Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Fjárlög kynnt á Alþingi í dag Fjárlagafrumvarp ársins 2013 verður lagt fram og kynnt á fyrsta degi haustþings í dag. 11.9.2012 06:00
Skiptar skoðanir um Crossfit Ólympískar lyftingar geta ekki hentað bæði eldri borgurum og keppnisfólki segir íþróttafræðingur sem gagnrýnir Crossfit þjálfun landans harðlega. Crossfit þjálfari segir að hægt sé að segja að allar íþróttir séu slæmar fyrir líkamann. 10.9.2012 22:34
Kópavogsbær gaf Jóni Margeiri 500 þúsund Bæjarstjórn Kópavogs færði í dag Jóni Margeiri Sverrissyni, Kópavogsbúa og Ólympíumeistara, 500.000 krónur að gjöf fyrir glæsilegan árangur á Ólympíumóti fatlaðra í London. 10.9.2012 21:10
Seljalandsfoss umturnaðist í óveðrinu „Þetta var alveg rosalega flott," segir Sólveig Pálmadóttir, íbúi í Fljótshlíð, sem náði hreint út sagt ótrúlegum myndum af Seljalandsfossi í dag. Mikill vindur var á svæðinu, líkt og sjá má á meðfylgjandi myndum. 10.9.2012 20:07
Hækkaðir skattar í ferðaþjónustu skaða Ísland Framkvæmdastjóri Samtaka evróskra ferðaskrifstofa segir boðaðar skattahækkanir í ferðaþjónustu hafa sett allt í uppnám. Ekki sé hægt að hækka verðið eftir að búið að er gera samninga sem miða við þrefalt lægri skatta. 10.9.2012 21:15
Íslendingar í klakahöll undir Grænlandsjökli Virkjun sem Ístak er að smíða á Grænlandi við Diskóflóa lengst norðan heimskautsbaugs er stærsta verkefni í fjörutíu ára sögu fyrirtækisins. Þar er sennilega sú Íslendinganýlenda sem fjærst er öðrum byggðum bólum í sannkallaðri klakahöll við bæinn Ilulissat. Fyrri reynsla Ístaksmanna af smíði virkjana á Grænlandi réð miklu þegar Orkustofnun Grænlands fól þeim einnig þetta tólf milljarða króna verk, þótt þeir ættu ekki lægsta boð. 10.9.2012 20:15
Björguðu kind sem fennt hafði í kaf Aðeins er farið að hægja á verkefnum björgunarsveita þrátt fyrir að bálhvasst sé víða um land ennþá. Alls hafa 24 björgunarsveitir Slysavarnafélagsins Landsbjargar verið við störf í dag og milli 70 til 80 manns. 10.9.2012 19:48
Rafmagn komið á á Akureyri "Við náðum að koma aðallínunni inn til Akureyrar til fyrir skömmu. Rafmagnið er því komið á þar, sem og á Eyjafjarðarsvæðinu. Kópasker er þó enn rafmagnslaust því eina línan sem þangað liggur er skemmd. Við erum að fara í það að laga hana núna,“ segir Guðlaugur Sigurgeirsson, deildarstjóri netrekstrar hjá Landsneti. 10.9.2012 19:35
"Ég vil ekki deyja lengur, ég vil lifa" Ung kona sem reyndi endurtekið að fremja sjálfsmorð segist ekki vilja deyja lengur, og að það sé gott að finna aftur lífslöngunina. Tveir til þrír Íslendingar fremja sjálfsvíg í hverjum mánuði. 10.9.2012 19:23
Síðasta ferð Herjólfs fellur niður Vegna veðurs og sjólags á milli Vestmannaeyja og Landeyjahafnar fellur niður síðasta ferð Herjólfs frá Vestmannaeyjum klukkan 20:30 og frá Landeyjahöfn klukkan 22:00. 10.9.2012 19:19
Hinrik saklaust fórnarlamb fólskuverks Varðstjóri morðdeildar lögreglunnar í Tulsa í er enn að fara yfir upptökur úr eftirlitsmyndavélum af svæðinu þar sem Hinrik Þórsson var myrtur aðfaranótt laugardagsins. 10.9.2012 18:58
Ófært um Vatnsskarðið Lögreglan á Sauðárkróki vill koma því á framfæri við vegfarendur að sé búið að loka Vatnsskarðinu vegna ófærðar en Þverárfjallsvegur verður mokaður til klukkan 20 í kvöld en þá verður honum einnig lokað. 10.9.2012 18:29
Eldri kona tókst á loft í vindhviðu Um klukkan hálf tólf í dag var tilkynnt um eldri konu sem hafði tekist á loft í vindhviðu við Hamraborg í Kópavogi. Að sögn lögreglu féll konan illa til jarðar og meiddist á vinstri öxl og hendi. Hún var flutt á slysadeild en ekki er vitað nánar um líðan hennar. 10.9.2012 18:21
