Tunglið verður appelsínugult á laugardag Kristján Már Unnarsson skrifar 8. desember 2011 13:33 Frá upphafi tunglmyrkva í mars 2007 þegar appelsínuguli liturinn sást frá Íslandi.
Tunglmyrkvi verður á Íslandi í ljósaskiptunum síðdegis á laugardag, þann 10. desember. Hann mun sjást sem almyrkvi á austanverðu landinu en sem deildarmyrkvi vestanlands, svo fremi að ekki verði skýjað. Vefsíða Almanaks Háskóla Íslands segir að almyrkvinn hefjist þegar enn er dagsbirta á Íslandi og því sést ekki almyrkvað tungl frá Reykjavík en deildarmyrkvi verður sýnilegur þaðan þegar dimmir. Austast á landinu sést tunglið almyrkvað þegar það kemur upp fyrir sjóndeildarhringinn undir lok almyrkvans. Á Stjörnufræðivefnum segir að Austfirðingar verði einu og heppnustu íbúar landsins sem sjá rauðu almyrkvuðu tungli bregða fyrir. Tunglið rísi nefnilega austast á landinu skömmu áður en almyrkva lýkur klukkan 14:58. Annars staðar á landinu rís tunglið deildarmyrkvað (klukkan 15:28 í Reykjavík) en því stigi myrkvans lýkur klukkan 16:18, og er vitnað til Almanaks Háskólans fyrir árið 2011. Tunglmyrkvar eru með fallegustu stjarnfræðilegu sjónarspilum sem sjást með berum augum, að því er segir á Stjörnufræðivefnum. Þótt fæstir landsmenn sjái rautt almyrkvað tungl á laugardag verði engu að síður tignarlegt að fylgjast með deildarmyrkvanum. Þegar tunglið rísi verði upplýsti hluti þess appelsíngulur með dökkan jarðskugga yfir hægri helmingnum. Tunglmyrkvar sjást frá hálfri jörðinni í senn, það er að segja þeim helmingi jarðar sem snýr að tungli þegar myrkvinn verður. Tunglmyrkvinn á laugardag sést best frá Asíu og Ástralíu en frá Evrópu sést hann að hluta. Almyrkvar á tungli sjást að meðaltali á tveggja til þriggja ára fresti frá hverjum stað á jörðinni. Stutt er þó frá síðasta tunglmyrkva á Íslandi en hann var þann 21. desember í fyrra og sást í 74 mínútur. Næst sést almyrkvi á tungli frá öllu Íslandi þann 28. september árið 2015.
Mest lesið Ekki 270 ferkílómetrar heldur 26 Erlent Fái að ráðast í húsleit og spyrja svo Innlent Ætluðu að vinna skemmdarverk í Danmörku Erlent Vonast til að geta haldið árásum í lágmarki fram yfir kosningar Erlent Trump um Harry og Meghan: „Ég var enginn aðdáandi“ Erlent Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Innlent Líklega á yfir tvö hundruð kílómetra hraða Innlent Segir skattahækkun á baðlón bíta fastast á landsbyggðinni Innlent Rúmur helmingur flugmannanna hafi sofnað við störf Innlent Vinnuframlag Skúla Tómasar afþakkað Innlent Fleiri fréttir Fái að ráðast í húsleit og spyrja svo Bændum brugðið og skoði frekari öryggisbúnað Segir skattahækkun á baðlón bíta fastast á landsbyggðinni Rúmur helmingur flugmannanna hafi sofnað við störf Svona voru aðstæður við svínabú Stjörnugríss Stytta gjaldskyldu og opna bílahús allan sólarhringinn Sonur þingmannsins í áframhaldandi gæsluvarðhald Rúvarar verði einir eftir í Efstaleitinu Stefnan tengist ekki þjóðaratkvæðagreiðslu Talsvert tjón og týndar tennur Eigendur Santé neita sök Samfélagið syrgir ungmennin sem létust Sex svín drápust eftir annað innbrot „Þetta er smjörklípa“ Minningarstundir og ESA undirbýr dómsmál Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Skoða að stefna Íslandi vegna bókunar 35 Aðild að ESB hafi aldrei verið markmið í sjálfu sér Einn grunaður um íkveikju á Center Hotel Skjaldbreið Bruninn mikið áfall og tjónið líklega verulegt í versluninni Um þriðjungur þjóðarinnar horfði á síðasta fréttatímann Flúði hótelherbergið vegna brunans og gleymdi tönnunum Vinnuframlag Skúla Tómasar afþakkað Eldri borgarar fái sanngjarnari tekjur þrátt fyrir aukin gjöld Gestir fluttir á önnur hótel vegna skemmda eftir brunann Enginn handtekinn vegna hótana í garð Þorgerðar Lægð nálgast og hviður geta orðið bílum skeinuhættar Líklega á yfir tvö hundruð kílómetra hraða „Hér var enginn glæpur og ekki heldur gáleysi“ Tveir á slysadeild í kjölfar bruna á hóteli í miðbænum Sjá meira