ásamt jóker en hinn áskriftarmiði. Tölurnar voru óvenjulega lágar síðastliðinn laugardag, en þær voru 3-4-5-7-10 og bónustalan 25.

Ekki grundvöllur fyrir tveimur læknaskólum

Þingmaður Framsóknarflokksins vill láta kanna hagkvæmni þessa að hefja kennslu í læknisfræði á Akureyri. Rektor HA segir ekki forsendur fyrir læknadeild fyrir norðan. Forseti læknadeildar HÍ segir Ísland ekki bera tvo læknaskóla.

Búið að slökkva eldinn

Allt tiltækt slökkvilið höfuðborgarsvæðisins var kallað út að Völuteig í Mosfellsbæ rétt fyrir hádegi.

Þessar stofnanir njóta mesta traustsins

Flestir bera mikið traust til lögreglunnar, Háskóla Íslands, Ríkisútvarpsins og Háskólans í Reykjavík samkvæmt nýrri könnun MMR. Fæstir bera mikið traust til bankakerfisins, Fjármálaeftirlitsins, fjölmiðla og lífeyrissjóðanna.

Milljarðatugir unnir úr frákastinu

Vöxtur hliðargreina sjávarútvegsins hefur verið ævintýralegur á undanförnum árum. Hlutfallslegan vöxt sjávarklasans af vergri landsframleiðslu má meta í tugum milljarða. Velta í tækni fyrir vinnslu og veiðar, líftækni og fullvinnslu aukaafurða var 88 milljarðar króna 2012.

Snjórinn kemur og fer

Það hefur væntanlega ekki farið framhjá íbúum höfuðborgarsvæðisins að á ellefta tímanum í morgun byrjaði að snjóa.

Merkilegar mannlífsmyndir finnast í Hafnarfirði

Aldargamlar filmur fundust í vikunni undir gólffjölum í Sívertsenhúsi í Hafnarfirði. Bæjarminjavörður segir myndirnar gefa nýtt sjónarhorn á mannlíf í bænum. Talið er að Ólafur V. Davíðsson glímukóngur hafi tekið myndirnar í kringum 1910.

Tillögur hagræðingarhóps á dagskrá

Tillögur hagræðingarhóps bíða umfjöllunar hjá ríkisstjórn. Heimildir fréttastofu herma að tillögurnar verði á dagskrá ríkisstjórnarfundar á morgun.

Fleiri mótorhjólamenn á leiðinni

Útlendingastofnun ákvað í gærkvöldi að vísa úr landi sex norskum meðlimum vélhjólagengisins Devils Choice, sem handteknir voru í Leifsstöð við komuna til landsins í gær.

Fjölskylduhjálp sparar fyrir jólaaðstoð

Fólk sem leitaði aðstoðar hjá Fjölskylduhjálp Íslands í Iðufelli í Breiðholti í gær þurftu frá að víkja eftir að hafa jafnvel beðið lengi í röð.

Tuttugu bíða eftir gjafanýra

Átaki til að fjölga lifandi nýragjöfum var ýtt úr vör í gær og var af því tilefni ný vefsíða opnuð til að fræða almenning um nýragjöf.

Almenningur reki verslun á Hvolsvelli

Sveitarstjórn Rangárþinga eystra samþykkti tillögu sjálfstæðismanna um að boða til íbúafundar til að ræða almenningshlutafélag um verslun á Hvolsvelli. Ástæðulaust sé að setja arðbæra verslun í hendur stórfyrirtækja á höfuðborgarsvæðinu.

Sextán hæða turn kallar á nýjan vita

Áform um að reisa sextán hæða byggingu við Höfðatorg virðast munu verða til þess að sjófarendur hætti að styðjast við innsiglingamerki á gamla Stýrimannaskólanum.

Mikil ásókn í jafnlaunavottun VR

Jafnlaunavottun VR fer afar vel af stað, og hafa ellefu fyrirtæki og stofnanir þegar fengið jafnlaunavottun. Fimmtán til viðbótar eru í vottunarferlinu og á fimmta tug hafa sótt um að fá vottunina.

Nærri 3.500 sitja í nefndum ríkisins

Alls eru 565 nefndir starfandi á vegum ráðuneytanna eða stofnanna þeirra. Í þeim eiga alls 3.455 einstaklingar sæti. Fjöldinn er stappar nærri íbúafjölda Ísafjarðarbæjar og jafngildir því að einn af hverjum 60 landsmönnum á vinnualdri sitji í einhverri nefnd á vegum ríkisins.