Fatlaðir fengu 4 milljónir frá ríkisstjórninni Ríkisstjórnin færði í dag Íþróttasambandi fatlaðra fjórar milljónir króna að gjöf í viðurkenningarskyni fyrir glæsileg afrek íslensku þátttakendanna í Ólympíuleikum fatlaðra sem nýlokið er í Lundúnum. 10.9.2012 17:44
Allt Norðurland án rafmagns "Það er mjög óvenjulegt, sérstaklega svona í seinni tíð að svona stór hluti af landinu verði rafmagnslaus vegna veðurs,“ segir Guðlaugur Sigurgeirsson, rafmagnsverkfræðingur og deildarstjóri netrekstrar hjá Landsneti. Rafmagnslaust er nánast á öllu Norðurlandi, frá Blönduósi og að Kópaskeri, og þá er stórhluti Austurlands keyrði áfram á varaafli. 10.9.2012 17:36
Innanlandsflugi aflýst en millilandaflug á áætlun Öllu innanlandsflugi hefur verið aflýst í dag vegna veðurs. Flugfélag Íslands hefur flogið til Grænlands og Færeyja en ekkert innanlands. 10.9.2012 16:43
Malbikið stenst ekki veðurofsann Það er hasar á Íslandi í dag og víða hafa menn lent í kröppum dansi vegna veðurofsa. Tugir björgunarsveitamanna hafa farið í hvert útkallið á fætur öðru og smalar hafa setið fastir í leitarmannakofum. Nú síðast stóðst malbikið við Skaftafellsá ekki veðurofsann og flettist af veginum við brúna. 10.9.2012 16:31
Sambíóin loka á Selfossi "Já, við ætlum að loka 1. nóvember nk. og höfum sagt upp öllu okkar starfsfólki á Selfossi, 10 manns. Ástæðan er fyrst og fremst gömul tæki á Selfossi, við erum með 35 mm vélar þar en nú er allt meira og minna komið í digital. Við treystum okkur ekki í að endurnýja tækin á Selfossi og ætlum því að loka,“ sagði Alfreð Árnason hjá Sambíóunum í samtali við fréttavefinn dfs.is, en Sambíó hefur verið á Selfossi síðan 2006. 10.9.2012 16:28
Handteknir með 100 grömm af amfetamíni Lögreglan stöðvaði tvo karlmenn á þrítugsaldri í Reykjavík fyrir helgina en þeir voru með 100 grömm af amfetamíni í fórum sínum. Þeir voru báðir handteknir. Lögreglan lagði hald á amfetamínið og sömuleiðis hnúajárn sem fannst í bifreið mannanna. Þeir hafa báðir komið áður við sögu hjá lögreglu, m.a. vegna fíkniefnamála. 10.9.2012 15:43
Kornið að skemmast á Norðurlandi Talsverðar líkur eru á að korn á Norðurlandi hafi skemmst vegna veðurs í nótt og í dag. Ekki liggur fyrir hve umfangsmiklar skemmdirnar eru. 10.9.2012 15:22
Mögulega salmonella í kjúklingi frá Matfugli Komið hefur upp grunur um salmonellusmit í ferskum kjúklingi framleiddum af Matfugli ehf. Frekari rannsókna er þörf til þess að staðfesta gruninn en þangað til þykir fyrirtækinu rétt að innkalla vöruna. 10.9.2012 15:20
Boða til tunnumótmæla á miðvikudaginn Boðað hefur verið til tunnumótmæla þegar stjórnmálaflokkar halda stefnuræður á Alþingi næstkomandi miðvikudag. Í tilkynningu frá hópi sem kallar sig Tunnurnar er almenningur hvattur til þess að mæta fyrir utan Alþingi klukkan hálf átta en stefnuræður flokkanna hefjast 19:50. 10.9.2012 15:19
Engir smalar á ferð á Norðurlandi Smalar á Norðurlandi hafa ekki lent í vandræðum vegna veðurs samkvæmt upplýsingum frá Bændasamtökum Íslands. Ástæðan er einfaldlega sú að þeir eru ekki á ferðinni sem stendur. 10.9.2012 14:57
Jón Gnarr hvetur borgarstjórann í Moskvu til að leyfa gleðigöngur Jón Gnarr borgarstjóri í Reykjavík hefur skrifað bréf til Sergey Sobyanin borgarstjóra í Moskvu. Í bréfinu lýsir Jón Gnarr því yfir að hann vilji deila því með borgarstjóranum hversu jákvæð áhrif Hinsegin dagar og gleðigangan hafi haft á ímynd Reykjavíkur og viðhorf almennings til samkynhneigðra, tvíkynhneigðra og transfólks. Orðið hafi mikil viðhorfsbreyting til batnaðar á Íslandi vegna hátíðarinnar sem sé nú ein stærsta útihátíðin í Reykjavík. 10.9.2012 14:38
