Fleiri fréttir

Píratar standa með náttúruvinum

Píratar lýsa yfir fullum stuðningi við þau sjónarmið sem náttúruverndarsinnar hafa haldið fram um að náttúruverndarsamtök og almenningur eigi lögvarða hagsmuni þegar kemur að ákvörðunum um framkvæmdir sem raska náttúru.

Sigrún tekin fram yfir Ólínu

Stefán B. Sigurðsson rektor hefur boðið Sigrúnu Stefánsdóttur starf sviðsforseta hug- og félagsvísindasviðs við Háskólann á Akureyri. En Ólína Þorvarðardóttir hlaut flest atkvæði þegar greidd voru atkvæði um umsækjendur hjá félagsvísindasviði skólans í sumar.

Kominn tími til að lögin virki

"Það var aldeilis kominn tími til að þessi lög, sem sett voru árið 2009, færu að virka,“ segir Guðrún Jónsdóttir talskona Stígamóta um dómana sem féllu í Héraðsdómi Reykjaness í morgun á tíu vændiskaupendum.

Náttúruvinir settir í einangrun

"Ég var í einangrun í upp undir fjórar klukkustundir og var tekinn í yfirheyrslu sem stóð yfir í um hálftíma,“ segir Gunnsteinn Ólafsson, hrauna- og náttúruvinur, sem var handtekinn tvisvar sinnum á meðan á mótmælunum í Gálgahrauni stóð í fyrradag.

Hryntónlistarmenn til fárra fiska metnir

Jakob Frímann Magnússon segir að útflutnings- og þróunarsjóður upp á litlar 20 milljónir hafi fokið fyrir lítið í nýju fjárlagafrumvarpi.

Dómur í morðmáli í dag

Dómur verður kveðinn upp yfir Friðriki Brynjari Friðrikssyni, sem er ákærður fyrir að hafa orðið Karli Jónssyni nágranna sínum að bana í maí síðastliðnum. Verði hann fundinn sekur á hann yfir höfði sér 16 ára fangelsi.

Þeir borga sem njóta

Iðnaðar- og viðskiptaráðherra ætlar að setja á fót samráðshóp hagsmunaaðila í ferðaþjónustu, sem á að útfæra hugmyndir náttúrupassa eða ferðakort

Framsóknarmenn eru ekki nýnasistar

Framsóknarmaðurinn Guðlaugur G. Sverrisson segir botninum náð í umræðu á netinu og fjölmiðlar geri út á að æra óstöðugan.

9.700 manns án atvinnu í september

Að jafnaði voru 186.000 manns á vinnumarkaði í september síðastliðnum samkvæmt Vinnumarkaðsrannsókn Hagstofu Íslands. Af þeim voru 9.700 án vinnu og í atvinnuleit.

Wasabihnetur innkallaðar

Wasabihnetur frá Heima hafa verið teknar úr sölu því ekki er tekið fram í innihaldslýsingu að hneturnar eru jarðhnetur.

Feður taka síður fæðingarorlof

Skerðing á hámarksgreiðslum til fólks í fæðingarorlofi virðist hafa leitt til þess að færri feður taka orlofið en áður. Ríkisstjórnin ætlar að bregðast við því með því að hækka hámarkið. Félagsmálaráðherra segir að það þurfi að forgangsraða og því verði orlofið ekki lengt í bili.

Fimm fengu gistingu á Hverfisgötu að eigin ósk

Fimm af þeim sex, sem gistu fangageymslur lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu í nótt, bönkuðu þar upp á og óskuðu eftir gistingu, þar sem þeir höfðu ekki í önnur hús að vernda. Yfir fullt var í gistiheimilinu við Þingholtsstræti og hafði þeim verið vísað þar frá. Reykjavíkurborg hyggst bæta úr þessu ástandi með því að innrétta húsnæði við Lindargötu til að hýsa húsnæðislausa og er nú verið að kynna nágrönnum þau áform.

Staðin að búðarhnupli á Selfossi

Kona var handtekin í verslun á Selfossi í gærkvöldi þar sem hún reyndi óvenjulega aðferð við búðarhnupl. Hún hafði annarsvegar tekið dýrar vörur til handargagns, og hinsvegar ýmislegt matarkyns til daglegs brúks.

Fundað um makrílinn í London

Saamningafundur um makríldeiluna hefst í London fyrir hádegi og sitja hana fulltrúar Íslendinga, Færeyinga Norðmanna og Evrópusambandsins. Auk þess verða þar áheyrnarfulltrúar Rússa og Grænlendinga.

Lenti í árekstri og fór á beint á barinn

Tveir bílar lentu í árekstri á gatnamótum Snorrabrautar og Flókagötu um miðnætti og ók annar ökumaðurinn af vettvangi og hvarf. Lögregla hóf þegar leit og fann brátt bíl mannsins, þar sem hann stóð á Vitastíg og snéri öfugt miðað við akstursstefnu.

