Innlent

Árásarmaðurinn á Akureyri er enn í haldi

Karlmaður, sem réðst á annan mann í fjölbýlishúsi við Tjarnarlund á Akureyri í gærmorgun, er enn í haldi lögreglunnar á Akureyri og verður yfirheyrður með morgninum.

Þolandinn þurfti að leita læknishjálpar á sjúkrahúsinu eftir árásina, en er ekki alvarlega slasaður.

Árásarmaðurinn var ekki viðræðuhæfur vegna annarslegs ástands í gær, en félaga hans var sleppt að yfirheyrslum yfir honum loknum.

Í fljótu bragði virðist sem árásin hafi verið tilefnislausog tilviljun ráðið á hvern var ráðist.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×