Innlent

Tvö hundruð manns leituðu um helgina

Andrés fékk 600.000 króna rannsóknarstyrk í júní sem hann hefur enn ekki leyst út.
Andrés fékk 600.000 króna rannsóknarstyrk í júní sem hann hefur enn ekki leyst út.

Rúmlega 200 björgunarsveitar- og lögreglumenn leituðu að Andrési Tómassyni um helgina. Andrés hefur verið týndur í tíu daga og sást síðast til hans föstudaginn 24. september.

Andrés fékk 600 þúsund króna rannsóknarstyrk í júní frá Landssamtökum lífeyrissjóða fyrir meistaraprófsritgerð við Háskóla Íslands, sem hann vinnur að. Ritgerðin snýr að áhrifum efnahagshrunsins á lífeyrissjóðina hér á landi og hefur Andrés ekki leyst styrkinn út.

Um sjötíu leitarhópar frá sautján björgunarsveitum leituðu í nágrenni höfuðborgarsvæðisins, Borgarfirði og Reykjanesi auk þess sem þyrla Landhelgisgæslunnar flaug meðfram ströndum, götum og bryggjum en án árangurs. Bíll Andrésar, ljósbrúnn Suzuki Grand Vitara frá 2003 með bílnúmerið LZ-195, er einnig horfinn og hefur lögreglan engar vísbendingar fengið frá almenningi þrátt fyrir ítarlegar beiðnir.

Ágúst Svansson, aðalvarðstjóri og stjórnandi leitarinnar, segir óvenjulegt að ekkert spyrjist til fólks í svona langan tíma hér á landi. Hann segir mikilvægast fyrir leitarmenn að finna bílinn því í raun gæti Andrés verið hvar á landi sem er.

„Þetta er svolítið nýtt fyrir okkur. Nauðsynlegast er að hugsa og átta sig á hlutunum og gefa sér engar forsendur," segir Ágúst. „En það er skýring á öllu."

Slysavarnafélagið Landsbjörg hvetur fólk til að athuga vel sitt nærumhverfi, svo sem kjallaratröppur, bílskúra og fleira og láta lögreglu vita ef sést hefur til Andrésar eða bifreiðar hans. - sv








Fleiri fréttir

Sjá meira


×