Fleiri fréttir

Olli stórhættu með lasergeisla

Með þyrlu Landhelgisgæslunnar og tveimur lögreglubílum tókst að elta uppi og króa af ökumann, sem er grunaður um að hafa beint laser geisla að flugumferð og flugturninum í Reykjavík á tólfta tímanum í gærkvöldi, en slíkt getur skapað stór hættu.

Sólríkasti marsmánuður í yfir áratug

Marsmánuður hefur ekki verið eins sólríkur í Reykjavík síðan 1999 eða í fjórtán ár. Sólarstundir voru tæplega 163 og er það 51 stund yfir meðallag. Á Akureyri mældust sólskinsstundirnar rúmlega áttatíu og er það í rétt rúmu meðallagi. Úrkoma í Reykjavík mældist rúmur 41 millimetri og er það um helmingur meðalúrkomu í mars. Síðast var mars ámóta þurr 2005. Á Akureyri mældist úrkoman tæpir 47 millimetrar og er það í rétt rúmu meðallagi.

Strætisvagn steyptist fram af brú

Að minnsta kosti sjö fórust þegar strætisvagn steyptist fram af einni af fjölförnustu brúm í Rio De Janerio í Brasilíu í nótt.

Kristjáni stefnt til að greiða tvo milljarða

Slitastjórn Kaupþings reynir enn að innheimta tveggja milljarða skuld Kristjáns Arasonar vegna hlutabréfakaupa í bankanum. Hann færði skuldina í hlutafélagið 7 hægri ehf. í febrúar 2008 en slitastjórnin telur hafa verið ólöglega að því staðið.

Þurfti að sanna nafn sitt með kirkjubókum

Fjölskyldutengsl eru aðalástæða þess að fólk breytir nafni sínu í þjóðskrá. Ungur maður þurfti að leita í kirkjubækur til að fá nafn sitt leiðrétt. Kona þurfti að láta upphafsstaf móður sinnar nægja og er ósátt við hámarksstafafjölda kerfisins.

Kjörnefndin hefur fengið álit lögmanns

Einn frambjóðenda til formanns í Félagi íslenskra hjúkrunarfræðinga hefur kært kosninguna sem fram fór í mars. Niðurstaðan var kynnt 14. síðasta mánaðar, en þá kom í ljós að Ólafur G. Skúlason hjúkrunarfræðingur hafði verið hlutskarpastur sex frambjóðenda. Einu atkvæði munaði á honum og næsta manni.

Aldursgreina fisk með litarefni

Hafrannsóknastofnun og BioPol Sjávarlíftæknisetur á Skagaströnd standa nú að tilraunum til að merkja grásleppu til að sannreyna aldur þeirra og að afla upplýsinga um gönguhegðun. Þar er að öllu leyti treyst á samstarf við sjómenn.

Boða til blaðamannafundar

Allsherjar- og menntamálanefnd Alþingis hefur boðað til blaðamannafundar klukkan hálf tvö í dag en þar verða kynntar tillögur nefndarinnar um úrræði til að bregðast við auknum fjölda kynferðisbrotamála gegn börnum.

8.730 breyttu um nafn í fyrra

Um tvö prósent þjóðarinnar breyttu um nafn í þjóðskrá í fyrra. Aldrei hafa breytingar verið jafn tíðar. Margir ósáttir við reglur þjóðskrár um stafafjölda. Rúmlega 13.000 breytingar voru skráðar á árunum 2007 til 2011.

Skjálftarnir færast nær landi

Ný skjálftaþyrping myndaðist í gærkvöldi um 15 til 20 kílómetra suðaustur af upptökum stóra skjálftans austur af Grímsey í fyrrinótt.

Flúðu af vettvangi

Tveir menn í mjög annarlegu ástandi voru handteknir í austurborginni undir kvöld í gær, eftir að þeir höfðu valdið þriggja bíla árekstri með því að aka gegn rauðu ljósi í veg fyrir hina bílana.

