Fleiri fréttir

Róttækra breytinga þörf á starfi Samfylkingarinnar

Guðrún Jóna Jónsdóttir tölvunafræðingur, sem kjörinn var formaður Ungra jafnaðarmanna á landþingi samtakanna í gær, sagði í ræðu sinni á þinginu að rótækra breytinga væri þörf á innra starfi Samfylkingarinnar.

Árásarmaðurinn á Akureyri er enn í haldi

Karlmaður, sem réðst á annan mann í fjölbýlishúsi við Tjarnarlund á Akureyri í gærmorgun, er enn í haldi lögreglunnar á Akureyri og verður yfirheyrður með morgninum.

Ósætti vegna ráðningar skrifstofustjóra

Umsækjendur um starf skrifstofustjóra auðlindaskrifstofu í sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytinu eru ósáttir við niðurstöðu Ögmundar Jónassonar, dóms- og samgöngumálaráðherra, um að ráða Jóhann Guðmundsson, aðstoðarmann Jóns Bjarnasonar, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, í starfið.

Tvö hundruð manns leituðu um helgina

Rúmlega 200 björgunarsveitar- og lögreglumenn leituðu að Andrési Tómassyni um helgina. Andrés hefur verið týndur í tíu daga og sást síðast til hans föstudaginn 24. september.

Nýta eiginleika sem heilbrigt fólk skortir

Gangi áætlun fyrirtækisins Sérfræðingarnir eftir munu allt að átján einhverfir einstaklingar hljóta þjálfun strax á næsta ári sem gerir þeim kleift að takast á við verkefni á almennum vinnumarkaði.

Eiga að mæta með hávaðatól

Boðað hefur verið til mótmæla á Austurvelli klukkan 19.30 í kvöld. Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra flytur stefnuræðu sína á sama tíma og er fólk hvatt til þess að mæta með stóra hljómgjafa til þess að „skapa réttan undirleik og umgjörð“ eins og segir á Facebook-síðu fyrir mótmælin sem ganga undir nafninu Tunnumótmælin.

Lömuð kona slasaðist vegna kæruleysis bílstjóra

Slys við flutning á fatlaðri konu hefur orðið til þess að Umferðarstofa vill endurskoða reglur um ábyrgð ökumanna. Konan, sem er mikið fötluð, slasaðist þegar verið var að flytja hana á milli staða í bíl í mars síðastliðnum. Hjólastóll konunnar var festur í bílinn en konan ekki í stólinn. Hún féll úr stólnum þegar bílstjórinn ók út á afrein. Konan er lömuð og gat því ekki tryggt sig þegar bíllinn beygði. Málið er komið til ákærusviðs lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu. Talið er að reglur um öryggisbúnað hafi ekki verið brotnar en ákvörðun um framhald málsins hefur ekki verið tekin.

Reyðarfjarðarlína verður endurreist

Ákveðið hefur verið að endurreisa sauðfjárveikivarnarlínu sem liggur upp úr Reyðarfirði vegna garnaveiki sem kom upp í Fáskrúðsfirði í vetur.

Leit að Andrési hefur ekki borið árangur

Leit að Andrési Tómassyni hefur staðið yfir í allan dag án árangurs, samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu. Síðast er vitað um ferðir Andrésar á föstudaginn 24. september. Hann er með bifreiðina LZ-195 sem er ljósbrún Suzuki Grand Vitara árgerð 2003.

Sérstakur saksóknari í máli Geirs kjörinn á miðvikudag

Gert er ráð fyrir að sérstakur saksóknari Alþingis vegna ákæru á hendur Geir Haarde verði skipaður á þingfundi á miðvikudag, segir Ásta Ragnheiður Jóhannesdóttir. Hún á von á því að farið verði með kosninguna með svipuðum hætti og þegar að Umboðsmaður Alþingis er kosinn.