Tæplega 90% lögreglumanna eru karlmenn Um 88% starfsmanna lögregluembættanna eru karlmenn. Þetta kemur fram í ársskýrslu Ríkislögreglustjóra. Þar kemur fram að á meðal starfandi óbreyttra lögreglumanna eru um 85% karlar en tæp 15% konur. Hæst er hlutfall kvenna meðal afleysingamanna, en þar eru konur um 20%, og næsthæst meðal rannsóknarlögreglumanna, en þar er hlutfalla kvenna tæp 18%. Af 35 aðalvarstjórum er ein kona. Engin kona gegnir stöðu yfirlögregluþjóns eða aðstoðarvarðstjóra. 10.9.2012 14:20
Þakplötur fjúka af húsum Þakplötur eru byrjaðar að fjúka af húsum í miðborginni. Auk þess er búið að kalla út björgunarsveitir til aðstoðar ferðamönnum á Kaldadal, í Vatnsskarði, við Mývatn, á Hólasandi, við Varmahlíð og í Víkurskarði. Björgunarsveitir hafa einnig verið kallaðar út vegna foks í Aðaldal, í Skagafirði, á Bolungarvík, í Vestmannaeyjum, á Mývatni og eins og fyrr sagði á höfuborgarsvæðinu. Slysavarnafélagið Landsbjörg ítrekar að lítið ferðaveður er á landinu í dag og í kvöld víðast hvar um landið. 10.9.2012 14:03
Ánægð með ákvörðun Ögmundar - samningaviðræður ekki hafnar "Umbjóðandi minn er mjög ánægður með þessa ákvörðun," segir Áslaug Árnadóttir hæstaréttarlögmaður og lögmaður Höllu Bergþóru Björnsdóttur, sýslumanns á Akranesi, út af ákvörðun Ögmundar Jónassonar innanríkisráðherra um að kæra ekki úrskurð kærunefndar jafnréttismála til Héraðsdóms Reykjavíkur. 10.9.2012 13:37
Kornið sleppur ennþá í rokinu á Suðurlandi „Það er allt í lagi hjá okkur og kornið er ekki að skemmast þrátt fyrir rokið. Ég hef meiri áhyggjur af korninu fyrir norðan, það hlýtur að fara mjög illa í þessu veðri," sagði Björgvin Þór Harðarson, svína- og kornbóndi í Laxárdal í Skeiða og Gnúpverjahreppi. Hann ræktar korn á um 200 hekturum í Gunnarsholti á Rangárvöllum. „Það besta er að það rignir ekki eða snjóar hjá okkur í þessu vonda veðri, það munar öllu, það er alveg þurrt þrátt fyrir mikið hvassviðri, það bjargar korninu hér á Suðurlandi," bætti Björgvin Þór við. 10.9.2012 13:36
Smala ekkert í dag Leitarmenn á Suðurlandi munu ekki smala mikið í dag vegna veðurs. 16 manna hópur á afrétt Gnúpverja, Flóa- og Skeiðamanna heldur nú til í leitarmannakofa í Bjarnalækjarbotnum og bíður veðrið af sér. 10.9.2012 13:35
Íslenskt sprotafyrirtæki þykir best Íslenska sprotafyrirtækið Cloud Engineering var í dag valið besta sprotafyrirtækið á Norður- og Eystrasaltslöndunum í flokki viðskiptahugbúnaðar. Valið fór fram fyrir hina árlegu Arctic 15 ráðstefnu sem haldin verður 16. október næstkomandi. 10.9.2012 12:49
Skattahækkanirnar í ferðaþjónustu áfall Boðaðar skattahækkanir í ferðaþjónustu á Íslandi eru áfall fyrir alla þá sem hafa ákveðið að kynna og fjárfesta í ferðaþjónustu á landinu. Þetta kemur fram í yfirlýsingu frá Samtökum evrópskra ferðaskrifstofa sem send var fjölmiðlum í morgun. 10.9.2012 12:19
Segir forvörnum gegn sjálfsvígum sérlega ábótavant Faðir pilts sem framdi sjálfsvíg þegar hann var 22ja ára segir forvörnum gegn sjálfsvígum verulega ábótavant á Íslandi. Á Íslandi fremja tveir til þrír sjálfsvíg í hverjum mánuði. Alþjóðlegur dagur tileinkaður forvörnum vegna sjálfsvíga er í dag. Talið er að í heiminum öllum verði sjálfsvíg á 40 sekúntna fresti. Á Íslandi eru að jafnaði 33 til 37 sjálfsvíg á ári. Á síðasta ári voru þau 40. 10.9.2012 12:12