Réðust á erlendan sjómann

Ráðist var á erlendan sjómann, sem var á gangi í miðborginni á öðrum tímanum í nótt og tilkynnti vitni um árásina.

Landsliðskona fór af velli vegna mígrenis

"Ég las einhvers staðar að við værum fimmta feitasta þjóð í heimi. Það er alltaf verið að minnka íþróttakennslu í skólum. Þeir jafnvel farnir að gefa kort í ræktina og nemendur fara þangað á eiginn vegum. Mér finnst aðeins þurfa að staldra við þegar ástandið er svona," segir Sigurður Ragnar Eyjólfsson íþróttafræðingur.

Enn skelfur jörð við Grímsey

Jarðskjálftahrina stendur yfir austur af Grímsey. Skjálfti að stærð 4,5 stig á Richterkvarða mældist þar fimm mínútur yfir ellefu í kvöld.

"Misnota aðstöðu sína fyrir fjórflokkinn“

Pétur Gunnlaugsson, formaður hins nýstofnaða Flokks heimilanna, er allt annað en sáttur við að fá ekki sæti í kosningaþætti á Rúv í kvöld. Þetta kemur fram á Eyjunni.

Kæru vegna Álftanesvegar vísað frá

Vegagerðin hefur ákveðið að semja við verktaka um lagningu umdeilds Álftanesvegar um Gálgahraun eftir að úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindamála vísaði frá kæru nokkurra íbúa við hraunið.

"Kvíðaeinkenni geta komið fram í hvaða prófi sem er"

"Ég held að yfirhöfuð sé ekkert frekar verið að ofnota píptest frekar en önnur próf. Ég veit dæmi þess að sumir sofi nær ekkert nóttina fyrir próf og eru með þvílíkan kvíða. Ég held að oftar en ekki geri einstaklingar sjálfir of miklar kröfur til sín," segir Guðrún Valgerður Ásgeirsdóttir, formaður Íþróttakennarafélags Íslands.

Vill prófin út úr námsskrá grunnskóla

"Ég hélt að hún væri að fá heilablóðfall," segir faðir stúlku sem endaði á spítala eftir þolpróf í skólaleikfimi. Hann vill prófin út úr skólakerfinu og íþróttafræðingur tekur undir að fara þurfi varlega í þau.

Framsókn bætir enn við fylgi sitt

Framsóknarflokkurinn bætir enn við sig fylgi á kostnað Sjálfstæðisflokksins, samkvæmt nýjum Þjóðarpúlsi Gallup. Flokkurinn fengi 28,3 % atkvæða ef kosið yrði nú. Rúv greinir frá þessu.

Klífur fjöll fyrir krabbameinssjúk börn

Þorsteinn Jakobsson, fjallagarpur með meiru, hefur undanfarið unnið að tindaverkefni sem felst í því að klífa bæjarfjöll á Íslandi. Þorsteinn hefur ákveðið að ljúka verkefninu í samstarfi við Styrktarfélag krabbameinssjúkra barna á næstu 12 mánuðum og láta áheit í tengslum við göngurnar renna til SKB. Samstarfsverkefnið hefur hlotið nafnið Saman klífum brattann en baráttu krabbameinsveikra barna má oft og tíðum líkja við fjallgöngu sem stundum er erfið vegna bratta og klungurs en svo koma tímar og svæði inn á milli sem ekki eru jafnerfið yfirferðar.

Tekinn með 2,4 kíló af amfetamíni

Íslenskur karlmaður á fimmtugsaldri situr nú í gæsluvarðhaldi vegna rannsóknar lögreglunnar á Suðurnesjum á tilraun hans til stórfellds fíkniefnasmygls til landsins.

Tilkynnt um eld í Garðastræti

Tilkynnt var um eld innandyra í Garðastræti 44 í Reykjavík nú rétt fyrir klukkan þrjú. Húsið er íbúðahúsnæði en ekki hafa borist frekari upplýsingar um það hvort einhverjir voru innandyra þegar eldurinn kom upp.