Skuldastaða ríkisins ekki slæm í alþjóðlegum samanburði

Skuldir ríkisins eru ekki jafn háar í alþjóðlegum samanburði og margir halda. Ef áætlun stjórnvalda og AGS gengur eftir verða skuldir ríkisins svipaðar og í nágrannaríkjum okkar og lægri en í bæði Bretlandi og Írlandi. Þá er atvinnuleysi hér það sama og í OECD-ríkjum.

Um 80% heimila heimsótt í gær

Gert er ráð fyrir að um það bil 80% af heimilum landsins hafi verið heimsótt af sjálfboðaliðum Rauða krossins í gær. Rauði krossinn þakkar sjálfboðaliðum sem gengu til góðs og þeim sem tóku á móti sjálfboðaliðunum og gáfu í söfnunina, í tilkynningu sem send var fjölmiðlum í morgun.

Um helmingur stöðuveitinga á pólitískum forsendum

Um helmingur stöðuveitinga í stjórnsýslunni eru á pólitískum forsendum, sagði Gylfi Dalmann Aðalsteinsson, dósent í viðskiptafræði við Háskóla Íslands í þættinum Sprengisandi á Bylgjunni í morgun.

Fjögur skipti vann Gyllta lundann

RIFF kvikmyndahátíðin náði hápunkti þegar að verðlaunaafhending fór fram í fullum sal í Háskólabíó í gærkvöld. Ítalska myndin „Fjögur skipti" vann Gyllta Lundann, aðalverðlaun hátíðarinnar. Að lokinni verðlaunaafhendingu var kvikmyndin Brim svo frumsýnd en það er nýjasta afurð Vesturports leikhópsins.

Drengur á batavegi eftir bílslys

Tíu ára drengur sem ekið var á í Reykjanesbæ í fyrrakvöld hefur verið fluttur af gjörgæsludeild Landspítalans og á barnaspítalann. Ekki fengust nánar upplýsingar um líðan hans. Slysið varð um klukkan sjö í miðbæ Keflavíkur fyrradag þegar drengurinn ætlaði að fara yfir götu á reiðhjóli. Hann hlaut meiðsli á höfði en lögreglumaður segir að hjálmur sem drengurinn var með þegar slysið varð hafi hugsanlega gert gæfumuninn að ekki fór ver.

Ógnaði fólki með sveðju í Seljahverfi

Karlmaður í annarlegu ástandi ógnaði fólki með 40-50 sentimetra langri sveðju við fjölbýlishús í Seljahverfi rétt eftir miðnætti í nótt. Hann slasaði sem betur fer engan. Karlmaðurinn var handtekinn og gistir fangageymslur lögreglunnar þangað til að rætt verður við hann síðar í dag.

Niðurskurður fyrir austan: „Fólk er mjög áhyggjufullt“

„Fólk er mjög áhyggjufullt, ég bý sjálfur á Neskaupsstað þar sem Fjórðungssjúkrahúsið er, og ég finn það greinilega í dag þegar fólk er að sjá þessar fréttir," segir Jón Björn Hákonarson, forseti bæjarstjórnar í Fjarðabyggð. Í nýjum fjárlögum kemur fram að skera þurfi 25 prósent í rekstri Heilbrigðisstofnunar Austurlands. „Þetta mun hafa gríðarleg áhrif á starfsemina.," segir Jón Björn.

Aðsóknarmet slegið á RIFF - Yfir 20 þúsund manns sótt hátíðina

Aðsókn að Alþjóðlegri kvikmyndahátíð í Reykjavík hefur farið fram úr væntingum aðstandenda hátíðarinnar og fyrir liggur að hátíðin í ár verður sú aðsóknarmesta frá upphafi. Yfir 20 þúsund manns hafa sótt hátíðina og er þar með slegið aðsóknarmet hátíðarinnar 2009. Í tilkynningu segir að það megi líta á það sem staðfestingu þess að kvikmyndahátíðin RIFF fer vaxandi með hverju árinu.

