Ósætti vegna ráðningar skrifstofustjóra 4. október 2010 06:00 Umsækjendur um starfið eru óánægðir með tafir sem urðu á ráðningarferlinu.Fréttablaðið/Einar
Umsækjendur um starf skrifstofustjóra auðlindaskrifstofu í sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytinu eru ósáttir við niðurstöðu Ögmundar Jónassonar, dóms- og samgöngumálaráðherra, um að ráða Jóhann Guðmundsson, aðstoðarmann Jóns Bjarnasonar, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, í starfið. Jóhann hefur starfað sem aðstoðarmaður Jóns, og þar áður Steingríms J. Sigfússonar fjármálaráðherra, undanfarið eitt og hálft ár. Vegna tengsla sinn við Jóhann lýsti Jón sig vanhæfan og féll það því í hlut Ögmundar að ráða í starfið. „Að vera pólitískt skipaður aðstoðarmaður og vera svo ráðinn í þetta starf finnst mér auðvitað ekkert eðlilegt en það er svo sem ekki mitt að meta hvaða umsækjandi var hæfastur,“ segir Gísli Rúnar Gíslason, yfirlögfræðingur hjá Fiskistofu, sem var meðal umsækjenda en hann hyggst sækjast eftir rökstuðningi fyrir ráðningunni frá ráðuneytinu. Hann telur orka tvímælis að Ögmundur hafi verið fenginn til að ráða í starfið þar sem hann sé í sama flokki og Jón. Undir þessi sjónarmið taka fleiri umsækjendur sem furða sig jafnframt á því hve langan tíma ráðningarferlið tók en umsóknarfrestur rann út þann 18. júlí síðastliðinn. Ögmundur Jónasson sagði í samtali við Fréttablaðið á laugardag að hann hefði óskað eftir því að starfsmenn ráðuneytisins færu yfir umsækjendur á faglegum nótum og að Jóhann hefði orðið hlutskarpastur í því mati. Það væri ómaklegt að setja málið fram með þeim hætti að annarleg sjónarmið hefðu ráðið för, ráðningin hefði verið fagleg.- mþl
Mest lesið Þúsundir hermanna kallaðir heim frá Þýskalandi Erlent Fjöldi viðbragðsbíla kom á vettvang falsboðs Innlent „Slátrarinn frá Bosníu“ við dauðans dyr Erlent Lífið umturnaðist í kjölfar slyssins Innlent „Dapurlegt pólitískt útspil“ Innlent Meirihlutinn fallinn og VG á þingi Innlent Höfðinginn átti sig ekki á lokuninni Innlent Þetta sé bæjarstjórn Kópavogs til skammar Innlent Myndaveisla: Verkalýðsdagurinn haldinn hátíðlegur Innlent Sinueldur í Grafarvogi Innlent Fleiri fréttir Fjöldi viðbragðsbíla kom á vettvang falsboðs Meirihlutinn fallinn og VG á þingi Farfuglar koma marktækt fyrr til landsins en áður „Dapurlegt pólitískt útspil“ Höfðinginn átti sig ekki á lokuninni Myndaveisla: Verkalýðsdagurinn haldinn hátíðlegur Sinueldur í Grafarvogi Þetta sé bæjarstjórn Kópavogs til skammar Framboðum Miðflokksins fjölgar um átta milli kosninga Lífið umturnaðist í kjölfar slyssins Bein útsending: Verkalýðsdagurinn haldinn hátíðlegur Sendi ekki reikning og fær því ekki greitt Langhæsti styrkurinn fer til Eyja Vasaþjófnaður aukist að undanförnu „Bjóða fram“ Biðlistann í Reykjavík Ofurölvi reyndi að opna bíla í akstri „Við erum með lengri óskalista heldur en þetta“ Segist ekkert hafa fengið greitt: „Pólitískur hráskinnaleikur“ „Þetta er bara eins og að missa vini sína“ Andar köldu milli Viðreisnar- og Miðflokksmanna Föst í umferð í tæpa fjóra sólarhringa á ári og kostnaðurinn yfir hundrað milljarðar Banaslys í Skorradalsvatni Glæný könnun gæti varpað ljósi á meirihlutamyndun Hlaðvarpsstjórnendur fá nýjar leiðbeiningar Urðu eftir í Flatey á meðan Baldur sigldi suður Halla fagnaði áttræðum Karli Gústafi Sömdu um stækkun á Fylkisseli Kannast ekki við meint rán í Lágafellskirkju Ákærður fyrir að eitra fyrir samstarfsfélaga með kannabis Tjáir sig ekki um greiðslur frá Rúv en boðar yfirlýsingu Sjá meira