Innlent

Leit að Andrési hefur ekki borið árangur

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Leit að Andrési Tómassyni hefur staðið yfir í allan dag án árangurs, samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu. Síðast er vitað um ferðir Andrésar á föstudaginn 24. september. Hann er með bifreiðina LZ-195 sem er ljósbrún Suzuki Grand Vitara árgerð 2003.

Björgunarsveitir, um 200 manns, víðs vegar á suðvesturlandi hafa tekið þátt í leitinni í dag. Leit hefur verið gerð að bifreiðinni í dag á höfuðborgarsvæðinu, á Reykjanesi, við Hvalfjörð og í Borgarfirði. Þyrla LHG hefur verið notuð við leitina.

Lögreglan óskar eftir aðstoð almennings og ef einhverjir hafa upplýsingar um ferðir Andrésar vinsamlega hafið þá samband við lögregluna í síma 444-1000.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×