Sér til lands í morðrannsókn

Enn er beðið eftir niðurstöðum dómskvaddra matsmanna vegna rannsóknar á andláti fanga á Litla Hrauni í maí á síðasta ári.

Hausafundur styrkir taflmannakenningu

"Þetta getur rennt stoðum undir þessa kenningu mína, en á hinn bóginn er allt eins líklegt að þessi fundur hafi nákvæmlega enga þýðingu í því samhengi. Það er ljóst að efniviðurinn var í landinu,“ segir Guðmundur G. Þórarinsson, fyrrverandi alþingismaður og forseti Skáksambands Íslands, um einstakan fund í fjöru á Snæfellsnesi. Guðmundur hefur sett fram þá kenningu að elstu taflmenn heims með nútímaútlit, Lewis-taflmennirnir, séu íslenskir að uppruna.

Skorradalurinn er hættuleg púðurtunna

Engar sértækar viðbragðsáætlanir eru til fyrir þéttar sumarhúsabyggðir á Íslandi nema ef slík áætlun hefur verið gerð að frumkvæði svæðisbundinna yfirvalda. Viðbragðsáætlun vegna gróðurelda í Skorradal verður kynnt í vikunni.

Telur Umferðarstofu gera óhóflegar kröfur

Bifvélavirkjar sem vilja fá réttindi til metanbreytinga á bílum þurfa að fá uppáskrift Umferðarstofu eftir að hafa breytt einum bíl. Erfiðlega gengur að ná í búnaðinn sem þarf til breytinganna án réttindanna. Röng vinnubrögð, segir kennari.

Óvissustig vegna jarðskjálfta

Almannavarnadeild Ríkislögreglustjóra lýsti fyrir stundu yfir óvissustigi vegna jarðskjálftahrynu úti fyrir Norðurlandi.

Nýr ráðuneytisstjóri skipaður

Svandís Svavarsdóttir umhverfisráðherra skipaði í dag Stefán Thors í embætti ráðuneytisstjóra í umhverfis- og auðlindaráðuneytinu. Hann og Sigríður Auður Arnardóttir, starfandi ráðuneytisstjóri voru talin hæfust. Ráðherra tók að loknum viðtölum ákvörðun um að skipa Stefán Thors í embættið. Stefán á að baki áralangt starf í opinberrri stjórnsýslu. Hann var skipaður skipulagsstjóri ríkisins árið 1985 og forstjóri Skipulagsstofnunar 1. janúar 2011.

Segja mat ríkisins skerða rétt geðsjúkra

"Þetta þýðir að ef honum dytti í hug að fara út af Hólabrekku myndi hann enda á götunni því samkvæmt þessu mati hefði hann ekki rétt á neinum stuðningi,“ segir Þröstur Ingólfur Víðisson, faðir fertugs manns sem hefur þjáðst af geðklofa síðustu tuttugu ár.

Endaði á spítala eftir píptest

"Það sem mér finnst ámælisvert er að þetta skuli vera notað í grunnskólum. Eftir því sem ég hef kynnt mér þetta betur er þetta mjög erfitt próf," Stefán Hákonarson, faðir ungrar stúlku sem endaði á spítala vegna ofreynslu eftir svokallað píptest.

Ölvaður maður fór úr að ofan í Leifsstöð

Ölvaður maður var til vandræða í komusal Flugstöðvar Leifs Eiríkssonar í fyrrakvöld. Hafði hann meðal annars ýtt við tollverði og farið úr að ofan. Lögreglumenn ræddu við manninn sem var mjög ölvaður og illskiljanlegur. Þeir gerðu honum grein fyrir því að hann væri ekki lengur velkominn í flugstöðinni vegna ástands síns og báðu hann að fylgja sér út.

Ekki vitað um neinar skemmdir vegna skjálftanna

Ekki er vitað til þess að neinar skemmdir hafi orðið vegna skjálftanna í Grímsey í nótt, segir Ragnhildur Hjaltadóttir sem vinnur á skrifstofunni hjá fiskverkuninni þar í sveitarfélaginu. Skjálfti upp á 5,5 varð við Grímsey í nótt. Nokkrir smærri eftirskjálftar hafa orðið, þar af einn upp á 4,3 sem Grímseyingar fundu vel fyrir í morgun. "Það hristust allar tölvur og allt,“ segir Ragnhildur um skjálftann í morgun.

