Innlent

Mikil framleiðsla á amfetamíni hér á landi

Kókaínmarkaðurinn virðist vera að eflast á ný.
Kókaínmarkaðurinn virðist vera að eflast á ný.
„Það liggur fyrir að hér á landi er framleitt mikið af marijúana og amfetamíni og mjög lítið af þessum efnum flutt inn, að minnsta kosti tilbúið til neyslu.“ Þetta segir Karl Steinar Valsson, yfirmaður fíkniefnadeildar LRH, spurður um hugsanlegar skýringar á því að umræddar tegundir fíkniefna hafa hrapað í verði á götunni.

Verð á vímuefnum hefur farið lækkandi undanfarin tvö ár, samkvæmt verðmælingum sem SÁÁ gerir meðal sjúklinga á Vogi. Verðið hefur ekki verið lægra síðan mælingar hófust um síðustu aldamót. Kannanirnar sýna að í fyrsta skipti í ársbyrjun 2010 skilur í fyrsta skipti á milli verðþróunar á áfengi og fíkniefnum. Meðan áfengi hélt áfram að hækka lítillega lækkaðu vímuefnin umtalsvert. Nefna má að 2010 lækkaði amfetamín mikið í verði og hass nokkuð. Hassið elti síðan verðlækkun á amfetamíni á þessu ári.

Verð á kókaíni hefur að mestu staðið í stað en verð á rítalíni hefur hækkað og nánast fjórfaldaðist á tímabili miðað við verð ársins 2006. Karl Steinar kveðst telja að í fíkniefnaviðskiptum, þótt ólögleg séu, ríki í raun sömu lögmál og í almennum viðskiptum sem ráðist af framboði og eftirspurn.

„Hugsanlega gætu menn verið að reyna að ná yfiráðum á einhverjum hluta markaðar með því að bjóða efni á lægra verði,“ útskýrir hann. „Það gæti líka skýrt stöðu annarra efna, það er að segja kókaíns og e-taflna, að markaðurinn á kókaíni hefur verið í lægð en virðist vera að eflast á ný.

E-töflumarkaðurinn hefur verið miklu óstöðugri og erfitt að lesa í hreyfingar á verði þar.“- jss




Fleiri fréttir

Sjá meira


×