Innlent

Reyðarfjarðarlína verður endurreist

Sauðfjárveikivarnarlína við Reyðarfjörð verður endurrreist.
 Fréttablaðið/Vilhelm
Sauðfjárveikivarnarlína við Reyðarfjörð verður endurrreist. Fréttablaðið/Vilhelm

Ákveðið hefur verið að endurreisa sauðfjárveikivarnarlínu sem liggur upp úr Reyðarfirði vegna garnaveiki sem kom upp í Fáskrúðsfirði í vetur.

Þetta er meðal þess sem kom fram í svari Jóns Bjarnasonar landbúnaðarráðherra við fyrirspurn Sigurðar Inga Jóhannssonar, þingmanns Framsóknarflokksins, á Alþingi í síðustu viku.

Matvælastofnun lagði niður allnokkrar varnarlínur undir lok síðasta árs í hagræðingarskyni, en sú ráðstöfun fékk misjafnar undirtektir sauðfjárbænda. Þeir settu fram fjórþættar kröfur í greinargerð til ráðuneytisins.

Ráðuneytið tók tillit til kröfu bænda um að Reyðarfjarðarlína væri sett upp að nýju, en hafnaði því að endurreisa línu við Hornafjörð. Hins vegar sagðist ráðuneytið reiðubúið að koma til móts við bændur vegna viðhalds girðinga milli hólfa sem hafa verið aflögð. Þá vill ráðuneytið vinna að því að upplýsingar um sjúkdóma á einstökum búum séu gerðar aðgengilegar.

Tillaga um að gera Reyðarfjarðarlínu að aðallínu á ný er á loka­stigi, en hefur tafist vegna ágreinings við landeigendur í Reyðarfirði, sem telja línuna skerða nýtingarmöguleika sína. - þj




Fleiri fréttir

Sjá meira


×