Fleiri fréttir

Stofninn lítill og nýliðun slök

Úthafsrækjustofninn mælist enn lítill og er veiðistofninn svipaður og síðustu fjögur ár. Ólíklegt er talið að rækjustofninn vaxi mikið í bráð. Þetta er niðurstaða árlegrar stofnmælingar Hafrannóknastofnunar á úthafsrækju fyrir norðan og austan land.

Viðskiptavefur opnaður um miðjan mánuð

Stefnt er að því að endurútreikningar einföldustu gengislánasamninga Lýsingar verði aðgengilegir um miðjan mánuðinn. „Aðalmálið er að fólk fái rétta stöðu," segir Halldór Jörgensson, framkvæmdastjóri Lýsingar.

Fjallabyggð sameinuð með göngum

Héðinsfjarðargöngin á milli Siglufjarðar og Ólafsfjarðar verða opnuð í dag. Göngin stytta leiðina á milli bæjarfélaganna tveggja úr 62 kílómetrum í um 15 kílómetra og eru um 11 kílómetrar að lengd.

Níu manns sagt upp störfum

Þjóðleikhúsið hefur sagt upp níu fastráðnum starfsmönnum. Lækka þarf launakostnað um 14 prósent milli ára vegna tíu prósent skerðingar á framlögum í fjárlagafrumvarpi ársins, að sögn Ara Matthíassonar, framkvæmdastjóra Þjóðleikhússins.

Hægri hönd í eftirsótt starf

Ögmundur Jónasson, dóms- og mannréttindaráðherra, hafnar því alfarið að ráðning Jóhanns Guðmundssonar í embætti skrifstofustjóra auðlindaskrifstofu landbúnaðar- og sjávarútvegsráðuneytisins sé af pólítískum toga.

Örvar: Ég hef í engin hús að venda

Maður um þrítugt sem býr á götunni gekk berserksgang hjá Félagsmálastofnun í Reykjavík í dag þegar honum var tilkynnt að dragast myndi að greiða honum húsnæðisstyrk.

Voru við hugvekju hjá Siðmennt

Skúli Helgason, þingmaður Samfylkingarinnar, segir að hann, Katrín Jakobsdóttir, Árni Þór Sigurðsson og Mörður Árnason hafi ekki verið á meðal mótmælenda þegar að guðsþjónusta fór fram í Dómkirkjunni í dag.

Björgunarsveitir hefja leit að Andrési

Björgunarsveitir á höfuðborgarsvæðinu eru nú að hefja leit að Andrési Tómassyni sem saknað hefur verið af heimili sínu í Reykjavík síðan á föstudag í síðustu viku.

Grýtti eggjum í Landsbankann

Mótmælandi tók að grýta eggjum í Landsbankann í Austurstræti eftir að þingsetningu Alþingis lauk í dag. Konan fór inn í bankann til þess að mótmæla viðskiptaháttum hans. Lögreglumenn vísuðu konunni þá út og eftir það stóð hún fyrir utan og ákvað að henda eggjum í hús hans.

Þingmenn fara bakdyramegin inn í þinghúsið

Lögreglumenn á Austurvelli brýna það fyrir mótmælendum að halda sig innan þeirra marka sem þeim hefur verið sett. Geri þeir það ekki muni lögreglumenn beita piparúða.

Rúða brotin í Dómkirkjunni - lögreglan með kylfur

Mótmælendur hafa brotið rúðu í Dómkirkjunni í Reykjavík. Alþingismenn komu saman til guðsþjónustu þar klukkan hálftvö eins og venja er þegar Alþingi er sett. Talið er að á bilinu 500 - 1000 manns séu samankomnir á Austurvelli til að mótmæla. Lögreglan er með kylfur á lofti og öllu viðbúnir.

Bjarni vill að boðað verði til kosninga

Bjarni Benediktsson formaður Sjálfstæðisflokksins vill boða til kosninga sem fyrst. Þetta kom fram á opnum fundi sem Sjálfstæðisflokkurinn hélt í Valhöll í morgun. Áður hafði varaformaður flokksins, Ólöf Nordal, sagst vera þeirrar skoðunnar að boða ætti til kosninga. Á fundinum bætti hún um betur og sagði það verkefni Sjálfstæðisflokksins að koma „þessari ríkisstjórn frá sem fyrst.“

Alþingi sett - bein útsending

Alþingi verður sett með guðsþjónustu í Dómkirkjunni klukkan hálftvö í dag. Bein útsending verður hér á Vísi. Forseti Íslands, biskupinn yfir Íslandi, forseti Alþingis, ráðherrar og flestir alþingismenn ganga fylktu liði til kirkjunnar úr Alþingishúsinu þegar klukkan er 25 mínútur gengin í tvö.

Um þúsund manns á Austurvelli

Um þúsund hundruð manns eru nú samankomnir á Austurvelli, margir með kröfuspjald í hönd þar sem vakin er athygli á bágum kjörum fólksins í landinu.

