Innlent

Bandarísk stjórnvöld biðjast afsökunar

Hillary Clinton
Hillary Clinton

Bandarísk stjórnvöld hafa beðið afsökunar á því að hafa smitað 700 manns viljandi af sárasótt og lekanda í Gvatemala fyrir rúmlega sextíu árum.

Um var að ræða rannsókn þar sem fangar og sjúklingar á geðsjúkrahúsum voru smitaðir í vísindaskyni en verið var að kanna hvort pensilín gæti hindrað smit, ekki aðeins læknað sjúkdóminn. Hillary Clinton, utanríkisráðherra og og Kathleen Sebelius, heilbrigðisráðherra, gáfu út sameiginlega yfirlýsingu, þar sem þær fordæmdu rannsóknina, að því er fram kemur á fréttavef BBC.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×