Ögmundur unir úrskurði kærunefndar jafnréttismála Ögmundur Jónasson innanríkisráðherra ætlar ekki að láta reyna á það fyrir dómstólum hvort hann hafi brotið jafnréttislög. Þetta kemur fram í hádegisfréttum RÚV. Þar segir að úrskurður Kærunefndar jafnréttismála muni standa. 10.9.2012 12:11
Ákærður fyrir umfangsmikla kannabisræktun Ungur maður hefur verið ákærður fyrir ýmiss konar fíkniefna- og ofbeldisbrot, m.a. að rækta 120 kannabisplöntur á heimili sínu. Ferliðuð ákæra var þingfest fyrir héraðsdómi Reykjavíkur í dag þar sem krafist er viðeigandi refsingar. 10.9.2012 11:45
40 krossar til minningar um þá sem sem létust í sjálfsvígum Snemma í morgun voru settir upp 40 krossar við Austurvöll framan við Dómkirkjuna til að minna á hversu margir látast í sjálfsvígum. Samkvæmt bráðabirgðatölum létust 40 í sjálfsvígum árið 2010 en síðustu ár hefur fjöldinn verið í kringum 33-37 sjálfsvíg á ári. Hæst fóru sjálfsvíg árið 2000 en þá féll 51 fyrir eigin hendi. 10.9.2012 11:35
Bilun veldur víðtæku rafmagnsleysi norðaustanlands Rafmagnslaust er á stórum hluta norðausturlands en bilun er á stórri stofnlínu á milli Laxárvirkjunar og Kópaskers. 10.9.2012 07:54
Björgunarsveitir víða að störfum Björgunarsveitir hafa víða verið kallaðar út í morgun til aðstoðar fólki á ferð. Sjálfboðaliðar félagsins nú að störfum í Aðaldal, við Ljósavatnsskarð, í Reykjadal, í Víkurskarði, við Varmahlíð og á Hólasandi. Færð er víða tekin að spillast og það virðist koma fólki á óvart samkvæmt upplýsingum frá Landsbjörg. 10.9.2012 11:23
Vinnuskúrar fuku á hliðina Tveir vinnuskúrar á hafnarsvæðinu í Bolungarvík fuku á hliðina í nótt samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni á Vestfjörðum. Ekki var talin hætta á ferðum en búast má við að tjónið sé eitthvað. Björgunarsveitarmenn frá björgunarsveitinni Tindum í Hnífsdal var svo kölluð út vegna þess að þakplötur voru farnar að fjúka í nótt. 10.9.2012 11:18
Íbúar Kvennaathvarfsins þurfa meðal annars að sofa á gólfinu Á þessu þrítugasta afmælisári Kvennaathvarfsins verður blásið lífi í fjáröflunarátakið "Öll með tölu“. Nú verður átakið endurtekið með sölu á nýhannaðri tölu með merki athvarfsins. Átakið mun skipta sköpum fyrir framtíð athvarfsins. 10.9.2012 10:35
Húsbíll fauk af veginum Húsbíll fauk út af veginum undir Ingólfsfjalli og hafnaði í skurði laust fyrir klukkan níu í morgun. Farþegar sluppu ómeiddir en bíllinn liggur enn utan vegar. 10.9.2012 09:52
Ólympíufarar koma heim í dag Í tilefni af góðum árangri íslensku keppendanna í Ólympíumóti fatlaðra í London munu Katrín Jakobsdóttir mennta- og menningarmálaráðherra og Guðbjartur Hannesson velferðarráðherra taka á móti Ólympíuförunum á Keflavíkurflugvelli við komu þeirra frá London. 10.9.2012 09:46
Veðurstofan frestar vígslu vegna veðurs Veðurstofa Íslands hefur frestað vígslu á veðursjá á Austurlandi, sem til stóð að vígja á morgun, vegna veðurs. Í tilkynningu frá Veðurstofu Íslands þá verður að fresta vígslunni til miðvikudagsins 12. september vegna slæmrar veðurspár á morgun. 10.9.2012 09:39
Víkurskarð ófært fólksbílum vegna óveðurs Víkurskarð er ófært fólksbílum vegna veðurs og ísingar. Að sögn lögreglunnar á Akureyri er flutningabíll í vandræðum í skarðinu og teppir hann umferð. 10.9.2012 08:19
Hitabeltisstormurinn Leslie nær til Íslands sem lægð Hitabeltisstormurinn Leslie gekk í gær yfir Bermúdaeyjar á Atlantshafi og stefnir nú hraðbyri að ströndum Nýfundnalands. 10.9.2012 07:01
Lítið um vandræði vegna veðursins í nótt Þrátt fyrir töluvert rok víðast hvar á landinu í gærkvöldi og í nótt hefur verið lítið um vandræði vegna veðursins. 10.9.2012 06:49