Skoða breytingar á meðlaginu

Tryggingastofnun er nú að skoða hvort eigi að breyta framkvæmd meðlagsgreiðslna í ljósi nýs úrskurðar frá úrskurðarnefnd almannatrygginga.

Sautján hundruð skuldarar eiga fangelsi yfir höfði sér

Af þeim 3.162 einstaklingum, sem eiga fyrirliggjandi ákvörðun um afplánun vararefsinga á hendur sér vegna sekta eða sakarkostnaðar, mega sautján hundruð eiga von á að verða færðir til afplánunar án frekari fyrirvara.

Friðrik Brynjar í 16 ára fangelsi

Friðrik Brynjar Friðriksson var nú fyrir stundu dæmdur í 16 ára fangelsi fyrir að hafa orðið Karli Jónssyni nágranna sínum að bana í byrjun maí síðastliðinn.

Fálkinn Illugi á batavegi eftir lýsisárás

Fálkinn Illugi í Mýrdal varð ófleygur eftir lýsisárás nokkurra fýla í Pétursey í gær en fálkinn ætlaði að fá sér fýl í svanginn. Ábúendurnir á bænum Eyjarhóli björguðu Illuga og ætla að sleppa honum næstu daga.

Skortur á nýrum vaxandi

"Ég verð klökkur þegar ég hugsa til þess að sumir séu reiðbúnir að fórna heilsu sinni fyrir aðra.“ Þetta segir einn af tuttugu nýrnasjúklingum hér á landi sem nú bíða eftir nýraígræðslu. Nýragjafi segir þetta vera stóra gjöf, en nauðsynlega.

Íslenskur vikur á leið til Mars?

Svo gæti farið að íslenskur vikur verði um borð í fyrsta mannaða leiðangrinum til Mars. Íslenskt nýsköpunarfyrirtæki kemur að verkefni þar sem reynt að þróa hagkvæma lausn við fæðu- og súrefnisþörf fyrstu Marsfaranna.

Svikahrappur á Akureyri

Herjar á netverja með gylliboðum um vörur sem ekki eru raunverulega til sölu

Biðin orðin löng og erfið

Ríkisfangslaus kona sem búið hefur á Íslandi í átta ár bíður enn eftir því að fá dvalarleyfi hér á landi. Hún er svo gott sem réttindalaus á Íslandi þrátt fyrir að hafa borgað skatta hér í mörg ár.

„Þótt þú eigir myndavél, ertu ekki ljósmyndari“

Unnið er að því í atvinnuvegaráðuneytinu að afnema lögverndun ljósmyndunar sem iðngreinar, en deila um þetta hefur staðið lengi. Formaður Ljósmyndarafélags Íslands vill forðast að fá fúskara á markaðinn en nemendur Ljósmyndaskólans vilja geta sinnt sínu fagi án hættu á lögsóknum.

Sex meðlimir Devil's Choice teknir í Keflavík

Lögreglan á Suðurnesjum hafði afskipti af sex karlmönnum sem komu með flugi frá Noregi á Keflavíkurflugvöll um klukkan fjögur í dag. Mennirnir eru meðlimir í vélhjólagenginu Devil's Choice.

Nornakrabbi til rannsóknar á Snæfellsnesi

Háskólasetri Snæfellsness hefur nú borist nornakrabbi, stundum kallaður langfótungur, til rannsóknar. Fáir slíkir krabbar hafa fundist við Ísland en þeim fer fjölgandi með hlýnun sjávar.

Lögreglan handtók þá sem ekki fóru að fyrirmælum

Egill Bjarnason yfirlögregluþjónn segir ástæðuna fyrir handtökunum við Gálgahraun á mánudaginn í öll skiptin hafa verið vegna þess að fólk fór ekki að fyrirmælum lögreglu á vettvangi. Eins og fram hefur komið var fólkið handtekið á svæðinu þar sem mótmælin fóru fram vegna lagningar nýs Álftanesvegar yfir Gálgahraun.

Sigrún ekki ráðin með pantaðri niðurstöðu

Stefán B. Sigurðsson háskólarektor á Akureyri segir ráðningu Sigrúnar Stefánsdóttur í starf sviðsforseta hug- og félagsvísindasviðs skólans ekki ráðast af pantaðri niðurstöðu.

Sjá næstu 50 fréttir