Vesturport fær virt leiklistarverðlaun

Leikhópurinn Vesturport fær Evrópsku leiklistarverðlaunin þetta árið. Frá þessu er greint á bloggsíðu Will Gompertz, þáttastjórnanda Today, á BBC. Gísli Örn Garðarsson, forvígismaður Vesturports var í viðtali hjá Gompertz í morgun og sagðist Gísli um ótrúlegan heiður að ræða, sérstaklega í ljósi þess ástands sem ríkt hafi á Íslandi síðustu misserin. Allt jákvætt umtal um Ísland erlendis væri því af hinu góða.

Vestfirðir fá evrópsk ferðamálaverðlaun

Vestfirðir fengu EDEN ferðamálaverðlaunin við hátíðlega athöfn í Brussel í vikunni. EDEN stendur fyrir „European Destination of Excellence" en Vestfirðirnir voru meðal þeirra áfangastaða sem hlutu þann heiður að vera útvaldir, fyrstir íslenskra áfangastaða. Verðlaunin leggja áherslu á sjálfbæra ferðaþjónustu en í ár er þemað vatns- og sjávartengd ferðaþjónusta .

Skorið niður um 33 milljarða - fjárlög kynnt í dag

Gert er ráð fyrir þrjátíu og þriggja milljarða króna niðurskurði í fjárlögum næsta árs sem lögð verða fram á Alþingi í dag. Búist er við að að skattahækkanir skili 10 milljörðum í auknar tekjur. Miðað er við að útgjöld til velferðarmála verði lækkuð um sex prósent.

Bein útsending frá Austurvelli

Á Vísi verður bein útsending frá Austurvelli í dag þegar Alþingi verður sett. Þingmenn ganga frá þinghúsinu og yfir í Dómkirkjuna í Reykjavík þar sem fram fer Guðsþjónusta. Síðan ganga þeir aftur frá kirkjunni og yfir í í Alþingishúsið þar sem Alþingi verður sett.

Skólastjóri Hraðbrautar segir eftirlit hafa skort

Ólafur H. Johnson, skólastjóri Menntaskólans Hraðbraut, tekur undir með Ríkisendurskoðun um að lánveitingar skólans til starfsemi sem tengdist ekki skólanum á nokkurn hátt „geti ekki talist æskileg." Í greinargerð Ríkisendurskoðunar eru lánveitingar Hraðbrautar harðlega gagnrýndar. Ólafur hefur sent frá sér yfirlýsingu þar sem hann fordæmir lánin einnig: „Þessi lánastarfsemi var birtingarmynd hugsunarháttar og hugmynda sem voru áberandi í samfélaginu og heyrir sögunni til."

Sveinn Rúnar kominn inn á Gasa

Sveinn Rúnar Hauksson læknir komst í morgun inn á Gasa svæðið en síðustu daga hefur hann ásamt stoðtækjasérfræðingum frá Össuri reynt að komast inn á svæðið með gerfifætur fyrir nauðstadda Palestínumenn. Þær áætlanir hafa engan árangur borið en Sveinn sendi í tölvuskeyti í dag fregnir af því að honum hefði verið hleypt inn á svæðið í morgun.

Heimspekileg hugvekja fyrir þingmenn

Siðmennt, félag siðrænna húmanista, býður alþingismönnum að eiga samverustund óháð trúarsetningum áður en þeir ganga til þingstarfa í dag.

Óeðlilegar lánveitingar Hraðbrautar

Í nýrri greinargerð Ríkisendurskoðunar kemur fram að á tímabilinu 2003-2009 hafi arðgreiðslur Menntaskólans Hraðbraut til eigenda hans numið samtals 82 milljónum króna. Ríkisendurskoðun telur að skólinn hafi í raun ekki haft fjárhagslegt bolmagn til að greiða þennan arð. Þá kemur fram að lán skólans til aðila tengdra eigendum hans hafi numið samtals 50 milljónum króna í árslok 2009. Að mati Ríkisendurskoðunar eru þessar lánveitingar óeðlilegar enda tengjast þær ekki rekstri skólans. Stofnunin telur óvíst að fjárhagslegar forsendur séu fyrir áframhaldandi rekstri hans.

Mótmælin á miðnætti: „Þetta er bara rugl" - myndband

Fjöldi fólks safnaðist fyrir utan Alþingishúsið á miðnætti í gær. Tjaldborg var sett upp á Austurvelli og mótmælaskiltum var komið fyrir. Það var greinilega mikill hiti í fólki og margir sem fundu fyrir mikilli reiði. Breki Logason fréttamaður hitti á nokkra og fór yfir stöðu mála líkt og hægt er að sjá í meðfylgjandi myndskeiði.

