Innlent

Óttast að Sarkozy muni trufla aðildarviðræður Íslands að ESB

Deilur Nicholas Sarkozy Frakklandsforseta við framkvæmdastjórn Evrópusambandsins um meðferð Frakka á sígaunum innan sinna landamæra gætu haft afleiðingar fyrir aðildarviðræður Íslendinga að sambandinu.

Fjallað er um málið í viðskiptablaðinu Financial Times. Þar segir að deilan um sígaunana hafa vakið áhyggjur meðal stjórnarerindreka um að Frakkland muni hafa allt á hornum sér innan Evrópusambandsins á næstu mánuðum og jafnvel ári.

Inn í málið blandast að forsetakosningar verða í Frakklandi eftir hálft annað ár og að eftir því sem þær nálgast verði æ vinsælla meðal franskra stjórnmálamanna að berja á Brussel.

Samkvæmt frétt blaðsins óttast embættismenn í Brussel að Frakkland muni draga lappirnar í að samþykkja aðild nýrra þjóða að Evrópusambandinu. Hvað Króatíu varðar, sem stendur fremst í biðröðinni, er talið að aðildarferli þeirrar þjóðar sé svo langt komið að ekki sé hægt fyrir Frakka að trufla það.

Öðru máli gegnir um Ísland. Einn norrænn stjórnarerindreki segir í samtali við blaðið að Íslendingar muni ekki eiga von á neinum greiðum af hendi Frakka í aðildarviðræðum sínum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×