Mótorhjólamönnum vísað úr landi - fleiri á leiðinni

Lögreglan á Suðurnesjum verður með viðbúnað í Leifsstöðí dag þegar von er á ellefu til 13 meðlimum úr norska vélhjólagenginu Devils Choice hingað til lands, en þrír meðlimir gengisins voru handteknir við komuna til landsins í gær.

Yfir 100 fjölskyldur flýja heimili sín

Heilsufarsvandi hefur rekið yfir hundrað fjölskyldur til þess örþrifaráðs að yfirgefa heimili sín. Tugir þeirra hafa aldrei snúið til baka. Þingmenn úr öllum flokkum vilja heildstæða endurskoðun á lögum og reglum sem málið varða.

Vilja friðlýsa sjö hús á Ingólfstorgi

Minjastofnun Íslands leggur til að sjö hús við Ingólfstorg verði friðlýst. Meðlimur húsfriðunarnefndar segist óttast frekari íhlutun stofnunarinnar í útlit og frágang nýbygginga en eðlilegt sé fyrir þróun byggingarlistar.

Segir fátt skýra hækkun á matarkörfunni

"Það hafa ekki orðið neinar stórvægilegar breytingar sem skýra þessa hækkun,“ segir Jóhannes Gunnarsson, formaður Neytendasamtakanna. ASÍ birti í gær verðlagskönnun lágvöruverðsverslana.

Skoðuðu mál íslenskrar móður

Umkvartananefnd á vegum Evrópuþingsins (PETI) komst að þeirri niðurstöðu að lög um foreldraábyrgð í Danmörku mismuni mæðrum af erlendum uppruna og geti haft skaðleg áhrif á börn.

Ökufantur játaði eina nauðgun

Karlmaður á fertugsaldri játaði fyrr í mánuðinum nauðgun gegn ungri konu í heimahúsi þegar ákæra á hendur honum var þingfest. Annað nauðgunarmál á hendur honum er enn til meðferðar hjá embætti Ríkissaksóknara.

Tímabundnar undanþágur "klárlega“ í ósamræmi við lög

Þingmaður segir forsætisráðuneytið á mjög hálli braut við veitingu tímabundinna undanþága frá upplýsingalögum. Sú ákvörðun þarfnist skýringa enda samræmist ekki lögum að veita slíka undanþágu án umsagnar frá Samkeppniseftirlitinu.

Börn hlaupa gegn barnadauða

Tæplega 250 íslensk börn hlaupa í Kapphlaupinu um lífið á tveimur stöðum á morgun. Börnin vilja vekja athygli á barnadauða í heiminum en um 18 þúsund börn deyja daglega af orsökum sem hægt er að koma í veg fyrir.

Stúdentar greiði fyrir niðurskurð háskólans

„Stúdentar eiga að greiða fyrir niðurskurð Háskóla Íslands.“ Þetta segir formaður stúdentaráðs. Menntamálaráðherra segir að hækkun skrásetningagjalda auðvelda háskólanum að takast á við niðurskurð.

Halldór Halldórsson vill fyrsta sætið í Reykjavík

Hallldór Halldórsson, formaður Sambands íslenskra sveitarfélaga, hefur ákveðið að gefa kost á sér í fyrsta sæti í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík. Þrír sækjast nú eftir oddvitasætinu.

Gagnrýnir Hönnu Birnu - Segir hana eiga að vita betur

"Það er mjög fróðlegt að heyra ráðherra dómsmála segja, að það sé engin réttaróvissa í málum sem eru rekin fyrir dómstólum,“ segir Skúli Bjarnason, lögmaður Landverndar, Náttúruverndarsamtaka Íslands, Náttúruverndarsamtaka Suðvesturlands og Hraunavina.

Síld innan við brú í Kolgrafafirði

Síld er að öllum líkindum farin að ganga undir brúnna í Kolgrafafirði á Snæfellsnesi eins og sést á meðfylgjandi myndbandi sem ljósmyndarinn Tómas Freyr Kristjánsson frá Grundarfirði gerði.

Stóru málin – Óraunhæft risagróðurhús?

Framkvæmdastjóri Sambands garðyrkjubænda, Bjarni Jónsson, óttast að áform hollenska félagsins Esbro um að byggja risagróðurhús undir tómatarækt við Grindavík séu ekki reistar á raunhæfum forsendum.

"Væri heimurinn á hliðinni ef Maria væri ekki ljóshærð?“

"Það er varhugavert að fólk sem tilheyrir ákveðnum þjóðfélagshópum, sé sjálfkrafa álitið líklegra til glæpsamlegrar hegðunar en aðrir,“ segir Katrín Oddsdóttir, lögfræðingur um fjölmiðlafárið sem orðið hefur vegna Mariu litlu sem tekin var af rómafólki í Grikklandi.

Sjá næstu 50 fréttir