Stundarkennari á Bifröst ráðherra í Slóveníu

Jernej Pikalo, stundakennari við Háskólann á Bifröst frá árinu 2006 var gerður að félags-og menntamálaráðherra Slóveníu í kjölfarið af kosningum þar í landi nú um miðjan marsmánuð.

Yfir 60 eftirskjálftar við Grímsey

Sterkur jarðskjálfti upp á 5,5 stig varð um eitt leitið í nótt með upptökum um 14 kílómetra austur af Grímsey, og annar upp á 4,1 stig skömmu síðar. Fyrri skjálftinn fannst víða á Norðurlandi, eða allt frá Sauðárkróki í vestur og austur á Raufarhöfn og upp í Mývatnssveit.

Gaf upp rangt nafn

Ökumaður, sem lögregla stöðvaði í Kópavogi vegna fíkniefnaaksturs upp úr miðnætti, reyndi að villa á sér heimildir og undirritaði skýrslu með röngu nafni.

Vilja að fjöldamorðinginn verði dæmdur til dauða

Þess verður krafist að James Holmes, sem skaut tólf til bana og særði fimmtíu og átta í skotárás í kvikmyndahúsi í Colorado-fylki í Bandaríkjunum á síðasta ári, verði dæmdur til dauða.

Þriggja bíla árekstur á Reykjanesbraut

Þrír ökumenn, sem allir voru einir í bílum sínum, voru fluttir á slysadeild Landsspítalans í gærkvöldi eftir þriggja bíla árekstur á gatnamótum Flugvallarvegar og Reykjanesbrautar í Keflavík í gærkvöldi.

Jörð skelfur fyrir norðan - fannst vel á Akureyri

Nokkrir skjálftar hafa mælst fyrir norðan nú í kvöld. Sá stærsti 5.3 stig rétt fyrir klukkan eitt rúma 16 kílómetra austur af Grímsey á svokölluðu Tjörnesbelti samkvæmt óyfirförnum frumniðurstöðum Veðurstofu Íslands. Skjálftinn fannst vel á Akureyri samkvæmt íbúum þar.

Vilja nota Airbus á Reykjavíkurflugvelli

Færeyska flugfélagið Atlantic Airways óskar eftir því að fá að nota 144 sæta Airbus-þotu í áætlunarflugi sínu milli Reykjavíkur og Færeyja. Þetta yrði stærsta flugvélin sem nýtti Reykjavíkurflugvöll í reglubundnu flugi. Airbus-þota Færeyinga hefur reyndar einu sinni lent á Reykjavíkurflugvelli, í ágústmánuði í fyrrasumar, og fékk þá höfðinglegar móttökur. Færeyska flugfélagið fær aðra Airbus-vél nú í vor og þá þriðju í október. Eldri þotur Færeyinga, af gerðinni British Aerospace, taka 95 farþega, og hafa verið stærstu vélarnar í áætlunarflugi til Reykjavíkur, en Airbus A319 tekur helmingi fleiri, eða 144 farþega.

Sinueldur í Gufuneskirkjugarði

Slökkviliðsmenn berjast nú við sinueld í Gufuneskirkjugarði. Að sögn slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins er ein stöð á staðnum og telur sig ráða við eldinn. Töluvert mikill reykur berst frá kirkjugarðinum og hefur slökkviliðið fengið margar tilkynningar frá íbúum á svæðinu.

Íslenskir sjómenn komust í hann krappan

Litlu mátti muna að illa færi á Föstudaginn langa þegar skip með íslenskri áhöfn sem var á leið frá Kanada til Belgíu með annað skip í brotajárn lenti í aftakaveðri nokkrum dögum eftir brottför.

Sjá næstu 50 fréttir