Fleiri fréttir

Stúdentaráð fagnar

María Rut Kristinsdóttir, formaður Stúdentaráðs, segir að einhverjir hafi ákveðið að fara ekki í nám í vetur vegna þessarar óvissu sem hafi ríkt um framfærslu og mjög margir voru tvístígandi.

LÍN áfrýjar ekki niðurstöðu Héraðsdóms

Mennta- og menningarmálaráðherra, Illugi Gunnarsson, hefur ákveðið í samráði við stjórnarformann LÍN að íslenska ríkið muni ekki áfrýja dómi Héraðsdóms Reykjavíkur.

Kona á brjóstunum auglýsir íslenskt Lýsi

"Ég hefði nú ekki látið þetta fara frá okkur, ég held að þetta hvorki passi né virki fyrir litla Ísland,“ segir Katrín Pétursdóttir, forstjóri Lýsis, um auglýsingu fyrir íslenska undrameðalið sem sýnd var í sjónvarpi í Rúmeníu í fyrra.

Össur segir utanríkisráðherra hafa slegið Íslandsmet

Utanríkisráðherra sagði á Alþingi í morgun að ríkisstjórnin hefði metnaðarfulla stefnu varðandi Evrópusambandið þar sem EES samningurinn væri helsta stoðin. Hann hefur leyst upp samninganefnd Íslands í aðildarviðræðunum við sambandið.

Rektor segir Jón Baldvin hafa svikið sig

Kristín Ingólfsdóttir, rektor Háskóla Íslands, segir að harðorð grein Jóns Baldvins Hannibalssonar í Fréttablaðinu í gær, þar sem hann boðar málshöfðun á hendur Háskólanum, hafi komið sér í opna skjöldu. Hún hafnar því að kynjafræðingar hafi svínbeygt yfirstjórn skólans.

ESB: Deildir Íslands og Svartfjallands sameinaðar

Framkvæmdastjórn Evrópusambandsins segist munu hafa starfsfólk til að sinna málefnum Íslands á meðan Ísland er í umsóknarferli. Þetta kemur fram í svari stækkunarskrifstofu framkvæmdastjórnarinnar við fyrirspurn fréttastofu, en fram kom í fréttum í morgun að málefni Íslands hefðu verið færð undir nefnd sem sér um umsókn Svartfjallalands.

Arnaldur hlýtur RBA glæpasagnaverðlaunin

Arnaldur Indriðason fékk spænsku RBA glæpasagnaverðlaunin fyrir bókina Skuggasund sem kemur út þann 1. nóvember. Arnaldur fékk 20 milljónir króna í verðlaunafé.

Umferðatafir vegna fjárrekstra

Gera má ráð fyrir umferðartöfum á vegum í uppsveitum Árnessýslu í dag og næstu daga vegna fjárrekstra.

Yfirlæknar og prófessorar óttast óbætanlegt tjón á Landspítalanum

"Ein meginstoðin í gangverki Landspítala, lyflækningasviðið, glímir nú við erfiðleika sem gætu hæglega valdið óbætanlegu tjóni ef ekki verður tafarlaust brugðist við með viðeigandi aðgerðum,“ segir í Fréttablaðsgrein 20 yfirlækna og prófessora á Landspítalanum.

Veiðigjöldin verða 10 milljarðar

Tekjur ríkissjóðs af veiðigjöldum verða tíu milljarðar króna á næsta ári. Það er svipuð upphæð og innheimtist í ár og árið 2012.

Raki í húsnæði 20 prósenta Íslendinga

Skýr tengsl milli rakaskemmda og heilsuvanda. Málþing sérfræðinga um raka og myglu. Ekki reynt að finna sökudólga heldur á að efla samvinnu og umræðu.

Tíu næturverðir vakta 400 þjónustuíbúðir aldraðra

Reykjavíkurborg hefur engar áætlanir um að fjölga starfsmönnum á næturvöktum í þjónustukjörnum sem hún rekur fyrir aldraða. Borgin leigir út um 400 þjónustuíbúðir fyrir aldraða sem þurfa á aðstoð að halda.

Fagna nýju mati í Bjarnarflagi

„Við fögnum því að það er verið að opna á þann möguleika að þetta verði skoðað betur,“ segir Guðmundur Hörður Guðmundsson, formaður Landverndar. Landsvirkjun kynnti í gær úttekt verkfræðistofunnar Eflu á núgildandi mati á umhverfisáhrifum fyrir Bjarnarflagsvirkjun.

Vongóð um að ljúka málinu

Önnur umræða um umdeilt frumvarp um Hagstofuna fór fram á Alþingi í gær. Þar lagði meirihluti allsherjar- og menntamálanefndar fram breytingatillögur til þess að koma til móts við minnihlutann, sem hefur gagnrýnt frumvarpið harðlega, meðal annars fyrir að brjóta á friðhelgi einkalífsins.

Yfir 500 kynferðisbrot kærð frá áramótum

Metfjöldi kæra hefur borist lögreglu vegna kynferðisofbeldis frá áramótum. Ákært hefur verið í 29 málum á árinu, eða sex prósentum af þeim kærum sem hafa borist til lögreglu. Ekki hafa fleiri kærur borist ríkissaksóknara síðustu tvö ár.

