Maðurinn fundinn: Kaldur og uppgefinn en heill á húfi Haukur Viðar Alfreðsson skrifar 11. september 2013 21:08
Uppfært kl. 02:17 Klukkan 01:15 fundu björgunarsveitir manninn sem leitað var að við Svínafellsjökul í gærkvöldi. Hann var þá staddur í Hafrafelli í um 900 metra hæð. Var hann orðinn mjög kaldur og alveg uppgefinn og var settur í þurr föt og gefið að borða. Gert er ráð fyrir að það taki nokkurn tíma að koma manninum niður. Ferðin gengur hægt þar sem hann er máttfarinn. Þurfa björgunarmenn að ganga með honum um 4 km yfir torfarið svæði í myrkri og úrhellisrigningu áður en hægt er að koma honum í bíl. Þá verður ástand hans kannað og ákvörðun tekin um hvort fara þurfi með hann á sjúkrahús til aðhlynningar. Hátt í 100 björgunarmenn tóku þátt í leitinni eða voru á leið á svæðið þegar maðurinn fannst.Uppfært kl. 23:10 Leit stendur enn yfir að manninum. Hann hefur nú sent fleiri sms skilaboð til björgunarsveita. Er hann ekki staddur á jökli eins og í fyrstu var talið heldur á gönguleiðinni á Hrútfellstinda sem er vinsæl gönguleið en frekar krefjandi. Leiðin liggur meðfram Svínafellsjökli upp á tindana sem eru í tæplega 1.900 metra hæð. Þessi leið er ein af þeim vinsælli á svæðinu og er gengin af fjölda manns á ári hverju. Þyrla LHG er komin á staðinn og sveimar yfir neðan þokubakkans og fyrir skömmu sendi sá týndi skilaboð um að hann hefði heyrt í henni. Ofar á leitarsvæðinu er enn mikil þoka og hellirigning. Leitarmenn segja að skyggni sé aðeins um fimm metrar þegar notuð eru ljós.Kl. 21:08 Björgunarsveitir Landsbjargar leita manns sem er villtur á Svínafellsjökli. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Landsbjörgu en maðurinn lagði af stað í gönguferð í morgun og hugðist ganga upp að Hrútfellstindum. Um sexleytið í kvöld hringdi hann í systur sína í Póllandi og sagðist vera villtur. Hún hafði í framhaldinu samband við viðbragðsaðila hér á landi. Fyrstu björgunarsveitir voru kallaðar út um klukkan 18:30 og nú er búið að boða vant fjallafólk frá öllum sveitum frá Höfn til höfuðborgarsvæðisins enda jökullinn aðeins fær slíku fólki. Nokkrir starfsmenn frá Íslenskum fjallaleiðsögumönnum sem staddir voru í Skaftafelli munu einnig aðstoða við leitina. Gert er ráð fyrir að leita þurfi allt svæðið frá rótum jökulsins og upp að tindunum. Veður á svæðinu er afleitt, mikil þoka og rigning á köflum. Ekki hefur náðst símasamband við manninn en hann hefur náð að senda tvö sms skilaboð til bakvaktar björgunarsveita. Þar lýsir hann nánar staðsetningu sinni, segist vera orðinn kaldur og að síminn sé að verða straumlaus. Verið er að flytja búnað á svæðið sem miðað getur út staðsetningu símans og mun þyrla LHG líklegast fljúga honum frá Reykjavík og austur.
Mest lesið Telur Thomas Møller hafa fengið tækifæri til að eyða sönnunargögnum Innlent Sauð upp úr þegar Ragnar kallaði orð Ásgeirs óábyrg Innlent Fór í skólann og búið að farga dekkjastæðunni þegar heim var komið Innlent Kennarar boða tíðindi Innlent SA á leið í árshátíðarferð á meðan klukkan tifar í kjaradeilu Innlent Hringdi inn þegar konan reyndist gift öðrum manni Innlent Tugmilljóna gjaldþrot félags fíkniefnasmyglara Innlent Nóg að spyrja þá sem þurfa að borga launin Innlent Leigubremsan „augljóslega mjög heimskuleg“ Innlent Framlengja samninga út næsta ár Innlent Fleiri fréttir „Vonbrigði að Icelandair fljúgi ekki lengur til Kulusuk“ Ljósastaurar bilaðir víða í Reykjavík Ræst út vegna logandi rafhlaupahjóls Serbar á Íslandi mótmæla: „Það er ósanngjarnt að taka af fólki réttinn til að kjósa“ Hringdi inn þegar konan reyndist gift öðrum manni Tugmilljóna gjaldþrot félags fíkniefnasmyglara „Við erum að gefa boltann upp“ Þétta samstarfið í útnorðri „Við erum tilbúin að skoða lengingu skólaársins“ Bein útsending: Blaðamannafundur Kristrúnar, Beinis og Jens Frederik SA á leið í árshátíðarferð á meðan klukkan tifar í kjaradeilu Sver af sér ábyrgð á rannsókn um karlmennsku Bílvelta á Vesturlandsvegi Sauð upp úr þegar Ragnar kallaði orð Ásgeirs óábyrg Verða að viðurkenna barn getið með staðgöngumæðrun Segir „gerviþak“ breyta litlu um „ryksugu“ Rúv Viðræður VR við SA á leið inn „blindgötu“ Tímarit eigi hvergi stað og fái enga styrki Segir fjölmiðlanefnd stjórnlausa og sektaóða Geti reynst erfitt að standa við verðlagsloforðin Hvetur flokka til að afla leyfa fyrir tónlist í pólitískum áróðri Rubio hafi staðfest varnarskuldbindingar gagnvart Íslandi Breyti myndböndum af börnum að borða og dansa í barnaníðsefni Kennarar boða tíðindi Nóg að spyrja þá sem þurfa að borga launin Sex atvinnulausir um hvert laust starf Bein útsending: Áskoranir á norðurslóðum Glapræði að hafna væntanlegri launahækkun Kjarabarátta kennara bitni á námi barnanna Sólveig Anna segir glapræði að segja upp samningum Sjá meira