Innlent

Fólksflótti, tekjuskerðing og tilveru ógnað

Steingrímur J. Sigfússon, fjármálaráðherra, kynnir fjárlög fyrir árið 2011 í vikunni.
Steingrímur J. Sigfússon, fjármálaráðherra, kynnir fjárlög fyrir árið 2011 í vikunni.
Framsóknarfélag Þingeyinga lýsir yfir undrun og hneykslun þeim niðurskurði í heilbrigðiskerfinu og tæplega 40 prósent niðurskurði sem lendir á Heilbrigðisstofnun Þingeyinga. Í tilkynningu segir að vegna þessa verða íbúar á þjónustu svæði heilbrigðisstofnunarinnar fyrir tífallt meiri niðurskurði í heilbrigðisþjónustu en hinn almenni Íslendingur.

„Þessi niðurskurður er árás á mannlíf í Þingeyjarsýslum, veikir byggðina, skerðir tekjur, veltir kostnaði yfir á fjölskyldur, ýtir undir fólksfótta úr héraðinu, þekking tapast og grunnstoðir bresta. Tilveru Þingeyinga er ógnað," segir í tilkynningunni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×