Krefst milljóna fyrir handtökur við sendiráð

Lárus Páll Birgisson telur að lögregla hafi farið fram úr sér þegar hún vísaði honum tvisvar frá bandaríska sendiráðinu þar sem hann stóð og mótmælti. Hann fékk tvo dóma fyrir að óhlýðnast fyrirmælum en krefur ríkið nú um tvær og hálfa milljón.

Dönsk ungmenni hissa á slæmu aðgengi fyrir fatlaða á Laugaveginum

Aðgengi fyrir fatlaða á Laugavegi er ábótavant og ísland kemur illa út úr samanburði við önnur norðurlönd. Þetta segir hópur danskra ungmenna sem í dag gerði útttekt á aðgengismálum á Laugaveginum. María Lilja Þrastardóttir hitti hópinn á ferð sinni um bæinn í dag.

Ákvörðun LÍN um að framfylgja ekki dómi veldur óvissu hjá foreldrum í námi

Mikið óvissuástand ríkir á meðal háskólanema á meðan beðið er eftir því að Lánasjóðurinn áfrýji nýföllnum dómi um breytingar á úthlutunarreglum. Foreldrar í háskólanámi segja óvissuna setja dæld í fjölskyldulífið og telja stjórnvöld fara fram af mikilli vanvirðingu við námsmenn, dæmi eru um að fólk hætti námi vegna ástandsins.

"Vítahringur manneklu, álags og óánægju“

Formaður Félags íslenskra lyflækna og yfirlæknir nýrnasjúkdóma segir að meiriháttar átak þurfi til að snúa við vanda lyflækningasviðs Landspítalans. Þetta snúist ekki lengur bara um peninga heldur langvinnan vanda inni á spítalanum og neikvætt andrúmsloft sem þar hafi fengið að gerjast.

Fólk hvatt til að segja frá leynistöðum

Fólk er hvatt til að segja frá leyndarmálum og leynistöðum í verkefninu "Leyndarmálalandið Ísland“, sem byggir á grunni vörumerkisins Inspired by Iceland.

Jarðskjálftahætta vegna virkjunar nálægt náttúruperlu vanreifuð

Áhrif jarðskjálftavár í gildandi umhverfismati Bjarnarflagsvirkjunar er vanreifuð í gildandi umhverfismati fyrir virkjunina að mati verkfræðistofunnar Eflu. Landsvirkjun styður endurskoðað umhverfismat um þennan þátt en það gæti tekið 15 mánuði með öllu.

Netvæðing heilbrigðiskerfisins það sem koma skal

Vefsíða sem býður upp á hugræna atferlismeðferð við svefnvandamálum í gegnum internetið hefur fengið frábærar viðtökur. Læknir, sem lærir nú forritun, segir netvæðingu heilbrigðiskerfisins það sem koma skal.

Vetrarferðamönnum fjölgaði um 71 prósent

"Markmiðið er að fjölga ferðamönnum utan háannar enn frekar, skapa fleiri störf og auka hagvöxt og gjaldeyristekjur. Veturinn 2012 til 2013 komu 71 prósent fleiri ferðamenn til landsins en veturinn 2009 til 2010,” sagði Árni Gunnarsson, formaður Samtaka ferðaþjónustunnar á fundi í Hörpu í dag þar sem vetrarherferðin Ísland – allt árið var kynnt.

„Merkileg“ niðurstaða sýslumanns

Reynir Ingibjartsson, formaður Hraunavina veltir því fyrir sér hvort starfsmenn sýslumanns séu ekki nægilega upplýstir um breytingar sem orðið hafa á löggjöfinni hvað þetta varðar.

Funduðu um kjarasamninga

Leiðtogar stjórnarflokkanna, Sigmundur Davíð Gunnlaugsson forsætisráðherra og Bjarni Benediktsson fjármálaráðherra, funduðu með fulltrúum Samtaka atvinnulífsins, hreyfingar launafólks, Bændasamtakanna og Sambands íslenskra sveitarfélaga í Ráðherrabústaðnum í hádeginu, vegna kjarasamninga sem eru í burðarliðnum.

Örflögubylting í Borgarbókasafni

Tæknibylting verður í Borgarbókasafni á næstu vikum þegar strikamerkjum og þjófavarnarræmum verður skipt út fyrir örflögur.

Hafnaði lögbannsbeiðni

Sýslumaðurinn í Reykjavík hefur hafnað beiðni um lögbann vegna framkvæmda við lagningu vegar í Gálgahrauni í Garðabæ. Fjögur náttúruverndarsamtök fóru fram lögbannið.

Lesendur velja bestu myndina

"Náttúran“ er fyrsta þemað í ljósmyndakeppni Fréttablaðsins sem hefst í dag. Valdar verða bestu myndirnar frá sumrinu og haustinu í þremur flokkum. Í verðlaun fyrir bestu myndina er glæsileg Nikon 10,1 milljónar pixla myndavél með 10-27mm linsu.

Sjá næstu 50 fréttir