Um 25% barna fá sérkennsluúrræði

Um 25% grunnskólanemenda á Íslandi nutu sérkennslu eða stuðnings á síðasta skólaári. Þetta voru tæplega 10.700 nemendur, samkvæmt tölum

Alþingi sett í dag

Alþingi verður sett með guðsþjónustu í Dómkirkjunni klukkan hálftvö í dag. Forseti Íslands, biskupinn yfir Íslandi, forseti Alþingis, ráðherrar og flestir alþingismenn ganga fylktu liði til kirkjunnar úr Alþingishúsinu þegar klukkan er 25 mínútur gengin í tvö.

Lögreglumenn skora á Alþingismenn

Lögreglufélag Austurlands hvetur Alþingismenn til að nýta sér þekkingu annarra þjóða í þeirri erfiðu vinnu sem endurreisn efnahagskerfisins er, og minnast þess að það er hroki að halda að við vitum og kunnum alla hluti betur en aðrir.

Sódóma besta íslenska myndin

Sódóma Reykjavík, fyrsta kvikmynd leikstjórans Óskars Jónassonar frá árinu 1992, er besta íslenska kvikmyndin samkvæmt skoðanakönnun Fréttablaðsins sem gerð var í síðustu viku.

Mótmæltu við Alþingishúsið í nótt

Nokkrir mótmælendur sátu eða sváfu við Alþingishúsið í morgun og hópur fólks hafðist við í nokkrum tjöldum á Austurvelli, en fólkið er að mótmæla aðgerðarleysi stjórnvalda í við vanda almennings. Mun fleiri voru þar um miðnætti. Mótmælaspjöldum var raðað meðfram allri norður hlið Alþingishússins og kyndlar loguðu við styttu Jóns Sigurðssonar. Að sögn lögreglu hefur allt farið vel fram og ekki komið til afskipta lögreglu, en hún hafði ekki fasta vakt við húsið í nótt.

Ber ekki kala til nokkurs manns

„Mér þykir niðurstaðan dapurleg,“ segir Björgvin G. Sigurðsson, þingmaður Samfylkingarinnar og fyrrverandi viðskiptaráðherra, um niðurstöður atkvæðagreiðslu Alþingis um landsdómsmálið. Þingið samþykkti að ákæra Geir H. Haarde, fyrrverandi forsætisráðherra, en felldi tillögu um kærur á hendur Björgvini, Árna M. Mathiesen og Ingibjörgu Sólrúnu Gísladóttur.

ESB er sterkasti leikur íslenskrar tungu

„Það er alveg klárt að sterkasti leikurinn fyrir íslenska tungu væri aðild að Evrópusambandinu. Þetta myndi auðga og styrkja íslenska tungu meira en nokkur dagur íslenskrar tungu eða málnefnd." Þetta sagði Gauti Kristmannsson, dósent í þýðingafræðum, í fyrirlestri hjá Alþjóðamálastofnun fyrir skömmu. Ekkert komi nálægt því að geta styrkt íslenskuna jafn mikið og þetta.

Sex landsdómsmenn hyggjast taka sæti

Sex af þeim átta aðalmönnum sem Alþingi kaus árið 2005 til setu í landsdómi hafa staðfest við Fréttablaðið að þeir sjái ekkert því til fyrirstöðu að taka sæti í dóminum, verði hann kallaður saman. Einn dómenda má ekki taka sæti sökum aldurs.

Norðmenn takast á um ESB-aðild Íslands

Norsk samtök, sem berjast með og á móti inngöngu Noregs í Evrópusambandið, styðja systursamtök sín á Íslandi á ýmsan hátt og stendur meðal annars yfir fjársöfnun fyrir Heimssýn, íslensku nei-samtökin.

Þingmaður VG vill kosningar án tafar

„Ég vil kosningar. Þó margir efist um að þjóðin geti staðið í kosningum núna vil ég að þær fari fram strax í kjölfar niðurstöðu atkvæðagreiðslu Alþingis,“ segir Lilja Mósesdóttir, þingmaður VG. Að hennar mati er niðurstaða landsdómsmálsins á þriðjudag merki um að meirihluti þingsins sé ekki tilbúinn að gera bankahrunið upp.

Bjargaði og hýsti fálka

Vestmannaeyjar fengu heimsókn frá Evrópu fyrr í mánuðinum þegar turnfálki fannst þar illa til reika og máttfarinn. Ruth Barbara Zohlen náttúruunnandi fann fuglinn þar sem hún var á göngu og ákvað að taka hann inn á sitt heimili og hlúa að honum. Ruth ól fálkann á kjöti í þrjár vikur og sleppti honum síðan lausum.

Orkuöflun til Helguvíkur enn óleyst

Tafir á álversframkvæmdum í Helguvík má helst rekja til vandræða við orkuöflun. HS Orka bíður virkjunarleyfis á Reykjanesi og OR hefur enn ekki lokið fjármögnun í Hverahlíð. Forstjóri Norðuráls gagnrýnir seinagang umhverfisráðherra.

Sjá næstu 50 fréttir