Innlent

Róttækra breytinga þörf á starfi Samfylkingarinnar

Guðrún Jóna Jónsdóttir tölvunafræðingur, sem kjörinn var formaður Ungra jafnaðarmanna á landþingi samtakanna í gær, sagði í ræðu sinni á þinginu að rótækra breytinga væri þörf á innra starfi Samfylkingarinnar.

Sambandsleysið á milli grasrótar og forystu væri algjört og því þurfi að breyta strax. Flokksmenn skuli ekki halda að þótt fyrrverandi formaður, Ingibjörg Sólrún Gísladóttir hafi stigið úr stóli, sé flokkurinn hvítþveginn.

Flokkurinn hafi verið meðvirkur í aðdraganda hrunsins, sagði Guðrún Jóna meðal annars, en hún á sæti í farmkvæmdastjórn Samfylkingarinnar og leiðir nú samtök Ungra jafnaðarmanna.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×