Fólksflótti, tekjuskerðing og tilveru ógnað

Framsóknarfélag Þingeyinga lýsir yfir undrun og hneykslun þeim niðurskurði í heilbrigðiskerfinu og tæplega 40 prósent niðurskurði sem lendir á Heilbrigðisstofnun Þingeyinga. Í tilkynningu segir að vegna þessa verða íbúar á þjónustu svæði heilbrigðisstofnunarinnar fyrir tífallt meiri niðurskurði í heilbrigðisþjónustu en hinn almenni Íslendingur.

Á annað þúsund manns ganga til góðs

Vel á annað þúsund manns hafa skráð sig til þátttöku í landssöfnun Rauða krossins Göngum til góðs. Rauði krossinn bendir fólki á að mæta beint á söfnunarstöðvar, því reynslan sýni að meirihluti sjálfboðaliða skrái sig ekki fyrirfram. Söfnunarstöðvar á höfuðborgarsvæðinu opnuðu kl. 10:00 í morgun og verða opnar fram til kl. 18:00.

Skapar fordæmi til að sækja núverandi ráðherra til saka

Formaður Sjálfstæðisflokksins segir að ákærurnar fyrir Landsdómi skapi fordæmi til að sækja núverandi ráðmenn til saka. Raunveruleg hætta hafi verið á að bankarnir hryndu aftur í sumar en stjórnvöld hafi ekkert gert til að koma í veg fyrir það.

Eiginmaður og sonur Ingibjargar Sólrúnar segja sig úr Samfylkingunni

Björgvin G. Sigurðsson segist hryggur yfir því að Geir H. Haarde hafi einn verið ákærður fyrir landsdómi. Hann segist hafa gengið í gegnum allt tilfinningalitrófið, en skrifað sig frá reiðinni. Eiginmaður og yngri sonur Ingibjargar Sólrúnar Gísladóttur hafa sagt sig úr Samfylkingunni vegna atkvæðagreiðslunnar í landsdómsmálinu.

Ræða Össurar hjálpaði

Formaður Ísland-Palestína er kominn til Gaza en hann og starfsmenn stoðtækjaframleiðandans Össurar höfðu beðið í viku eftir að komast inn á svæðið. Hann þakkar íslensku utanríkisþjónustunni að hann komst loks yfir landamærin.

Strokufanginn er fundinn

Björt Karlsdóttir, 24 ára gömul kona, sem lögreglan á höfuðborgarsvæðinu lýsti eftir í gær, er fundin og hefur verið vistuð á viðeigandi stofnun.

Fundið fyrir miklum styrk eftir frétt Stöðvar 2

Útigangsmaðurinn Örvar Geir Geirsson sem gekk berserksgang á skrifstofu félagsþjónustunnar í gær, segir þann mikla hlýhug sem hann hefur fundið fyrir eftir að frétt Stöðvar 2 birtist í gær, hafa veitt ómetanlegan styrk. Rætt verður við Örvar í fréttum Stöðvar 2 klukkan hálf sjö.

Hlé gert á leitinni að Andrési

Leitin að Andrési Tómassyni hefur engan árangur borið. Um þrjátíu hópar gengu slóða í gær og vegi í kringum höfuðborgarsvæðið. Hætt var að leita um níu, þegar byrjaði að dimma.

Héðinsfjarðargöng opnuð í dag

Héðinsfjarðargöng verða formlega opnuð í dag fyrir almennri umferð. Framkvæmdin, sem kostaði 12 milljarða króna af skattfé, felur í sér mikla samgöngubót fyrir íbúa á Ólafsfirði og Siglufirði.

Tíu ára á gjörgæslu eftir umferðarslys

Tíu ára drengur sem ekið var á í Reykjanesbæ í gær liggur á gjörgæsludeild Landspítalans. Læknir á deildinni segir ástand hans stöðugt og honum sé ekki haldið sofandi.

Bandarísk stjórnvöld biðjast afsökunar

Bandarísk stjórnvöld hafa beðið afsökunar á því að hafa smitað 700 manns viljandi af sárasótt og lekanda í Gvatemala fyrir rúmlega sextíu árum.

Sjá næstu 50 fréttir